Fréttablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 36
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: AFS á Íslandi Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Árið 1957, þegar Elvis Presley var upp á sitt besta, Hand-knattleikssamband Íslands
var stofnað, Brekkukotsannáll
Halldórs Laxness kom út og Pálmi
Gestsson leikari fæddist, voru
AFS samtökin stofnuð á Íslandi.
Alþjóðasamtök AFS eru raunar
mun eldri en svo því það voru
bílstjórar sjúkrabíla í fyrri heim-
styrjöldinni sem stofnuðu þau
upphaflega. Í grunninn eru AFS
samtök sjálfboðaliða sem trúa
því að menningarlæsi sé lykillinn
að heimsfriði. Hvorki meira né
minna.
En það hefur margt breyst á 60
árum og að svo mörgu leyti. Það er
í raun ógjörningur að telja það upp
hér. Það er þó enn sem fyrr þetta
sama markmið sem drífur AFS
áfram og þörfin líklega aldrei meiri
en nú. Það sem ég er einna stoltust
af í starfi samtakanna hér á Íslandi,
fyrir utan að eiga frábæran hóp
sjálfboðaliða, dásamlegt starfsfólk
og þann kærleika sem einkennir
samtökin, þá er það sú staðreynd
að við vöndum okkur við að hafa
fjölbreytni í sendingu og hýsingu,
þ.e. að nemarnir okkar íslensku fari
til sem flestra landa og þeir nemar
sem við tökum að okkur komi frá
sem flestum löndum. Þannig kynn-
umst við best umheiminum og
aukum sannarlega skilning á milli
menningarheima.
Í tilefni af þessum 60 viðburða-
ríku árum AFS á Íslandi stöndum
við fyrir hátíðahöldum í Perlunni
þann 2. desemer nk. og hvet ég alla
þá sem tengst hafa samtökunum
einhverjum böndum að skrá sig
til leiks í gegnum Facebook-síðu
AFS á Íslandi. Ég hlakka óskaplega
mikið til að sjá sem flesta AFS-ara
samankomna til að fagna þessum
stóra áfanga!
AFS á Íslandi 60 ára
AFS eru alþjóðleg, sjálfstæð félagasamtök sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni.
AFS er opið samfélag skipti-
nema, fjölskyldna og sjálfboðaliða
sem vinna markvisst að því að
tengja saman menningarheima.
Samtökin bjóða upp á námstæki-
færi tengd menningarlæsi þar sem
hægt er að öðlast þá þekkingu,
færni og skilning sem þarf til að
vinna að réttlátari og friðsamari
heimi.
Samtökin bjóða upp á fjölbreytt
skiptinám í yfir 40 löndum, víðs-
vegar um heim:
l Sumarnámskeið (13-18 ára)
l 3 mánaða dvöl (15-18 ára)
l Hálfsárs dvöl (15-18 ára)
l Heilsárs dvöl (15-18 ára, 18+)
Fjölbreytt flóra sjálfboðaliða tekur
þátt í skemmtilegu starfi og gefst
tækifæri til að efla leiðtogafærni með
raunþjálfun og námskeiðum, koma
á fót samfélagsverkefnum og láta
til sín taka. AFS vinnur einnig með
skólum við að þróa þvermenningar-
legar vinnustofur, bekkjaskipta-
heimsóknir og margs konar viðburði
sem auðga allt skólasamfélagið.
Þar sem AFS er ekki einkafyrir-
tæki er aldrei greiddur út arður í
neinu formi og allir fjármunir fara
því í verkefni sem stuðla að því að
auka skilning á milli menningar-
heima.
Heimurinn bíður þín!
Í tilefni af 60 ára afmæli AFS verður blásið til veislu í Perlunni laugar-
daginn 2. desember kl. 20.00. Nú er kjörið tækifæri til að mæla sér mót
við árganginn sinn eða hitta gamla vini úr starfsemi AFS og rifja upp góða
tíma! Miðaverð er 4.000 kr. á mann og boðið verður upp á léttar veitingar.
Skráning fer fram á Facebook-síðu AFS á Íslandi og þarf hún að berast
fyrir 20. nóvember.
Afmælishátíð í Perlunni
Halldóra Guðmundsdóttir, formaður AFS.
Rafræn
Nafnleysa
Skráðu þig á póstlista
AFS og fáðu fréttabréf-
ið okkar, Nafnleysu,
sent í tölvupósti!
Skráning á
info-isl@afs.is eða
www.nafnleysa.org
Haukur og Agnes höfðu bæði mikla ánægju af því að verða hluti af nýju samfélagi. MYND/STEFÁN
Haukur Harðarson var 16 ára þegar hann fór til Minne-sota í Bandaríkjunum árið
2003 og Agnes Hjaltalín Andra-
dóttir var 17 ára þegar hún fór út
til Úrúgvæ árið 2016. Þegar Haukur
fór út voru samfélagsmiðlar ekki
til, en nú er öldin önnur. Þau nutu
þess samt bæði að verða hluti af
nýju samfélagi og telja að það sé
hollt og gott að skilja gamla lífið
eftir heima og sökkva sér í eitthvað
nýtt.
