Fréttablaðið - 16.11.2017, Page 4
FRAKKLAND Airbnb-heimagistingin
hefur ákveðið að frá og með 2018
megi ekki leigja út heilar íbúðir í
fjórum hverfum miðborgar Parísar
lengur en í 120 nætur á ári. Ákvörð-
unin var tekin eftir að borgaryfir-
völd höfðu margsinnis hert reglur
um útleigu til þess að takmarka
brask.
Í mörgum stórborgum Evrópu
hafa braskarar keypt íbúðir mið-
svæðis til þess að leigja ferðamönn-
um. Afleiðingarnar eru sagðar snar-
hækkun íbúðaverðs. – ibs
Airbnb boðar
takmarkanir á
útleigu í París
Koma á í veg fyrir brask með íbúðir í
París. NORDICPHOTOS/AFP
HeiLbRigðismáL Íslendingar á bið-
lista eftir nýrnaígræðslu í gegnum
norrænt samstarf um líffæragjafir
voru settir í forgang eftir fund líf-
færaígræðsluteymis Landspítalans
með fulltrúum Sahlgrenska-háskóla-
sjúkrahússins í Svíþjóð í nóvem-
ber í fyrra. Níu aðgerðir hafa verið
gerðar það sem af er þessu ári sem er
met. Ófremdarástand var í þessum
málaflokki í fyrra þar sem aðeins
ein aðgerð hafði verið framkvæmd
þegar teymið óskaði eftir fundi með
fulltrúum sjúkrahússins til að krefj-
ast skýringa. Það skilaði sér í því að
algjör viðsnúningur hefur orðið í ár.
„Við vorum óánægð með hversu
fá nýru við vorum að fá úti í Gauta-
borg því við höfðum verið að gefa
heilmikið af nýrum í verkefnið. Þeir
brugðust mjög vel við og árangurinn
talar sínu máli,“ segir Runólfur Páls-
son, yfirlæknir nýrnalækninga og
umsjónarmaður líffæraígræðslu-
teymis Landspítalans.
„Allir íslensku einstaklingarnir á
biðlistanum voru settir í forgang og
það hafa verið níu nýrnaígræðslur frá
látnum gjöfum í Gautaborg á þessu
ári. Á sama tíma hafa verið átta frá
lifandi gjöfum þannig að þetta hafa
verið 17 ígræðslur alls og það er það
mesta sem nokkurn tímann hefur
verið á einu ári.“
Samstarfið sem um ræðir er undir
merkjum ígræðslustofnunarinnar
Scandiatransplant sem starfrækir líf-
færabanka. Líffæri sem Íslendingar
gefa fara í bankann og ígræðsla fer
oftast fram á Sahlgrenska-háskóla-
sjúkrahúsinu í Svíþjóð, sem er sam-
starfssjúkrahús verkefnisins.
Að meðaltali höfðu Íslendingar
verið að fá um fimm til sex nýrna-
ígræðslur á ári í gegnum samstarfið,
átta árið 2015 en síðan aðeins eina
í fyrra. Fundurinn virðist því hafa
verið mikilvægur vendipunktur.
„Samt sem áður eru enn ellefu
Íslendingar á biðlistanum í Gauta-
borg sem sýnir hvað þörfin er mikil.
Svo erum við með í kringum 15
einstaklinga í undirbúningi fyrir
nýrnaígræðslu frá lifandi gjafa sem
gerðar eru á Landspítalanum. Þannig
að það er eins gott að það var hægt
að bregðast við þessu.“ – smj
Íslenskir nýrnasjúklingar settir í forgang og níu fengið ígræðslu
9780997895810_GNSRG_FIN_6.0_12_6_16.indd 2 12/6/16 9:42 AM
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15
Bók sem hefur slegið í gegn um
allan heim – loksins á íslensku!
Sögur sem efla, fræða
og fylla okkur bjartsýni
– fyrir alls konar stelpur „Kvöldsögur sem skipta prinsessum út
fyrir konur sem breyttu heiminum.“
HUFFINGTON POS T
FRÁBÆRAR FYRIRMYNDIR
KATAR Arabísku flugfélögin Qatar
Airways og Emirates, sem fara ört
stækkandi, sárvantar flugmenn. Þau
reyna nú að lokka danska flugmenn
til sín með háum greiðslum.
