Fréttablaðið - 16.11.2017, Side 12
699 kr.pk.
Klementínur 2,3 kg, Spánn
Ódýrt
Hreyfing er lífsgæði
Frelsið til að hreyfa sig er uppspretta orku
og lífsgleði. Njóttu þess alla ævi.
Verndar liði, bein og brjósk
Inniheldur aðeins náttúruleg efni
Kollagenrík blanda úr sæbjúgnaskráp
Bætt með D3- og C-vítamíni
Túrmerik og mangan fyrir aukna virkni
LIÐIR - liðkandi fiskprótínblanda frá PROTIS
Heilbrigðismál Tilefni söfnunar-
innar er að Hjartavernd hefur þróað
nýjan áhættureikni sem greinir
æðkölkunarsjúkdóm á frumstigi á
mun nákvæmari hátt en hefur verið
mögulegt hingað til. Söfnunarfénu
verður varið til að mæta kostnaði
við innleiðingu á áhættureikninum
á heilsugæslustöðvum landsins.
Hjartavernd hefur unnið í nær 15
ár að rannsóknum sem hafa leitt
til þessa nýja reiknis. Fleiri þúsund
manns leita til Hjartaverndar á ári
hverju, bæði karlar og konur og er
meðalaldur þeirra um fimmtíu ár.
Þeir sem komu voru að meðaltali
með hærri áhættu en jafnaldrar
borið saman við gögn Hjartavernd-
ar. Möguleg skýring gæti verið að
þeir sem fara í áhættumat hafa oft
ættarsögu um hjarta- og æðasjúk-
dóma. Ættarsaga er þekktur áhættu-
þáttur en aðra áhættuþætti þarf líka
að taka með í myndina og hafa í
huga að líkur á að fá hjarta- og æða-
sjúkdóma eru einstaklingsbundnar.
Eini sinnar tegundar í heiminum
„Okkar nýi áhættureiknir er sá eini
sinnar tegundar sem við vitum um
í heiminum í dag. Hann var þróaður
í tengslum við nokkrar heilsugæslu-
stöðvar á höfuðborgarsvæðinu og
hefur verið prófaður þar og virkar
vel. Rannsóknin okkar byggir á
7.000 manna þýði. Með áhættu-
reikninum er hægt að finna stóran
hluta einstaklinga sem hafa æða-
kölkun í hálsslagæðum en engin
önnur einkenni æðakölkunar. Nú
er tími til að fara að vinna að inn-
leiðingu hans um land allt, og því
förum við af stað í söfnunarátakið
til að ná því. Markmiðið er að allir
heilsugæslulæknar geti með einföld-
um hætti greint þá sem eru í áhættu
og gert viðeigandi ráðstafanir. Þeir
sem eru ekki í augljósum áhættu-
hópi fá oft klapp á bakið um að allt
sé í lagi þó þeir séu með dulda æða-
kölkun sem getur á endanum dregið
menn til dauða,“ segir Vilmundur
Guðnason, prófessor og forstöðu-
læknir Hjartaverndar.
Grípum fyrr inn í og björgum
mannslífum
Á hverju ári deyja nær 200 einstakl-
ingar ótímabærum dauða vegna
hjartaáfalla. Meira en 1.000 einstakl-
ingar lifa af áfall eða gangast undir
lífsbjargandi æðaaðgerðir. „Unnt
hefði verið að koma í veg fyrir umtals-
verðan hluta þessara afleiðinga hefði
æðakölkunin greinst fyrr. Þetta þýðir
að í dag eru um 25.000 manns eldri
en 50 ára lifandi með fyrirbyggjan-
legar afleiðingar æðakölkunar með
tilheyrandi lífsgæðaskerðingu og
vægast sagt miklum kostnaði fyrir
samfélagið. Helmingur þessara ein-
staklinga er yngri en sjötugur.“
„Hér á landi eru gerðar 700-800
kransæðaútvíkkanir árlega og allt
að 150 hjáveituaðgerðir sem eru
vissulega lífsnauðsynlegar. Stærsti
hluti þessara áfalla er fyrirbyggjan-
legur með greiningu og inngripi.
