Fréttablaðið - 16.11.2017, Side 68
Planternative er verkefni sem byrjaði fyrir u.þ.b. ári síðan og gekk út á það að smíða hugbúnað sem skiptir út orðum sem notuð eru um
dýraafurðir á internetinu fyrir eitt-
hvað sem lýsir því sem um ræðir á
réttmætari hátt. Hugbúnaðurinn
virkar í flestum vöfrum og á öllum
heimasíðum sem innihalda enskan
texta.
Það þýðir foie gras í pain paté,
happy meal yfir í sad meal og þar fram
eftir götunum. Það er eiginlega best
að fólk nái bara í viðbótina og prófi
svo að skoða t.d. einhverjar grillupp-
skriftir til að skilja nákvæmlega hvað
þetta gengur út á,“ segir Þórður Hans
Baldursson en hann og Lóa Björk
Björnsdóttir, Ari Tómasson og margir
fleiri eru fólkið á bak við verkefnið.
„Tengingin frá dýrinu yfir í vöruna í
matvöruversluninni er virkilega veik
og tungumálið spilar þar inn í, sér-
staklega á ensku. Cow yfir í beef yfir
í steak myndar hugmyndafræðilega
fjarlægð þar sem varan á diskinum á
ekkert sameiginlegt með dýrinu og
þar með litlar líkur á að neytandinn
fái samviskubit,“ segir Ari.
Hópur af hæfileikaríkum vegönum
Hvaða fólk er á bak við þetta?
„Það myndaðist alveg brjálæðislega
gott teymi í kringum þetta verkefni.
Næstum eins og allt hæfileikaríkasta
fólk landsins sé vegan. Hönnun
og branding var t.d. mestmegnis í
höndum Gabríels Bachmann og svo
kom Svala Hjörleifsdóttir inn í þá
vinnu á seinni stigum, þeir Tómas
Ken Shimomura-Magnússon og Piers
Biddlestone forrituðu hugbúnaðinn
með mér en mesta vinnan fólst samt
í efnisvinnu, þ.e. a.s. að finna þýðingar
á orðunum sem við vildum skipta út.
Þar voru betri en engin þau Lóa,
Guðrún Sóley Gestsdóttir, Ari Tómas-
son, Ýmir Grönvold, Sólveig Einars-
dóttir, Kata Jóhannesdóttir, Marinella
Arnórsdóttir, Gígja Sara Björnsson,
Matthías Karl Karlsson, Guðrún Ýr
Eyfjörð, Jón Pétur Þorsteinsson og
Ophelié Karoni. Við fengum svo sér-
lega rágjöf frá Gunnari Jörgen Viggós-
syni um ýmis mál,“ segir Þórður.
„Þetta er bara alls konar fólk sem
á það sameiginlegt að vera vegan. Ég
kem bara stundum með mitt innlegg
sem manneskja sem hefur skoðanir
og er í listnámi. Vinir okkar hjálpuðu
til við að þýða orðin í matarboðum,“
bætir Lóa við.
Orðið „kjúklingakjöt“ upphafið
Hvaðan kemur þessi hugmynd?
„Hugmyndin spratt út frá hugleið-
ingum um orðanotkun og hugrenn-
ingatengsl. Áður en ég varð vegan var
ég á veitingahúsi í borginni og það
stakk mig þegar ég renndi yfir mat-
seðilinn að í stað þess að boðið væri
upp á kjúkling var boðið upp á kjúkl-
ingakjöt. Ég man að þessi ofurlitla
breyting á orðalagi gerði það verkum
að mig langaði ekki að panta neinn
af þessum réttum. Breytti hugrenn-
ingatengslunum úr girnilega, tilbúna
réttinum yfir í bleika, vakúmpakkaða
kjötslímið úr kjötkælinum. Þannig að
ég pantaði eitthvað annað.
