Fréttablaðið - 16.11.2017, Síða 22
Það er alveg kolröng niðurstaða
að kenna krónunni um hrun og
okurvexti hérlendis, eins og Baldur
Pétursson viðskiptafræðingur gerir
í grein í Fréttablaðinu fyrsta nóv-
ember 2017 á bls. 18 og ber heitið:
„Kostnaðarsamur og hættulegur
gjaldmiðill“, þó alls ekki skuli gert
lítið úr hve stórar fjárhreyfingar til
og frá landinu geta valdið hér mikl-
um skaða með skaðlegum sveiflum í
gengi íslensku krónunnar gagnvart
erlendum gjaldmiðlum með bylgju-
hreyfingum um allt hagkerfið og
ýmsum kostnaði fyrir markaðsaðila,
heimilin og fyrirtækin, stofnanir og
hagsmunasamtök, stjórnvöld og
sveitarstjórnir.
Slíkar skaðlegar hreyfingar jafn-
gilda efnahagsárás á okkar þjóðar-
gjaldmiðil, hagkerfi, land og þjóð
og þarf því að taka á samsvarandi,
sbr. t.d. þjóðhagsvarúðartæki Seðla-
bankans sem loksins loksins varnar-
viðbúnað gegn slíkum árásum sem
valda miklum óþarfa kostnaði.
Baldur nefnir ýmsar afleiðingar
hrunsins þegar krónan hrundi
niðrúr en segir fátt um orsakir, þ.e.
viðskiptalega greiningu skortir, því
það er gjaldeyrisskorturinn í kjölfar
siðblindra viðskiptaákvarðana sem
fellir bankakerfið með þeim hrika-
legu afleiðingum sem flestir þekkja,
ekki krónan.
Bankaúlfar og meðvirk stjórnvöld,
meðvirkir stjórnendur og meðvirkir
sérfræðingar komust upp með það í
allt of langan tíma að ofurskuldsetja
bankana í erlendum gjaldmiðlum,
einkum dollar og evru. Það er rót
bankahrunsins. Ósjálfbær skulda-
söfnun í erlendum gjaldeyri.
Icesave var glæfraleg tilraun til að
safna erlendum gjaldeyri með lof-
orði um hávexti til þess að greiða af
þessum erlendu ofurskuldum sem
að lokum námu um tífaldri eða tólf-
faldri þjóðarframleiðslu Íslands, eftir
því við hvaða forsendur er miðað.
Þegar greiningaraðilum erlendis
verða loksins ljós fyrir alvöru þessi
súperósköp, Lehmanbræður fallnir,
vafningasölubullið upplýst og veð-
köll dynjandi um alla jörð, þá er ein-
faldlega lokað lánalínum í erlendum
gjaldeyri á íslensku bankana og þar
á ofan lokað á ríkisvaldið og Seðla-
bankann af ríkissjóðum og seðla-
bönkum Evrópu, Bretlands og
Bandaríkjanna, sem átta sig á að á
Íslandi er greinilega alls ekki allt
eins og það á að vera; en bjóða ráð
og áfallahjálp með góðvild í fyrstu,
sem af einhverjum orsökum er ekki
þegin í einhverju efristéttarmikil-
mennskubrjálæðiskasti sem af og til
grípur landann.
Útlent fólk með viti treysti sér
sem sagt ekki lengur til að taka þátt
í þessu endemis bulli bankaúlfanna
undir staurblindu auga ríkisvaldsins
þar sem úlfarnir beinlínis gera út á
stærilætið, minnimáttarkennd, með-
virkni og vanþekkingu.
Af þessu leiddi gjaldeyrisskort til
að mæta erlendum skuldbindingum
sem í framhaldi eru gjaldfelldar og
þegar ljóst er að nægar greiðslur
verða ekki tiltækar né bakhjarl til
þrauta vara, þá falla bankarnir. Það
er ekki krónunni að kenna. Það er að
kenna ofurskuldsetningu í erlendum
gjaldmiðlum undir nefinu á með-
virkum eftirlitsaðilum, sérfræðing-
um, stjórnendum, embættismönn-
um og stjórnmálamönnum.
