Fréttablaðið - 16.11.2017, Síða 37
Jóhanna Gréta Hafsteins-
dóttir fór til Ítalíu 2014
Ég fór í skiptinám innan Evrópu í eina skólaönn í gegnum AFS-prógramm sem
kallast ECTP. Það er mikið á því
að græða þótt það sé bara þrír
mánuðir. Fyrir mér var þetta svo
sannarlega betra en ekki neitt.
Á svo stuttum tíma nær maður
kannski ekki tungumálinu full-
komlega en reynslan sem ég fékk
út úr því að standa á eigin fótum
og kynnast nýju fólki er dýrmæt.
Ég bjó heima hjá ítalskri fjölskyldu
og sótti skóla með jafnöldrum
mínum. Í enda dvalarinnar er farið
á stórt sameiginlegt námskeið um
Active Citizenship sem haldið er í
Brussel. Maður fær því að heim-
sækja tvö lönd. Á námskeiðinu
hittast allir ECTP-nemarnir víðs
vegar að úr heiminum og læra
hvernig má verða virkari í sam-
félaginu og leggja sitt af mörkum.
Við fengum að ferðast um Brussel
og skoðuðum Evrópuþingið, stóra
fundarsalinn og safn um Evrópu-
sambandið. Þetta er hreinlega
besta ákvörðun sem ég hef tekið og
ég mæli hiklaust með þessu.“
Hverjir eru kostir ECTP?
Hollvinir AFS á Íslandi er styrktarsjóður sem stofn-aður var árið 2013 með það
að markmiði að styrkja nemendur
til þátttöku í nemendaskiptum
AFS. „Styrkveitingar Hollvina
skipta suma einstaklinga sem
koma frá efnalitlum heimilum afar
miklu, en einnig eru veittir styrkir
til nemenda sem hafa sýnt framúr-
skarandi árangur í námi, listum
eða íþróttum. Þannig aðstoða
Hollvinir efnileg ungmenni í því að
láta drauminn sinn um skiptinám
rætast,“ segir Erlendur Magnússon
formaður Hollvina.
Umsækjendur um skiptinema-
dvöl hjá AFS geta sótt um styrk hjá
Hollvinum. Á fyrstu fjórum starfs-
árum Hollvina hefur sjóðurinn veitt
42 skiptinemum námsstyrki vegna
lengra og skemmra skiptináms, en
heildarstyrkveitingar á tímabilinu
nema rúmlega 9 milljónum króna.
Sjóðurinn er m.a. fjármagnaður
með árlegum framlögum hollvina,
ávöxtun höfuðstóls og gjöfum frá
gömlum AFS-urum. Hollvinir hittast
árlega á aðalfundi sjóðsins og hefur
þar myndast skemmtilegur vett-
vangur eldri AFS-ara til að eiga sam-
skipti í góðra vina hópi og treysta
tengslanetið. Aðild að Hollvinum er
því gullið tækifæri fyrir fyrrverandi
skiptinema til að halda tengslum
við AFS og fylgjast með því sem þar
er að gerast hverju sinni, samhliða
því að leggja starfseminni lið með
hóflegu fjárframlagi. Áhugasamir
geta sent inn beiðni um inntöku til
skrifstofu AFS á Íslandi á netfangið
info-isl@afs.org.
Aðstoða við að láta drauminn
um skiptinám rætast
„AFS leggur
mikla áherslu á
menningarlæsi
og hvernig hægt
sé að byggja upp
friðsöm samfélög
þar sem fólk hefur
jöfn tækifæri í
lífinu,“ segir Alma
Dóra.
Skiptinám er ómetanleg lífs-reynsla sem maður býr að alla ævi. Ég lærði nýtt tungumál,
kynntist nýrri menningu og fékk
tækifæri til að kynnast sjálfri mér
betur um leið og ég lærði margt um
menningarlæsi,“ segir Alma Dóra
Ríkarðsdóttir en þegar hún var 17
ára fór hún sem skiptinemi á vegum
AFS til Ítalíu og hefur verið sjálf-
boðaliði hjá AFS síðan.