Seinna þegar ég fór að spá í vegan-
isma og þeim aðferðum sem við sem
aðhyllumst hann notum til þess að
reyna að snúa öðrum rifjaðist þessi
pæling upp og kveikti hugmyndin
að planternative. Við erum nefnilega
svo gjörn á að detta í einhverja „hol-
ier than thou“ orðræðu sem að mínu
mati er ekki endilega alltaf málstaðn-
um til framdráttar. Þess vegna held ég
að tól sem byggir á húmor í bland við
hneykslun og óþægindi gæti verið
öflugra en eldræða úr predikunar-
stólnum,“ segir Þórður. „Skammir og
átök valda því að fólk fer í skotgraf-
irnar og verji sinn lífsstíl, sem er ekki
gott fyrir neinn,“ bætir Ari við en Lóa
er ekki endilega á sama máli:
„Ég fæ reyndar ekki nóg af „holier
than thou“ orðræðu. Þegar maður
brennur fyrir einhverju þá er auðvelt
að missa sig. Og upplifa sig vera einu
manneskjuna sem er með sannleik-
anum í liði og finnast allir þeir sem
borða kjöt vera þrjóskir, íhaldssamir
og illa innrættir.“
„Tilgangurinn var að reyna að
skapa eins konar vegan kennslutæki
sem hefði nógu mikið afþreyingar-
gildi og væri nógu áhugavert til þess
að fólk sem væri ekki vegan myndi
nenna að tékka á því. Ef það mistekst
er planið að fara í skjóli nætur og
hlaða þessu niður á allar tölvur sem
við komumst í án þess að nokkur
taki eftir því,“ segir Þórður aðspurður
hvert markmiðið þeirra sé.
„Fólk sem borðar kjöt býr í svo
aftengdum raunveruleika. Eins og
maturinn þinn sé ekki lík af dýri,
heldur bara einhver óskilgreindur
bragðgóður hlutur og það myndar
ekki hugrenningatengslin á milli
matarins og dýrsins. Nema náttúru-
lega einhverjar sjúkar veiðimanna-
týpur sem skjóta dýrið sjálfar. Það er
annar handleggur. Tilgangurinn er að
skapa þessi hugrenningatengsl hjá
fólki sem leiðir ekki hugann að þessu
í sínu daglega amstri,“ svarar Lóa og
bætir við: „Draumur minn er að það
verði til skynsamleg umræða um
dýra afurðalausan lífsstíl. Fólki finnst
þetta enn þá svo róttæk ákvörðun
að kjósa þannig mataræði en það
sem mér þykir mun róttækara er að
ákveða að nokkur dýr þurfi að deyja
bara svo að þú getir farið í gegnum
daginn þinn.“
Á planternative.com má bæði
nálgast vafraviðbótina sem og meiri
upplýsingar um verkefnið.
stefanthor@frettabladid.is
Kjötætur tengdar við
raunveruleikann
bak við máltíðina
Planternative er verkefni unnið af stórum hópi fólks úr mismunandi
kimum samfélagsins sem þó eiga það sameiginlegt að vera vegan.
Um er að ræða vafraviðbót sem breytir orðum sem eru notuð um
dýraafurðir yfir í það sem þau segja réttmætara orðalag.
Ari Tómasson, Þórður Hans Baldursson og Lóa Björk Björnsdóttir eru meðal þeirra sem komu að gerð Planternative.
FréTTABLAðið/Ernir
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r52 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð
Varmadælur &
loftkæling
Verð frá aðeins
kr. 155.000 m.vsk
Midea MOB12
Max 4,92 kW
2,19 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,44)
f. íbúð ca 60m2.
• Kyndir húsið á
veturna og kælir á
sumrin
• Fyrir norðlægar
slóðir
• Fjarstýring fylgir
• Hægt að fá WiFi
Bæjarhrauni 2 | Hafnarfirði | Sími: 4370000 | hafis@hafis.is
Komdu og fáðu rjómaís og laktósafrían vegan ís
Íslenskur ís með ítalskri hefð
1
6
-1
1
-2
0
1
7
0
5
:4
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
B
-6
E
1
4
1
E
3
B
-6
C
D
8
1
E
3
B
-6
B
9
C
1
E
3
B
-6
A
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K