Því fyrr sem við berum kennsl á
einstaklinga sem eru í hættu þá er
auðséð að minnka má afleiðing-
arnar. Segjum að fækka mætti hjá-
veituaðgerðum í 50 á ári sem yrði
gríðarlegur sparnaður fyrir heil-
brigðiskerfið. Við viljum vissulega
að 50 á ári séu ekki hámarksfjöldi
aðgerða vegna skorts á fjármunum
heldur að 50 á ári sé vegna þess að
það eru ekki fleiri einstaklingar
sem þurfa þess. Hinn hefðbundni
áhættureiknir finnur auðveldlega
þá sem eru í mikilli hættu á að fá
kransæðaáfall á næstu 10 árum.
Staðreyndin er hins vegar sú að lang-
flestir einstaklingar sem hafa æða-
kölkun og fá afleiðingar hennar eins
og hjartaáfall, heilaáfall eða verða að
fara í lífsbjargandi aðgerðir eins og
kransæðahjáveituaðgerð eða blásn-
ingu hafa lága eða miðlungsáhættu á
að fá áfall og oftast enga áþreifanlega
áhættuþætti sem unnt er að ráðast á.
Það getur því verið dauðans alvara
að fá klapp á bakið og fullvissu um
að allt sé í lagi. Markmið okkar er að
bjarga mannslífum og fara í aðgerðir
sem draga úr líkum á hjartaáföllum
í framtíðinni,“ segir Vilmundur
Guðnason og hvetur landsmenn til
að taka þátt í söfnuninni því að mál-
efnið er öllum skylt.
Um Hjartavernd
Hjartavernd, landssamtök voru
stofnuð árið 1964. Rannsóknar-
stöð Hjartaverndar sem er 50 ára í
ár hóf starfsemi sína þremur árum
síðar eða árið 1967 með mjög víð-
tækri faraldsfræðilegri rannsókn,
Hóprannsókn Hjartaverndar, þar
sem áhersla var lögð á að finna
helstu áhættuþætti hjarta- og
æðasjúkdóma meðal Íslendinga.
Rannsóknin hefur staðið yfir í 50
ár og hefur náð til rúmlega þrjátíu
þúsund Íslendinga. Margar nýjar
rannsóknir hafa tengst henni eins og
áhættuþáttakönnun Hjartaverndar
sem náði til 7.000 karla og kvenna
og nýi áhættureiknirinn byggir á.
Þessar rannsóknir hafa orðið grund-
völlur þekkingar hérlendis á helstu
áhættuþáttum kransæðasjúkdóma.
Hjartavernd hefur frá upphafi lagt
áherslu á að koma niðurstöðum úr
rannsóknum sínum til almennings
og heilbrigðisstarfsfólks. Frekari
upplýsingar um Hjartavernd er að
finna á vefsíðunni www.hjarta.is.
astahrafnhildur@frettabladid.is
Hjartavernd vill finna fólk í lífshættu
„Finnum fólk í lífshættu – útrýmum ótímabærum hjarta- og æðaáföllum“ er yfirskrift söfnunarátaks Hjartaverndar. Því verður fylgt úr
hlaði á föstudaginn í opinni sjónvarpsútsendingu á Stöð 2. Markmiðið er að innleiða áhættureikni á heilsugæslustöðvum landsins.
Vilmundur Guðnason er forstöðulæknir Hjartaverndar. Fréttablaðið/anton
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F i m m T U D A g U r12 F r é T T i r ∙ F r é T T A b l A ð i ð
1
6
-1
1
-2
0
1
7
0
5
:4
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
B
-9
5
9
4
1
E
3
B
-9
4
5
8
1
E
3
B
-9
3
1
C
1
E
3
B
-9
1
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K