„Ég bjó í ítölsku fjallaþorpi í tæpt
ár og varð hluti af ítalskri fjölskyldu.
Ég gekk í ítalskan menntaskóla og
komst mjög vel inn í samfélagið sem
ég lifði og hrærðist í. Ég lifði í raun
sama lífi og dæmigerður ítalskur
menntaskólanemi. Þessa reynslu
er ekki hægt að öðlast nema vera
partur af samfélaginu. Það stækkar
þægindahringinn verulega að vera
skiptinemi og gefur manni kost á að
læra eitthvað nýtt. AFS hefur þá sér-
stöðu að skiptinemarnir búa inni á
heimilum og fá fræðslu frá reyndum
sjálfboðaliðum en þannig aðlagast
þeir nýju landi miklu fyrr og betur
en ella,“ segir Alma brosandi.
Hún mælir hundrað prósent
með skiptinámi á vegum AFS. „Það
er risastór áskorun, oft erfið, en
maður kemur sterkari til baka og
búinn að stækka heiminn hundrað-
falt með því að stíga aðeins út fyrir
þægindarammann. Maður öðlast
líka dýrmætt tengslanet, sem er
ómetanlegt.“
Í sumar sat Alma svokallað VSS-
þing en það stendur fyrir Volunteer
Summer Summit og er sjálfboðaliða-
sumarmót á vegum AFS. „AFS leggur
mikla áherslu á menningarlæsi
og hvernig hægt sé að byggja upp
friðsöm samfélög þar sem fólk hefur
jöfn tækifæri í lífinu. Í sumar komu
saman 100 sjálfboðaliðar á vegum
AFS þar sem þessi málefni voru
rædd frá ýmsum sjónarhornum
í heila viku. Þingið var haldið á
Íslandi að þessu sinni. Að loknu
þingi fóru sjálfboðaliðarnir heim
með ákveðnar hugmyndir um
hvernig hægt er að styðja við jöfn
tækifæri í sínu eigin samfélagi.“
Sjálfboðaliðar AFS vinna því ekki
einungis að skipulagi skiptináms
heldur margs konar fræðslutæki-
færum tengdum menningu og mál-
efnum sem stuðla að því að skapa
réttlátari og friðsælli heim. Það geta
allir orðið sjálfboðaliðar hjá AFS og
Alma mælir hiklaust með því að allir
sem hafa áhuga hafi samband við
AFS og taki þátt í starfinu.
Sjálfboðaliðar AFS vinna að
réttlátari og friðsælli heimi
Stjórn Hollvina AFS á Íslandi: Þorvarður Gunnarsson, Guðrún Björk Bjarnadóttir og Erlendur Magnússon.
PEACE Project er nýtt sam-
starfsverkefni á milli Evrópu- og
Asíulanda AFS en skammstöfunin
stendur fyrir Peace in Europe
and Asia through Global Citi-
zenship Education. Markmiðið
er að búa til sjálfbært þriggja
mánaða prógramm milli Asíu og
Evrópu. Fyrstu PEACE-nemarnir
fara frá Asíu til Evrópu í lok janúar
2018 og mun dvöl þeirra enda
á námskeiði í Brussel í Belgíu.
Fyrstu nemarnir frá Evrópu fara
svo haustið 2018 til Asíulanda og
enda sína dvöl á námskeiði í Kúala
Lúmpúr í Malasíu. Áætlað er að á
fyrsta árinu muni Ísland hýsa einn
nema og senda einn.
Frá Asíu til Evrópu
Jóhanna Gréta, lengst til hægri, ásamt vinkonum.
KYNNINGARBLAÐ 3 F I M MT U DAG U R 1 6 . n óv e m b e r 2 0 1 7 AFS á ÍSLANDI
1
6
-1
1
-2
0
1
7
0
5
:4
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
B
-6
4
3
4
1
E
3
B
-6
2
F
8
1
E
3
B
-6
1
B
C
1
E
3
B
-6
0
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K