Fréttablaðið - 17.11.2017, Side 12

Fréttablaðið - 17.11.2017, Side 12
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Mitsubishi ASX er fjórhjóladrinn sportjeppi sem skilar þér miklu ai á mjúkan og sparneytinn hátt. Þú situr hærra, hefur meira rými og nýtur mlegra eiginleika í akstrinum. Komdu í reynsluakstur og nýtt þér ASX á sérstöku afmælistilboði. MITSUBISHI ASX Instyle 4X4 4.490.000 ASX Instyle 4x4 Verðlistaverð: 5.190.000 10 0 Á R A A FM Æ LI S TI LB O Ð FYRIR HUGSANDI FÓLK Búnaður umfram Intense+ • Panorama sóllúga • Leðursæti með rafstýringu fyrir ökumann • Íslenskt leiðsögukerfi Simbabve Robert Mugabe, forseti Simbabve, gæti haldið forsetaemb- ættinu, að minnsta kosti að nafninu til, fram að landsþingi ríkisstjórnar- flokksins Zanu-PF í desember. Á landsþinginu gæti flokkurinn svo ákveðið að skipta Mugabe út fyrir fyrrverandi varaforseta, Emmer- son Mnangagwa. Þetta sagði Nick Mangwana, erindreki Zanu-PF í Bretlandi, við BBC í gær. Mugabe er nú í stofufangelsi í höfuð borginni Harare eftir að simb- abveski herinn tók völdin þar í landi fyrr í vikunni. Viðræður um framtíð forsetans hófust í gær og reyndi kaþ- ólski presturinn, og vinur Mugabe, Fidelis Mukonori, að miðla málum á milli Mugabe og herforingja. Einnig voru þeir Nosiviwe Maph- isa-Nqakula, varnarmálaráðherra Suður-Afríku, og Bongani Bongo, ráðherra öryggismála hjá utanríkis- ráðuneyti Suður-Afríku, sendir til Harare til að taka þátt í viðræðum. Voru þeir þar á vegum Samvinnu- stofnunar ríkja í sunnanverðri Afr- íku (SADC) sem Suður-Afríkufor- setinn Jacob Zuma leiðir um þessar mundir. Samkvæmt BBC var einna helst ágreiningur um hvaða hlutverki Mnangagwa muni nú gegna sem og hvernig best væri að tryggja öryggi Mugabe-fjölskyldunnar. Þá hefur BBC eftir heimildum að Mugabe vilji alls ekki segja af sér eins og herinn fer fram á. Er hann sagður halda því fram að hann sé rétt- mætur forseti Afríkuríkisins. Sam- kvæmt heimildum Reuters heldur Grace Mugabe forsetafrú sig nú á heimili þeirra hjóna ásamt stuðn- ingsmönnum sínum. SADC hefur aldrei stutt valdaráns- stjórnir til þessa. Pumza Fihlandi, blaðamaður BBC í Jóhannesarborg í Suður-Afríku, sagði í gær að stuðn- ingur við herinn myndi setja hættu- legt fordæmi. Alpha Condé, forseti Gíneu og leiðtogi Afríkusambands- ins, hefur einnig sagt að Afríkusam- bandið myndi ekki undir neinum kringumstæðum styðja „valdarán hersins“. Þá fór hann fram á að her- inn myndi draga sig til baka. Undanfarnar vikur hafa verið stormasamar í Simbabve. Mugabe er á tíræðisaldri og því eru flokksmenn farnir að huga að því hver muni taka við forsetaembættinu. Flokkurinn hefur klofnað og styður annar armurinn Grace Mugabe en hinn Emmerson Mnangagwa. Nær öruggt er að aðgerðir hersins megi að miklu leyti rekja til þess að á dögunum rak Mugabe forseti Mnangagwa úr varaforsetaembættinu. Sagði hann varaforsetann ótrygglyndan. Með þessu lýsti forsetinn í raun fullum stuðningi við eiginkonuna. Fjölmiðlar í Simbabve greina frá því að herinn reyni nú að kæfa þá ógn sem hann telur stafa af Grace Mugabe. Til að mynda var greint frá því að formaður ungliðahreyfingar Zanu-PF, Kudzai Chipanga, hafi verið handtekinn í kjölfar sjón- varpsávarps þar sem hann gagn- rýndi aðgerðir hersins harðlega. Chipanga er yfirlýstur stuðnings- maður forsetafrúarinnar. En Zanu-PF er vissulega ekki eini stjórnmálaflokkur Simbabve. MDC-T fékk 35 prósent atkvæða í þingkosningum ársins 2013 og munu nýjar kosningar fara fram á næsta ári. Morgan Tsvangirai, for- maður og líklegasta forsetaefni MDC-T, kallaði í gær eftir afsögn Mugabe. „Með tilliti til hagsmuna þjóðarinnar er nauðsynlegt að herra Robert Mugabe segi af sér tafar- laust.“ Tsvangirai fór einnig fram á að allir aðilar kæmu að borðinu til þess að tryggja farsæl stjórnarskipti. Það myndi síðan leiða til breytinga á kosningakerfinu svo frjálsar og sanngjarnar kosningar gætu farið fram. thorgnyr@frettabladid.is Framtíð Mugabe og Simbabve óljós Viðræður um framtíð Roberts Mugabe, forseta Simbabve, fóru fram í gær. Herinn hefur hneppt Mugabe í stofufangelsi. Hann gæti þó haldið forsetastólnum fram að landsþingi flokks síns í desember. Þá þykir líklegt að fyrrverandi varaforseti taki við keflinu. Kenískir fjölmiðlar hafa fjallað ítarlega um stöðu mála í Simbabve. Í Simbabve hefur hins vegar minna verið fjallað um stöðuna sem upp er komin. Ríkisblaðið Herald sagði frá því að herinn hefði alls ekki tekið völdin. NoRdicpHotoS/AFp Líklegt er að brottrekstur Emmersons Mnangagwa úr varaforsetaembættinu hafi komið atburðarásinni af stað. 1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U r12 F r é T T i r ∙ F r é T T a b L a ð i ð 1 7 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 3 E -4 0 3 0 1 E 3 E -3 E F 4 1 E 3 E -3 D B 8 1 E 3 E -3 C 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 7 2 s _ 1 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.