Fregnir - 01.10.2009, Blaðsíða 31
FREGNIR. Fréttabréf Upplýsingar - Félag bókasafns- og upplýsingafræða
34. árg. - 2. tbl. 2009 31
Alþjóðlegt
Christina Tovoté ræddi þá hugmynd að sameina námskeiðið TTT – Training The Trainers sem haldið
hefur verið á vegum EFIL – European Forum for Information Literacy m.a. á Spáni, Tyrklandi og
Eistlandi, við sumarskóla sem haldinn yrði á Grænlandi í framtíðinni. Við bíðum eftir svari frá
UNESCO sem fjármagnar verkefnið. Næsta heimsráðstefna um upplýsingalæsi verður trúlega haldin
á Indlandi.
Önnur mál
Breytingar í stýrihóp NordINFOLIT eru þær að Anne Cathrine Trumpy frá Det Biovidenskabelige
Fakultetsbibliotek, Københavns Universitet, hefur tekið við af Tinu Pipa. Vígdis Bjarnadottir frá
Førøya Landsbókasavn situr í stað Arnbjørn Dalsgaard sem sinnir öðrum verkefnum í ár. Christina
Tovoté, sem hefur verið formaður stýrihópsins frá upphafi, fer á eftirlaun 1. apríl 2010 og mun Karin
Jönsson frá Lunds Universitetsbibliotek, Samhällsvetenskaplig fakultet, koma í hennar stað.
Astrid Margrét Magnúsdóttir
fulltrúi Íslands í NordINFOLIT
og forstöðumaður upplýsingasviðs Háskólans á Akureyri