Samkvæmt frétt á vef Berlingske
getur danskur flugmaður sem flytur
til Sameinuðu arabísku fursta-
dæmanna eða Katar þénað yfir
eina milljón danskra króna á ári
skattfrjálst eða um 16,5 milljónir
íslenskra króna.
Fulltrúi félags danskra flugmanna
segir danska flugmenn duglega og
að mikil eftirspurn sé eftir þeim.
Mörg hundruð danskir flugmenn
séu við störf í fjölda landa. – ibs
Flugfélög á
hausaveiðum
sAKAmáL Maður sem bakkaði yfir
kanadíska konu við Jökulsárlón í
ágúst 2015, með þeim afleiðingum
að hún lést samstundis, segist hafa
sýnt fyllstu aðgát á vettvangi. Aðal-
meðferð í máli mannsins hófst í gær
í Héraðsdómi Austurlands. Hann er
ákærður fyrir manndráp af gáleysi.
Í vitnisburði sínum sagði maður-
inn að hann hefði varla getað sýnt
meiri aðgát en hann gerði. Sam-
starfsmaður hans tók undir þetta
og voru þeir sammála um að ekkert
óhefðbundið hefði verið við hvernig
bátnum var ekið.
Báturinn sem um ræðir er svo-
kallaður hjólabátur sem bæði ekur
á landi og siglir á sjó. Slysið varð
á malarplani við lónið. Í skýrslu-
töku sagði maðurinn að hann hefði
aldrei orðið var við fólk í kringum
bátinn, en bakkmyndavél bátsins
var biluð þennan dag.
Þá á starfsmaður á landi að ganga
með bátnum og gæta þess að enginn
vegfarandi sé nálægur. Sá starfs-
maður sagðist fyrir dómi ekki geta
staðfest hvort hann hafi séð allt sem
var fyrir aftan bátinn.
Eiginmaður konunnar sem lést
gaf skýrslu í gegnum síma. Hann
segir að litlu hafi munað að bátur-
inn færi einnig yfir sig. Maðurinn,
konan og sonur þeirra biðu við
lónið eftir að þyrla þeirra kæmi
aftur á staðinn.
„Allt í einu bakkaði farartækið
á okkur. Þetta gerðist svo hratt,“
sagði eiginmaðurinn. „Konan mín
lá á maganum og beint fyrir aftan
dekkið sem fór svo yfir hana. Síð-
ustu orðin hennar voru „Hvað er
að gerast? Guð minn góður,“ og svo
fór dekkið yfir hana og hún dó sam-
stundis.“
Sonur hjónanna hljóp fram fyrir
bátinn og gerði skipstjóra viðvart
með því að berja í bátinn og hrópa
en eins og áður segir lést konan
samstundis.
Þyrluflugmaðurinn sem flaug
með kanadísku fjölskylduna þenn-
an dag sagði fyrir dómi að á malar-
planinu, þar sem slysið varð, sé oft
mikið af fólki. „Fólk er að labba
þarna þvers og kruss um allt, þetta
er algjört kaos.“ Eftir slysið hefur
borðum verið komið fyrir og malar-
planið því afgirt en þó eru dæmi um
að fólk virði ekki takmarkanir og
gangi enn um planið. – vdó
Skipstjóri hjólabátsins segist
ekki hafa getað sýnt meiri aðgát
Skipstjóri hjólabáts, sem varð valdur að dauða konu við Jökulsárlón, og starfsmaður á malarplani við lónið
segja ekkert óeðlilegt við það hvernig bátnum var ekið. Aðalmeðferð í málinu heldur áfram í dag en maður-
inn er ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Eiginmaður og sonur konunnar voru hætt komnir.
Slysið átti sér stað við Jökulsárlón í ágúst 2015. Skipstjórinn var ákærður fyrir manndráp af gáleysi. FRéTTAblAðIð/PJeTuR
Fólk er að labba
þarna þvers og kruss
um allt, þetta er algjört kaos.
Þyrluflugmaður sem flaug með
kanadísku fjölskylduna
Runólfur
Pálsson.
1 6 . N ó v e m b e R 2 0 1 7 F i m m T U D A g U R4 F R é T T i R ∙ F R é T T A b L A ð i ð
1
6
-1
1
-2
0
1
7
0
5
:4
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
B
-5
F
4
4
1
E
3
B
-5
E
0
8
1
E
3
B
-5
C
C
C
1
E
3
B
-5
B
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K