Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.11.2017, Qupperneq 64

Fréttablaðið - 16.11.2017, Qupperneq 64
 Heilsan okkar Hvaða fita er holl? Almennt er ekki mælt með því að borða mikið af mat-vælum sem innihalda hátt hlutfall af mettaðri fitu (hörð fita) svo sem feitar kjötvörur, feita osta, rjóma, smjör, smjörlíki og kókos- fitu. Embætti landlæknis mælir með að nota frekar mjúka fitu í staðinn fyrir harða fitu. Mjúk fita er í jurtaolíum, feitum fiski, avókadói, hnetum og fræjum en einnig í viðbiti sem er gert úr jurtaolíum, hnetum og möndlum. Ef maður er ekki viss hvaða vöru ætti að velja þá er hægt að athuga hvort hún sé merkt með skráar- gatsmerkinu en það er opinbert merki sem uppfyllir ákveðin skil- yrði, til dæmis að vera með lágt hlutfall af mettaðri fitu. Ástæða þess að við ættum að takmarka mettaða fitu í mataræði okkar er til að minnka hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum. En það er ekki nóg að forðast mettaða fitu, við þurfum að velja vel hvað við borðum í staðinn. Mjúka fitan er talin hafa jákvæð áhrif á blóðfituna og þar fáum við einnig lífsnauðsyn- legar fitusýrur. Við þurfum líka að meta hvernig mataræði okkar er í heild sinni. Gott er að hafa í huga diskamódelið í hverri máltíð þar sem þriðjungur disksins er próteingjafi, þriðjungur er ávextir og/eða grænmeti og þriðjungur heilkornavörur. Fituna fáum við með því að nota jurtaolíu við matreiðsluna og einnig fylgir oftast fita með próteingjafanum. Því er lögð áhersla á fituminni kjöt- og mjólkurvörur (hörð fita) en mikil áhersla á fisk, sjávarfang og vörur úr jurtaríkinu (mjúk fita). Niðurstaða: Mælt er með því að nota frekar mjúka fitu í staðinn fyrir harða fitu í dag- legu fæði. Lesendum er bent á að senda sérfræðingum okkar spurningar tengdar heilsu og lífsstíl á heilsanokkar@frettabladid.is. Mjúka fitan er talin Hafa jákvæð áHrif á blóðfituna.  jóhanna e. torfadóttir, næringarfræðingur og doktor í lýðheilsu- vísindum. Orri Páll Ormars-son, blaðamaður og rithöfundur, mætti í útgáfuhóf vegna nýrrar bókar sinnar, ævisögu Gunnars Birgissonar, í fatla. Orri slasaðist á fjölmiðlamótinu í fót- bolta síðastliðinn laugardag þegar hann reyndi að ná boltanum af syni sínum, Nökkva Fjalari, sem er einn af forsprökkum Áttunnar. Ekki vildi betur til en að Orri var aðeins of seinn, flæktist einhvern veginn í löppunum á Nökkva og steinlá. „Mér tókst að slíta liðband í öxlinni en það hefði getað verið verra sögðu sérfræðingarnir. Viðbeinið stóð þarna eitthvað út í loftið. Ég þarf ekki að fara í aðgerð en verð í fatla í einhverjar vikur,“ segir Orri. Mikið fjölmenni var í hófinu og var mikið hlegið og mikið brosað enda Orri annálaður gleðigjafi. Hann segir að Nökkvi eigi alveg heimboð áfram í sunnudagslærið. „Þetta skrifast alfarið á mig. Ég hljóp einhvern veginn aftan á hann. Ég var aðeins of seinn og flæktist í honum og hann steinlá líka. Ég get ekki bent á nokkurn annan nema kannski Kristófer, kokkinn hér uppi í Morgunblaði. Hann er alltaf með svo helvíti góðan mat að það er farið að hægjast á manni,“ segir hann. benediktboas@365.is Slasaði pabba sinn á fótboltamóti Orri Páll Ormarsson hefur ritað ævisögu Gunnars Birgissonar. Útgáfu bókarinnar var fagnað í vikunni og mætti Orri þar í fatla enda stórslasaður á öxl eftir viðskipti sín og sonarins á fótboltamóti. Feðgarnir Nökkvi Fjalar og Orri Páll voru glæsilegir sem fyrr – þrátt fyrir fatlann. Fréttablaðið/Vilhelm Ofbeldi á grænlandi „Árið 1987 tókum við að okkur að reisa sútunarverksmiðju í Qaqor- toq á Grænlandi. Verkinu miðaði vel og ég fór út til að afhenda hluta verksmiðjunnar ásamt Einari heitn- um Þorsteinssyni, tæknimanni hjá Blikkási. Að afhendingu lokinni skruppum við á barinn og þar sem þetta var um hávetur og kalt í veðri ætluðum við að taka leigubíl heim á hótel. Við vorum komnir inn í bíl- inn þegar hóp Grænlendinga dreif að og reif okkur út úr bílnum. Ég reyndi að streitast á móti en mátti ekki við margnum, þeir voru fimm eða sex saman. „Þú ert dauður!“ gall í einum þeirra þegar þeir óku á braut. Ekki var annað í stöðunni fyrir okkur Einar en að ganga heim, upp brekku nokkra í bænum. Þegar upp hana var komið sáum við hvar þrjótarnir biðu eftir okkur. Það þýddi bara eitt; þeir ætluðu að sýna okkur í tvo heimana. Einar var ekki mikið fyrir slagsmál þann- ig að þetta lenti að mestu leyti á mér og ég fann strax að ég var að berjast fyrir lífi mínu enda árásarmennirnir fullir af dópi og drasli. Höggin gengu á víxl, með höndum og fótum, en eftir nokkra rimmu kom styggð að mönnunum sem létu sig hverfa. Á því augnabliki var adrenalínfram- leiðslan mikil. Ég var allur blár og marinn eftir atgang- inn og með brotnar tennur. Slapp þó við beinbrot. Einar fékk högg á augað og missti við það fókusinn. Það gekk aldrei til baka. Ég fór ekki á spítala fyrr en morguninn eftir og það voru frum- stæðar aðstæður; röntgentæki frá sjötta áratugnum og þar fram eftir götunum. Ég ræddi við lögregluna en fann að það þýddi ekkert að kæra. „Hér gilda bara gömlu lögmálin,“ sagði varðstjórinn. Forsprökkunum tveimur var nuddað út úr samfélaginu og voru síðar báðir skotnir til bana. Annar á austurstöndinni en hinn á Suður- Grænlandi.“ Úr ævisögu Gunnars birgissonar Þetta SkrifaSt alfarið á Mig. Ég Hljóp einHvern veginn aftan á Hann. Ég var aðeinS Of Seinn Og flæktiSt í HOnuM Og Hann Steinlá líka. Ég get ekki bent á nOkkurn annan. Hágæða amerísk heilsurúm sem auðvelt er að elska Sofðu rótt í alla nótt 1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r48 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð Lífið 1 6 -1 1 -2 0 1 7 0 5 :4 6 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 B -9 5 9 4 1 E 3 B -9 4 5 8 1 E 3 B -9 3 1 C 1 E 3 B -9 1 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.