Stórkostlegt og frábært
„Þetta var í einu orði sagt stór-
kostlegt ár og ég endaði hjá líflegri
og yndislegri fjölskyldu,“ segir
Haukur. „Þar sem ég hafði æft fót-
bolta í meira en 10 ár var ég, hægri
bakvörður úr KR, allt í einu besti
sóknarmaður á svæðinu og vakti
athygli fjölmiðla. Það var algjör-
lega ný tilfinning. Þetta ár var allt
ótrúlega óraunverulegt og áhyggju-
laust.“
Agnes fór til Úrúgvæ til að upp-
lifa eitthvað nýtt. „Ég valdi Úrúgvæ
af því að mig langaði að læra
spænsku og enginn vissi neitt um
landið. Þetta er líka fyndið nafn,“
segir hún létt. „Þetta var frábært. Ég
fékk bestu fjölskylduna í Úrúgvæ
og var ótrúlega heppin.“
Engir samfélagsmiðlar
„Þegar ég var úti voru engir sam-
félagsmiðlar og ég var ekki með
síma á mér,“ segir Haukur „Ég man
að ég þurfti að kaupa mér síma-
kort með mílulangri talnarunu til
að hringja heim og maður gerði
það í mesta lagi einu sinni í viku.
Svo talaði ég við vin minn sem var
líka í skiptinámi annars staðar í
Bandaríkjunum kannski einu sinni
í viku. Þetta voru einu samskiptin
sem maður hafði á íslensku.
Annars var maður bara hluti af
þessu samfélagi. Þetta var þitt líf
þarna og áreitið var mikið minna
en ég hugsa að það sé í dag. Ég get
ímyndað mér að í dag sé Ísland
miklu nær manni. Það er alltaf allt
í beinni. Þú varst bara þarna og
fékkst frið til þess, sem var rosalega
þægilegt.
Ég man að ég hélt úti bloggsíðu
á þessum tíma, bæði fyrir mig og
aðra. Það var aðallega til að leyfa
fólki að fylgjast með mér,“ segir
Haukur. „Maður skrifaði heilu rit-
gerðirnar allt árið því það var svo
mikið á seyði. Svo skrifaði ég eitt
bréf sem bróðir minn las upp fyrir
fjölskylduna á aðfangadagskvöld.“
Hefði viljað meiri einangrun
Agnes segir að hún hafi hringt
heim að minnsta kosti einu sinni í
mánuði. „Mamma vildi það og svo
átti ég líka nýfædda systur þegar
ég fór út, sem var auka ástæða til
að hafa samband,“ segir hún. „En
svo á ég bæði fjölskyldu hér og í
Danmörku svo ýmis skyldmenni
vildu tala við mann. Maður var
bara að reyna að lifa sínu lífi þarna
úti en svo vildi fólkið heima alltaf
sjá hvað maður var að gera. Það
var indælt og auðvitað er æðislegt
að geta haft samband, en þetta
var stundum svolítið erfitt þegar
maður var að reyna að einbeita sér
að lífinu úti.“
„Ég hefði miklu frekar viljað gera
þetta þegar maður hringdi kannski
bara á jólum og sendi kannski
einhver bréf og búið,“ segir Agnes.
„Þá er þetta miklu meira alvöru. Ég
hefði viljað vera meira einangruð.
Ég er samt örugglega í miklum
minnihluta með þá skoðun.
En þetta er bara eins og með
samskipti á netinu yfirhöfuð,
þetta er mjög mikill kostur og
ókostur,“ segir Agnes. „Það var
mjög skemmtilegt að fara einn út,
verða hluti af samfélaginu þar og
vera ekkert að að pæla í því sem er
að gerast heima hjá Íslandi.“
Lærðu mikið
Haukur og Agnes segjast bæði
mæla með AFS-skiptinámi fyrir
alla. „Maður lærir svo ótrúlega
margt,“ segir Haukur. „Ég lærði
æðruleysi, ég lærði að meta Ísland
og það var frábært að kynnast
fólkinu úti. Svo er ótrúlega gaman
að verða góður í ensku. Það er um
að gera að drífa sig út.“
„Það þurfa eiginlega allir að upp-
lifa þetta,“ segir Agnes. „Ég mæli
með að fara út úr lífinu á svona
fimm ára fresti. Fara eitthvert
annað, svo maður sjái lífið frá öðru
sjónarhorni. Það er mjög hollt.
Ég lærði auðvitað spænsku en ég
lærði líka betur að vera ég sjálf.“
Það þurfa eiginlega
allir að upplifa
þetta. Fara eitthvert
annað, svo maður sjái
lífið frá öðru sjónarhorni.
Það er mjög hollt. Ég
lærði auðvitað spænsku
en ég lærði líka betur að
vera ég sjálf.
AFS á Íslandi
býður upp á
skiptinám í yfir
40 löndum
2 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . N óV E M B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U RAFS Á ÍSLANDI
1
6
-1
1
-2
0
1
7
0
5
:4
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
B
-6
4
3
4
1
E
3
B
-6
2
F
8
1
E
3
B
-6
1
B
C
1
E
3
B
-6
0
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K