Fréttablaðið - 16.11.2017, Síða 28
Eyjamenn fyrstir til þess að leggja FH að velli í vetur
Alvöru hasar. Stórleikur FH og ÍBV í gær stóð algjörlega undir væntingum. Var frábær skemmtun og æsispennandi allt til enda. FH-ingar voru búnir að
vinna alla átta leiki sína í deildinni þar til í gær er þeir urðu að sætta sig við tap fyrir frábæru liði ÍBV sem sýndi sínar bestu hliðar. Fréttablaðið/ernir SArA á SkotSkónum
Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði
eitt marka Wolfsburg í gær er liðið
komst í átta liða úrslit
í Meistaradeild-
inni. Liðið gerði
þá 3-3 jafntefli
við Fiorentina
en vann einvígi
liðanna, 7-3. Sara
kom af bekknum á 70.
mínútu og var búin að skora aðeins
einni mínútu síðar. Glódís Perla Vig-
gósdóttir og stöllur hennar í sænska
liðinu Rosengård eru aftur á móti
úr leik eftir 0-1 tap fyrir Chelsea.
Chelsea vann rimmuna 4-0 saman-
lagt.
Undankeppni EM 2019
Slóvakía - Ísland 78-62
Stig Íslands: Helena Sverrisdóttir 22,
Hildur Björg Kjartansdóttir 9, Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir 9, Thelma Dís Ágústsdóttir
8, Emelía Gunnarsdóttir 4, Sandra Þrastar-
dóttir 4, Berglind Gunnarsdóttir 3, Þóra
Kristín Jónsdóttir 3.
Þetta var annar leikur Íslands í
undankeppninni og báðir hafa
tapast. Stelpurnar voru lengi vel inni
í leiknum en byrjuðu síðasta leik-
hlutann mjög illa og náðu aldrei að
koma til baka eftir það.
Nýjast
Í dag
17.50 Valur - ÍbV Sport 2
18.30 PGS rSM Classic Golfstöðin
19.00 Kr - Haukar Sport
19.00 lPGa CMe Globe Sport 4
Domino’s-deild karla:
19.15 Höttur - Keflavík Egilsst.
19.15 Kr - Haukar DHL-höllin
19.15 Stjarnan Þór ak. Ásgarður
19.15 Ír - Valur Hertz-h.
19.15 tindastóll - Þór Þ. Sauðárkr.
Olís-deild kvenna:
18.00 Valur - ÍbV Valshöll
19.30 Selfoss - Fjölnir Selfoss
Coca-Cola-bikar kvenna
afturelding - Haukar 15-22
Ír - Víkingur 34-27
HK, KA/Þór, Stjarnan, ÍBV, Fjölnir, ÍR og
Haukar eru komin í 8-liða úrslit.
Stjörnukonur Í tékklAndi
Stjarnan mætir í kvöld Slavia Prag
í síðari viðureign liðanna í 16-liða úr-
slitum Meistaradeildar
Evrópu kvenna.
Leikurinn fer fram
ytra en þeim fyrri
lauk með 2-1
sigri tékknesku
meistaranna á
Samsung-vellinum
í Garðabæ í síðustu viku.
Stjarnan getur orðið fyrsta íslenska
liðið til að komast í 8-liða úrslit
keppninnar eftir að núverandi fyrir-
komulag var tekið upp. Íslenskum
liðum hefur áður tekist að fara svo
langt í forverum keppninnar.
Golf „Ég skal fúslega viðurkenna
það, að ég sá þetta ekki fyrir í byrjun
árs en þetta er svo flottur árangur
hjá henni,“ segir Karen Sævars-
dóttir, sigursælasti kvennakylfingur
Íslands, um Ólafíu Þórunni Kristins-
dóttur en hún hefur leik á lokamóti
LPGA-mótaraðarinnar klukkan
15.20 að íslenskum tíma í dag.
Aðeins 82 efstu kylfingar móta-
raðarinnar fá boð í CME Group
Toure Championship eins og það
heitir á enskunni en það fer fram
á Flórída í Bandaríkjunum. Þeir
kylfingar sem komast á mótið eru
jafnframt öruggir með fulla aðild
að mótaröðinni á næsta ári.
„Það sem hún hefur gert svo vel
er að spila sig inn á mótin á loka-
metrunum. Það er bara frábært og
sýnir að þó okkur finnist skorið hjá
henni ekki alltaf það besta er það á
Hún kemur ekki lengur á óvart
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilar á lokamóti LPGA-mótaraðarinnar sem hefst í dag. Staðfesting á frábærri
spilamennsku á þessu ári. Ungur kylfingur vann lokamótið í fyrra þannig að allt getur gerst.
meðal þeirra bestu á hverjum tíma.
