Fregnir - 01.10.2009, Síða 22

Fregnir - 01.10.2009, Síða 22
FREGNIR. Fréttabréf Upplýsingar - Félag bókasafns- og upplýsingafræða 34. árg. - 2. tbl. 2009 22 Á síðustu árum hefur verið mikil umræða hjá bókasafns- og upplýsingafræði nemum um skipulag, uppbyggingu og framþróun þess náms sem Háskóli Íslands býður upp á. Sitt sýnist hverjum um ýmsa þætti námsins, en eitt virðast flestir vera sammála um og það er að þróun námsins hefur ekki verið eins hröð og þróun þess starfsvettvangs sem bíður nema eftir útskrift. Þegar borin eru saman þau námskeið sem bjóðast nemum í bókasafns- og upplýsingafræði hér heima og í Bandaríkjunum, kemur í ljós að úrval námskeiða er mjög ólíkt og talsvert takmarkaðra og afmarkaðra hér á landi en þar. Að sjálfsögðu spila atriði eins og fjöldi nemenda og fjármagn inn í, en hér væri auðveldlega hægt að bjóða upp á námskeið eins og Libraries in the Information Age og Information Needs and Services (sjá kennsluskrá Háskólans í Pennsylvaniu: http://www.universities. com/edu/www.Kutztown_University_of_Pennsylvania.html). Spennandi námskeið hafa oft verið kennd við deildina, en úrvalið virðist fara minnkandi með hverju árinu. Nú eru skólabókasöfn, almenningssöfn, gagnasafnafræði og veflausnir og lýsigögn til dæmis ekki kennd og hafa ekki verið síðustu 3 ár. Þetta verður til þess að nemendur þurfa að leita mikið út fyrir deildina að námskeiðum til að fylla upp í og oft eru það námskeið sem passa inn í stundaskrá sem verða fyrir valinu, frekar en námskeið sem nýtast og tengjast faginu beint. Hversu gott er það fyrir fagið að nemendur velji það sem fellur best að tíma þeirra fremur en það sem fellur best að framtíðarstarfi þeirra? Þessi námskeið sem talin voru upp að ofan mætti kenna þriðja hvert ár og gætu þá allir sem taka bókasafns- og upplýsingafræði til 180 eininga nýtt sér þetta og haldið valnámskeiðum sínum innan deildarinnar. Í kynningarefni um deildina segir að markmiðið með náminu sé að veita nemendum trausta og nútímalega menntun þar sem áhersla er lögð á fræðilega, hagnýta og aðferðafræðilega kunnáttu og þjálfun sem býr þá undir það að sinna fjölbreyttum viðfangsefnum sem sérfræðingar á sviði bókasafns- og upplýsingafræði (http://www.hi.is/is/felagsvisindasvid_deildir/ felags_og_mannvisindadeild/ nam/bokasafns_og_upplysingafraedi_1) en eins og fyrirkomulag námsins er í dag er ekki hægt að segja að menntunin sé hagnýt þar sem marga lykiláfanga vantar inn í kennslu. Að auki hefur verið umræða um það hvort vettvangsnámið sé nægilega hagnýtt og hvort það gefi nemendum innsýn í þann umfangsmikla heim sem starf bókasafns- og upplýsingafræðings er. Fjörutíu vinnustundir er ekki nægur tími til að kynnast nema einni hlið fagsins og þyrfti að auka tímann sem fer í vettvangsnám um minnst 40 stundir í viðbót þar sem væri hægt að skipta viðverunni á milli ólíkra starfa. Gott væri til dæmis að hafa hluta vettvangsnámsins á skjalasafni, hluta þess á almenningsbókasafni og hluta á skólabókasafni til að nemendur ættu betri möguleika á að finna hvar þeirra áhugasvið liggur. Að öllu þessu sögðu er rétt að taka fram að innan bókasafns- og upplýsingafræðinnar fer þó fram gott og framsækið starf. Internetið, upplýsingaleiðir og vefstjórnun eru allt fög sem lofa góðu hvað varðar fræðilega og hagnýta þekkingu og gömul og gróin fög eins og lyklun, skráning og flokkun úreldast ekki. Námið er á réttri leið, það þarf bara að bjóða upp á meira val innan deildarinnar svo nemendur komi sem best undirbúnir út á starfsvettvang þann er bíður. Andrea Ævarsdóttir Eva Ósk Ármannsdóttir Sigríður Björk Einarsdóttir nemendur á þriðja ári í bókasafns-og upplýsingafræði Þróun eða stöðnun?

x

Fregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.