Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.11.2017, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 16.11.2017, Qupperneq 54
CELY PC-50 talningavog Áður 57.109,- NÚ 45.688,- gæði – þekking – þjónusta Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is TALNINGAVOGIR Mikið úrval af talningavogum, sem einfalda talningu á smáhlutum FÆRIBANDAVOGIR - RANNSÓKNAVOGIR - IÐNAÐARVOGIR - SMÁVOGIR VERÐÚTREIKNINGSVOGIR - FITUMÆLINGAVOGIR - KRÓKAVOGIR BAÐVOGIR - BARNAVOGIR - GÓLFVOGIR - LÍMMIÐAVOGIR GOTT VERÐ Da g u r í s l e n s k ra r tungu vekur ýmsar s p u r n i n g a r u m íslenskuna, stöðu hennar og þróun en í bókinni Mál­ heimar, sitthvað um málstefnu og málnotkun, sem kom út nú á haust­ mánuðum, er einmitt leitað svara við slíkum spurningum og fleiri til. Höfundurinn, Ari Páll Kristinsson, er rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar en hann hefur á orði að í bókinni sé leitast við að skoða viðfangsefnið ekki aðeins út frá íslenskum sjónarhóli. Hjartans mál „Við sem eigum íslensku að móður­ máli, sem eru 90% þeirra sem kall­ ast Íslendingar, höfum náttúrulega mjög sérstakt samband við íslensk­ una af því að hún er okkar móður­ mál. Síðan eru aðrir íbúar í landinu sem hafa annars konar samband við íslenskuna sem þjóðtungu og aðal samskiptamál landsins. En eins og er með alla hluti þá getur verið gott að víkka sjónarhornið og horfa á önnur málsamfélög og hvernig þau blasa við okkur. Spegla íslenska málsamfélagið og afstöðu okkar til eigin tungumáls í því sem við sjáum gerast í skyldum og óskyldum mál­ samfélögum.“ Í Málheimum kemur fram að afstaða til móðurmálsins er alls ekki viðlíka hitamál á Íslandi og það er í mörgum öðrum þjóðfélögum. Ari Páll segir að þó svo við séum oft að þrasa um ýmislegt sem varðar form tungunnar, beygingar og hvernig við umgöngumst tökuorð og nýyrði og annað slíkt, þá séu þetta í stóra sam­ henginu smáatriði í samanburði við hitamálin er varða stöðuna. „Víða er jafnvel tekist á um það hvort tungumál kemst á dagskrá í grunn­ skólum, sem er mikið hitamál í ýmsum ríkjum þar sem eru fleiri en ein tunga. Svo er annað í þessu sem okkur hættir til að gleyma en það er að málið er tiltölulega sam­ stætt hér um allt land og í flestum þjóðfélagshópum, það er ekki full­ komlega fræðilega verjandi að tala um mállýskur á Íslandi. Það stendur vart undir nafni þó svo það heyrist á mæli okkar hvaðan af landinu við komum. Það eru aðeins smávægileg tilbrigði við t.d. Noreg og öll „slags­ málin“ sem eru enn í norsku sam­ félagi milli þessara tveggja ritmála sem búin voru til. Átök sem enn sér ekki fyrir endann á.“ Er þá hrein­ stefna íslenskunnar lúxusvanda­ mál? „Já, ef sjónarhornið er nógu vítt, þá má segja það. En hins vegar þá er þetta okkar hjartans mál sem eigum íslenskuna að móðurmáli og þá verður það að sjálfsögðu hita­ mál.“ Aðgangur að fjársjóðum Víða hefur tungumálum verið beitt í pólitískum tilgangi og dæmi um slíkt er til að mynda að finna hjá þjóðernisflokknum Sönnum Finn­ um og útilokunarstefnu þeirra gagn­ vart sænskunni. En skyldi Ari Páll sjá fyrir sér sambærilega beitingu íslenskunnar í pólitískum tilgangi? „Þegar hugmyndafræði á borð við þá sem Sannir Finnar boða þá er öllum meðulum beitt. Tungumál ákveðins hóps er svo augljós sam­ nefnari að það er eins og litur á treyjum hjá íþróttafélagi sem bind­ ur saman vissan hóp. Þá er afar nær­ tækt að nota eða misnota tungumál til þess að þjóna jafnvel annarlegum markmiðum. En það er eitt af þeim erindum sem ég þykist vera að reka í þessari bók minni að málstýring og málrækt sem horfir til samhengisins í íslensku ritmáli á fullkominn rétt á sér þótt við grípum ekki til slíkra raka til að réttlæta það. Þjóðremb­ ingurinn á ekkert erindi í eðlilega og skynsamlega ræktun og verndun tungunnar.