Þrælsfjötrar
Okurvaxtastigið hérlendis, með
þrælsfjötrum verðtryggingar á
íbúða lánum og námslánum, er ein-
faldlega siðblind viðskiptaákvörðun
sem ófögur birtingarmynd á skorti á
félagsþroska og kemur krónunni lítt
við í samhengi utanríkisviðskipta og
afleiddrar gengisskráningar þegar
lánað er í krónum, greidd eru af í
krónum vextir og afborganir og lánið
er ótengt erlendum gjaldmiðlum.
Ef spurt er af hverju við borgum
íbúðirnar okkar þrisvar og fjórum
sinnum í gegnum íbúða lánin, miðað
við önnur norræn ríki, borgum
framhaldsnámið okkar tvisvar og
þrisvar sinnum í gegnum náms-
lánin, borgum alls kyns jólasveina-
þjónustugjöld, innheimtugjöld,
stimpilgjöld, lántökugjöld og önnur
hvítflibbagjöld, þá er það vegna þess
að stjórnvöld, stórfyrirtæki, bankar
og lífeyrissjóðir hafa ríkisstyrkta ein-
okunaraðstöðu á fjármálamarkaði á
Íslandi. Löggilta einokunarverslun.
Einokunarverslun sem því miður
hefur verið og er enn gjörnýtt eins
og mögulegt er til þess að okra á
okkur viðskiptavinunum, ekki síst
í skjóli samfélagslegs heilaþvottar
sem ósjaldan vísvitandi þöggun og
sniðganga (sbr. núna málefnalegu
stjórnarmyndunarviðræðurnar),
órökstuddar fullyrðingar eða yfir-
borðsleg umfjöllun, hagsmuna-
tengdar úttektir, álit, o.fl., oft með
góðri hjálp nytsamra sakleysingja á
fjölmiðlunum og miklu víðar sem
aldrei virðast átta sig vel á þessari
þoku sem alltaf skal þyrlað upp sam-
stundis fegrað og blessað járntjald
og skjól þessari endemis einokunar-
verslun þegar landsmenn þora öðru
hvoru að mótmæla hástöfum þessu
óþolandi opinbera fjárhagslega ein-
elti sem hvergi fær þrifist í okkar
nágrannalöndum. Svo einfalt er það.
Ósjálfbær skuldsetning og
lögvarin einokunarverslun
Það hefur löngum verið mér undrunarefni hvað sumir eiga erfitt með að setja sig í
fótspor annarra – jafnvel mestu
gáfumenn. Ég ætla að nefna dæmi
um þetta.
Þann 17. ágúst sl. birtist grein
eftir Þorvald Gylfason í Fréttablað-
inu sem bar titilinn: „Rússahatur?
Nei, öðru nær.“ Hér fjallar Þorvald-
ur m.a. um viðtöl sem Oliver Stone
átti við Pútín Rússlandsforseta og
í því samhengi verður honum tíð-
rætt um þau orð Pútíns að eftir fall
Sovétríkjanna hefði sjöundi hver
Rússi skyndilega átt heima utan
Rússlands.
Nú hlýtur sú spurning að vakna,
hvort Þorvaldur Gylfason sé reiðu-
búinn til þess að skilja þetta vanda-
mál frá sjónarmiði Rússa – sé reiðu-
búinn til þess að setja sig í fótspor
þeirra. Dæmi hver fyrir sig – því
að orð prófessorsins í þessu sam-
hengi eru eftirfarandi: „En hvað
með það? Er það vandamál? Er
það vandamál í augum Þjóðverja
að sjöundi hver þýzkumælandi
maður býr í Austurríki og Sviss?“
Mann setur hljóðan við að lesa
þetta. Að viti Þorvalds Gylfa-
sonar og skoðanabræðra hans
eru Rússar slíkt annars flokks fólk
að það tekur því ekki einu sinni
að svara umkvörtunum þeirra
af neinni alvöru. Enda eru rök-
semdir prófessorsins ekkert annað
en þvaður og kjaftæði – af verstu
tegund. Austurríkismenn og Sviss-
lendingar eru ekki Þjóðverjar,
hafa aldrei verið Þjóðverjar[1] og
munu aldrei verða Þjóðverjar. Hins
vegar eru íbúar Austur-Úkraínu og
Krímskaga Rússar, hafa alla tíð
verið Rússar og munu alla tíð vera
Rússar.
