Fréttablaðið - 17.11.2017, Blaðsíða 46
Því fylgir ósvikið
stolt og gleði að
föndra sinn eigin jóla-
krans á útidyrnar og
vekur ómælda aðdáun
gesta og gangandi.
Frost og þurrkur getur gert hárið á okkur rafmagnað svo það stendur út í loftið eða
límist við andlitið á okkur. Hvað
er til ráða?
l Nuddið olíu í allt hárið eða í
endana. Olían kemur í veg fyrir
að hárið tapi raka og kemur
böndum á óstýriláta enda.
l Bómullar- eða akrýlhúfur geta
aukið rafmagnið í hárinu.
Reyna má að nota höfuðföt
sem fóðruð eru með silki eða
satíni sem renna mjúklega af
hárinu.
l Spreyið greiðu úr málmi með
hárspreyi og greiðið gegnum
hárið frá rót til enda. Hár-
spreyið temur óstýriláta enda
og málmgreiðan losar raf-
spennuna í hárinu.
l Notið hárnæringu sem ekki á
að þvo úr. Hún nærir hárið og
ver fyrir hitabreytingum og
þurrki.
l Notið rakagefandi hárvörur
yfir vetrartímann.
l Notið hárblásara með „ionic
tækni“ en hann á að eyða raf-
spennunni úr hárinu.
Rafmagnað hár
Unglingadrykkja hefur minnkað til
muna á síðustu árum.
Mun færri unglingar drekka áfengi
en áður. Ungdómurinn í dag hagar
sér betur en foreldar, ömmur og
afar. Þessir krakkar hafa ánægju
af náminu sínu, stunda margir
hreyfingu og hafa góð samskipti
við foreldra sína. Síðast en ekki síst,
þeir drekka miklu minna en áður
þekktist.
Þessi staðreynd á ekki bara
við um Ísland en árangur í minni
unglingadrykkju hér á landi er
umtalaður víða um heim. Í Noregi
hefur unglingadrykkja sömuleiðis
minnkað mikið. Árið 2003 svöruðu
84% norskra unglinga á aldrinum
15-16 ára að þeir hefðu smakkað
áfengi. Árið 2015 hafði þeim fækk-
að niður í 57%. Unglingadrykkja
hefur líka minnkað í Svíþjóð, Finn-
landi og meira að segja Danmörku.
En niðurstöður rannsókna sýna að í
allri Evrópu hefur unglingadrykkja
minnkað sem og í Kanada, Banda-
ríkjunum og Ástralíu.
Vísindamenn leita að einhverri
skýringu á þessu og spyrja hvort
þakka megi samfélagsmiðlum
og netinu. Unglingar eru mikið á
netinu og foreldrar eru kannski
líka meira að passa ungana sína.
Eru þeir sem eru 17 ára í dag hinir
nýju 15 ára? Ákveðin breyting varð
við aldamótin hjá unglingum. Þá
ólst upp ný kynslóð með snjall-
tækjum. Þar fyrir utan býr ungt fólk
lengur í foreldrahúsum. En vísinda-
menn klóra sér í kollinum í leit að
skýringu þar sem vitað er að for-
eldrar drekka meira en áður. Nánar
má lesa um þessar hugleiðingar á
forskning.no.
Unglingar án áfengis
Jólakrans er sannkallað dyradjásn.
Aðventan nálgast og eru margir
farnir að huga að jólaskreytingum.
Því er upplagt að skella sér í
Borgarbókasafnið í Árbæ og læra
að búa til fallegan aðventu- eða
jólakrans til að festa á útidyra-
hurðina. Það er Helga Helgadóttir
frá Árbæjarblómum sem mun leið-
beina gestum með kransagerðina
og verður hún með allt efni með-
ferðis sem hægt verður að kaupa á
staðnum.
Jólakransagerðin fer fram
mánudaginn 20. nóvember frá
klukkan 16.30 til 18.30. Skráning
er í safninu, í síma 411 6250. Allir
hjartanlega velkomnir.
Jólakransagerð í
Árbæ
365.is 1817MARGFALT SKEMMTILEGRI
Internet fyrir aðeins
1000 kr.
með sjónvarpspökkum
TRYGGÐUÞÉR ÓDÝRARA INTERNET Á1817 / 365.IS
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . N Óv e m B e R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
1
7
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:4
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
E
-4
A
1
0
1
E
3
E
-4
8
D
4
1
E
3
E
-4
7
9
8
1
E
3
E
-4
6
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K