“ Ari Páll leggur áherslu á að með málrækt er átt við það að málnot­ endur standi saman um það að gera þjóðtungu sína sem best nothæfa til þess að fást við daglegt líf og sem samskiptamál. „En hitt atriðið sem er ekki síður mikilvægt og er jafnvel það mikilvægasta varðandi íslenskuna, sem er að þetta tiltekna tungumál tengir okkur við fortíð sem við eigum auðveldan aðgang að ef ritmálið breytist ekki mjög mikið. Fortíð sem hefur menning­ arlegt gildi hvort sem það rennur íslenskt DNA í okkar æðum eða eitthvað annað. Þetta eru menn­ ingarverðmæti sem eru mikilvæg og við sem tölum íslensku eigum mjög auðveldan aðgang að svo miklum fjársjóðum. En þetta er auðvitað ákveðinn línudans, að misnota ekki þessi hugtök til þess að útiloka ekki aðra hópa.“ Spurning um ábyrgð Nú er innflytjendum talsvert að fjölga á Íslandi og þá hlýtur að vakna sú spurning hvernig við eigum að nálgast þetta í þessu sam­ hengi. „Skólakerfið er aðalatriðið í þessu og síðan er mikilvægt að taka líka vel utan um þá sem eru að læra íslensku sem annað mál. Þar sem íslenskan er þjóðtunga þá markar færni í íslensku óhjákvæmilega hvers konar framtíð býðst, hvers konar störfum við getum sinnt. Hversu góð tök viðkomandi hefur á verkfærinu skiptir máli þannig að það er mikilvægt að sinna þessu vel. Þannig að ef við horfum bara á þá sem eru að flytja hingað fullorðnir þá er mikilvægt að fyrirtæki hafi einhverja málstefnu. Ákveði til að mynda hvert er samskiptamálið á vinnustaðnum og ekki síður að liðka til með þjálfun í íslensku, niðurgreiða námskeið, gera starfs­ fólki fært að sækja þau á vinnutíma og fleira. Þetta er allt spurning um samfélagslega ábyrgð og að taka afstöðu með íslenskunni. Svo þarf samfélagið auðvitað allt að vera samtaka í því að fólk finni ekki fyrir fordómum og neikvæðni þegar við­ komandi er að prófa sig áfram með að nota íslenskuna. Við megum ekki vera svo upptekin af smáatriðum í forminu að við fælum fólk frá því að reyna fyrir sér með málnotkun.“ Óþarfa eftirgjöf Oft er talað um enskuna sem helstu ógn íslenskunnar enda virðist það færast í vöxt að enskan sé notuð sem fyrsti málkostur í ýmsum tilvikum. Nú stendur til að mynda yfir sviðs­ listahátíðin Everybodys’s Spectacul­ ar sem er fjarri því að vera einsdæmi um viðburð þar sem enskan virðist vera í öndvegi. „Já, þetta eitt af stóru málunum. Að íslenskan, burtséð frá því hvernig hún er töluð eða skrifuð, njóti þess trausts að við höfum hana í fyrsta sæti. Hún hefur verið í fyrsta sæti í samfélaginu okkar og við getum ekki lokað augunum fyrir því að það er fjöldi fólks sem næst best til á öðrum tungumálum, okkur hættir reyndar til að gleyma að það séu til önnur erlend tungumál en enska, en það þarf að vera eitthvert heilbrigt jafnvægi þarna. Það sem helst gæti ógnað stöðu íslenskunnar sem aðaltungumáls er þessi óþarfa eftirgjöf í stóru og litlu.“ Ari Páll segir að Dagur íslenskrar tungu sé einmitt góð áminning um þetta. „Það er svo auðvelt að gleyma því í amstrinu frá degi til dags hvað íslenskan er sterkur þáttur í sjálfs­ mynd einstaklinga og hópa. Tungu­ málið skiptir okkur öll svo miklu máli og þess vegna erum við að fagna degi þjóðtungunnar á þessum tiltekna degi. Það brýnir okkur öll í því að hugleiða gildi hennar fyrir okkur bæði sem samfélag og ein­ staklinga, auk þess að vera ágætis tilefni til málræktar bæði í skóla­ starfi og víðar.“ Við sem tölum íslensku eigum aðgang að fjársjóðum Málheimar, sitthvað um málstefnu og málnotkun er ný bók eftir Ara Pál Kristinsson þar sem hann leitast við að svara ýmsum forvitnilegum spurningum um stöðu og mikilvægi íslenskunnar í samfélaginu. Ari Páll segir að við megum ekki vera svo upptekin af smáatriðum í forminu að við fælum fólk frá því að reyna fyrir sér með málnotkun. FréttAblAðið/Ernir Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r38 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð menning 1 6 -1 1 -2 0 1 7 0 5 :4 6 F B 0 7 2 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 B -5 0 7 4 1 E 3 B -4 F 3 8 1 E 3 B -4 D F C 1 E 3 B -4 C C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.