Alvarlegasta ógnin við heims-
friðinn er þetta Rússahatur Vestur-
veldanna (BNA og ESB). Vegna þess
að ef „Við“ – þ.e. Vesturlandabúar
– getum aldrei sett okkur í fótspor
annarra þá skiljum við ekki 1) að
ef íbúar Vestur-Úkraínu eiga rétt á
því að ráða örlögum sínum sjálfir
og ganga í ESB – þá eiga íbúar Aust-
ur-Úkraínu líka rétt á því að ráða
örlögum sínum sjálfir og ganga
ekki í ESB heldur sameinast Rúss-
landi, 2) að aðfarir Rússa á Krím-
skaga voru ekki landvinningastríð,
heldur nauðsynleg ráðstöfun til
þess að tryggja Rússum yfirráðin
yfir Svartahafsflota sínum. Þetta
vita ekki þeir sem vilja ekki vita.
Og svo er það mál málanna:
Hvað mundi gerast ef „Við“ settum
okkur í spor Norður-Kóreumanna?
Jú – „Við“ mundum þá gera okkur
grein fyrir því að ráðamenn í
Norður-Kóreu eru fyrst og síðast
lafhræddir – eðlilega og ekki að
ástæðulausu. Þeir hafa komið sér
upp kjarnorkuvopnum til þess að
reyna að koma í veg fyrir að mesta
herveldi allra tíma geri innrás í
land þeirra. Þar af leiðir að það er
í rauninni minnsta mál að lægja
öldurnar á Kóreuskaga. Það eina
sem til þarf er að bjóða Norður-
Kóreumönnum frið; þ.e. að breyta
vopnahléinu í friðarsamning – og,
jú, svo líka hitt, að Bandaríkin og
Suður-Kórea hætti vopnaskaki
sínu við landmæri Norður-Kóreu.
Þessu er hægt að koma í kring
á einni viku. Vandamálið er að
Bandaríkjamenn vilja ekki frið.
En hvers vegna ekki? Hvers vegna
vilja Bandaríkjamenn ekki frið
á Kóreuskaganum? Jú – ástæðan
er sú að þeir vilja ekki setjast að
sáttaborði með „ómennunum“ í
Norður-Kóreu.
Mesta ógnin við friðinn stafar
alltaf af því viðhorfi sem telur sig
eiga einkarétt á mennskunni.
Alvarlegasta ógnin við heims-
friðinn er þetta Rússahatur Vestur-
veldanna (BNA og ESB)
[1] Ég undanskil árin 1938-45 sem
Austurríkismenn vilja helst gleyma.
Í fótspor annarra
Jónas Gunnar
Einarsson
viðskipta
fræðingur
Þór
Rögnvaldsson
ellilífeyrisþegi
Bankaúlfar og meðvirk
stjórnvöld, meðvirkir
stjórnendur og meðvirkir
sérfræðingar komust upp
með það í allt of langan tíma
að ofurskuldsetja bankana
í erlendum gjaldmiðlum,
einkum dollar og evru.
Það er rót bankahrunsins.
Ósjálfbær skuldasöfnun í
erlendum gjaldeyri.
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
K371 sófi
Fáanlegt í leðri og tauáklæði, margir litir
3ja sæta 2ja sæta og stólar
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Kíktu í heimsókn!
Opið virka daga kl. 10-18
Laugardaga 11-15
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Mosel
VIÐ BÚUM TIL
DRAUMASÓFANN ÞINN
900 útfærslur, engin stærðartakmörk
og 3.000 tegundir af áklæðum
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r22 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð
1
6
-1
1
-2
0
1
7
0
5
:4
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
B
-6
9
2
4
1
E
3
B
-6
7
E
8
1
E
3
B
-6
6
A
C
1
E
3
B
-6
5
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K