Hún er að spila vel undir pressu en
það eru margir sem eiga það til að
brotna undan pressunni. Þetta er
þannig mót að ef hún kæmist ekki
fengi enginn annar boð. Þetta er
bara fyrir þær bestu,“ segir Karen
sem mun lýsa mótinu á Golfstöð-
inni.
bara á bleiku skýi
Ólafía er nú þegar búin að spila á
25 mótum á mótaröðinni, þar af
þremur af fimm risamótum ársins
sem er svakalega gott fyrir nýliða.
„Hún hefur verið svo öflug undir
lokin eins og núna á síðustu mót-
unum þar sem hún keppti á fjórum
af fimm mótunum sem voru í Asíu.
Það er alveg frábært og ég hef bara
mikla trú á henni núna,“ segir Karen
sem þorði ekki að vera svona bjart-
sýn í byrjun árs.
„Ef þú hefðir spurt mig þegar
þetta allt saman byrjaði hvort Ólafía
væri að fara að spila í Asíusveiflunni
og á lokamótinu hefði ég átt erfitt
með að segja það. Ekki nema bara
svífandi á einhverju bleiku skýi. En
hér er hún, stjarnan okkar, og það
er bara frábært. Hún er að spila með
bestu stelpunum.“
Ólafía hefur verið að spila undir
mikilli pressu undanfarið og staðið
sig vel. Mun hún njóta sín undir
minni pressu eða er hún orðin vön
mikilli pressu, að mati Karenar?
„Bæði og. Maður vill alltaf vera
hógvær með væntingarnar en mér
finnst það afrek þó að hún verði í
neðri hlutanum,“ segir Karen.
Þorir að vona
Alls eru 250 milljónir íslenskra króna
í verðlaunafé á lokamóti LPGA-
mótaraðarinnar og sigurvegarinn
tekur heim 65 milljónir. Þetta er
hæsta verðlaunaféð á mótaröðinni
ef undan eru skilin risamótin fimm.
Alls hefur Ólafía þénað 22 milljónir
króna í verðlaunafé á mótunum 25
og hún getur bætt ríkulega í sarpinn
um helgina gangi allt vel. Karen stillir
væntingum sínum í hóf en bendir á
eina staðreynd um mótið.
„Í fyrra vann þetta tvítug ensk
stelpa sem heitir Charley Hull. Það
var og er hennar eini sigur á LPGA-
mótaröðinni. Þetta er stelpa sem
hefur bara slegið í gegn í Solheim-
bikarnum en er engin stórstjarna
þannig að augljóslega er allt hægt,“
segir Karen.
„Ég er alls ekki að segja að Ólafía
sé endilega að fara að vinna mótið
en ég er hætt að kippa mér upp við
það þegar hún stendur sig vel. Hún
kemur mér ekki lengur á óvart.
Maður verður bara að bíða spenntur
þar til þetta hefst og vona það besta
en það er allt hægt“ segir Karen
Sævars dóttir. tomas@365.is
Ég er alls ekki að
segja að Ólafía sé
endilega að fara að vinna
mótið en ég er hætt að kippa
mér upp við það þegar hún
stendur sig vel.
Karen Sævarsdóttir
olís-deild karla
FH-ÍbV 33-34
FH: Gísli Kristjánsson 7, Einar Eiðsson 7,
Óðinn Ríkharðsson 5, Ásbjörn Friðriksson 4.
ÍbV: Kári Kristján Kristjánsson 10, Theodór
Sigurbjörnsson 10, Agnar Smári Jónsson 4,
Róbert Hostert 4, Sigurbergur Sveins 3.
efst
FH 16
Valur 15
ÍBV 14
Haukar 13
Stjarnan 11
Selfoss 10
neðst
Fram 8
Afturelding 7
ÍR 6
Fjölnir 3
Víkingur 3
Grótta 2
Full búð af
nýjum vörum!
Verið velkomin í Verslun Guðsteins, Laugavegi 34
Síðan 1918
1 6 . n ó v E M b E r 2 0 1 7 f I M M T U D A G U r28 S p o r T ∙ f r É T T A b l A ð I ð
sport
1
6
-1
1
-2
0
1
7
0
5
:4
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
B
-A
4
6
4
1
E
3
B
-A
3
2
8
1
E
3
B
-A
1
E
C
1
E
3
B
-A
0
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K