Fréttablaðið - 16.11.2017, Síða 70
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Ég hef aldrei saumað brúð-arkjól fyrir neinn. Ég hef verið að sauma danskjóla fyrir mig en það er annað að sauma fyrir aðra,“ segir Hanna Rún Bazev Óla-
dóttir sem hannaði brúðarkjól fyrir
Valdísi Sylvíu Sigurþórsdóttur. Hún
eyddi 300 klukkustundum í kjólinn
sem hún kallar Mónadísu, enda var
hún staðráðinn í að gera kjólinn að
sínu Mónu Lísu verki.
„Hún hringdi í mig níu vikum
fyrir brúðkaupið og spurði hvort ég
væri til í þetta en ég afþakkaði. Hún
bað mig um að hugsa málið til enda
og mér fannst eins og einhver væri að
gefa mér merki um að ég ætti að taka
þetta verkefni að mér. Ég sagði því já
á endanum. Þetta var mitt Mónu Lísu
verkefni og ég var staðráðin í að gera
eitthvert listaverk. Ég vildi hafa hann
geggjaðan.
En ég fattaði þegar ég var búin að
eyða 10 klukkustundum í kjólinn að
ég myndi ekki ná að klára hann fyrir
brúðkaupið með því að vinna bara á
daginn þannig að ég fór að vinna á
nóttunni líka.“
Þegar styttist í brúðkaupið var
unnið myrkranna á milli. Maður
Hönnu og sonur fóru út úr húsi og
hún fékk Hanna næði til að klára
kjólinn. „Brúðkaupið var á laugar-
daginn og þegar ég afhenti kjólinn á
föstudag þá var ég ekki búin að sofa
síðan á miðvikudag og var því orðin
svolítið þvoglumælt.“
Kjóllinn sló í gegn í brúðkaup-
inu og hefur Hanna fengið mikið
hrós fyrir hann. Brúðurin geislaði
og glitraði sem aldrei fyrr og gerði
kjóllinn glæsilegt brúðkaup enn
glæsilegra. „Ég er stolt og ánægð
með kjólinn og ekki síður þakklát
henni Valdísi að trúa svona á mig.
Hún peppaði mig upp og lét mig
öðlast trú á því að ég gæti þetta. Hún
lét mig hafa trú á sjálfri mér.
Mig langaði aðeins að gráta þegar
ég setti síðasta steininn í og kláraði
kjólinn. En táraflóðið kom þegar hún
tók fyrstu skrefin inn kirkjugólfið. Þá
grét ég og maðurinn minn líka.“
benediktboas@365.is
Handlímdi 30 þúsund
steina á brúðarkjól
Steinarnir og perlurnar, alls þrjátíu þúsund, voru sett á í höndunum.
Valdís í essinu sínu í kjólnum ásamt
eiginmanni sínum, Friðþjófi Arnari
Friðþjófssyni.
Eins og sjá má var mikið lagt í
kjólinn. Hún notaði lítið teikningar.
Glæsilegar saman á brúðkaups-
daginn, Valdís og Hanna.
Hanna Rún Bazev
Óladóttir var vakin
og sofin yfir brúðar-
kjól vinkonu sinnar
sem hún gerði frá
grunni á níu vikum.
Hágrét þegar hún
gekk inn kirkjugólfið.
300
klukkutímar fóru í
brúðarkjólinn.
30.000
steinar og perlur voru límd
á kjólinn.
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
08.11.17 - 14.11.17
1 2
5 6
7 8
109
43
Þúsund kossar
Jón Gnarr
Þitt eigið ævintýri
Ævar Þór Benediktsson
Saga Ástu
Jón Kalman Stefánsson
Myrkrið veit
Arnaldur Indriðason
Mistur
Ragnar Jónasson
Sakramentið
Ólafur Jóhann Ólafsson
Rúna
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Gunnar Birgisson
Orri Páll Ormarsson
Skuggarnir
Stefán Máni
Flóttinn hans afa
David Walliams
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r54 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð
1
6
-1
1
-2
0
1
7
0
5
:4
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
B
-5
A
5
4
1
E
3
B
-5
9
1
8
1
E
3
B
-5
7
D
C
1
E
3
B
-5
6
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K