Fréttablaðið - 17.11.2017, Síða 22
Opið bréf til alþingismanna og Seðlabanka Íslands. Hinn íslenski peninga
heimur er afbakaður vegna vaxta
paradísar sem Seðlabankinn býður
fjármagnseigendum. Mælieiningin
krónan bjagast með hættulegum
afleiðingum fyrir samfélagið.
Vísitala neysluverðs án húsnæðis
liðar mælir verðhjöðnun, við finnum
aukinn kaupmátt. Útlendingar sem
hingað koma finna þetta ekki, þeirra
kaupmáttur hefur snarminnkað hér
á landi undanfarin misseri.
Hvort ætli sé nú réttara? Hvort er
raunverulega rétt? Að hér sé verð
bólga eða verðhjöðnun? Við þurfum
ekki að kafa djúpt til að átta okkur.
Stóru myntirnar dollar og evra hafa
lítt haggast um innra virði til ein
hverra missera litið. Þannig er ljóst
að hægt er að miða við að þessar
myntir mæli verðmæti nokkuð vel
undanfarið.
Mælt á kvarða þessara traustu
mynta er sem sagt verðbólga á
Íslandi.
Fjölmiðlar og íslenskir hagfræð
ingar sem segja að verðhjöðnun
sé á Íslandi fara með rangt mál.
Til að komast að slíkri niðurstöðu
þarf að gefa sér að vextir, gengi og
hreyfing vísitölu neysluverðs séu
óháðar breytur. Þessar breytur eru
hins vegar afar háðar hver annarri,
ekki síst á það við um Ísland vegna
smæðar hagkerfisins og hás hlutfalls
innfluttra aðfanga. Verðhjöðnunin
kemur öll í gegnum vaxtaþáttinn
sem ýtir genginu upp. Verðhjöðn
unin kemur ekki í gegnum innlenda
hagverkun, innlenda framleiðslu,
innlendan kostnað, jafnvel ekki á
mælikvarða krónunnar. Verð inn
lends kostnaðar hefur farið vaxandi
en verð erlendra aðfanga lækkað í
krónum talið.
Falskur kaupmáttur
Vegna hæstu raunvaxta í vestrænu
samfélagi rís gengi íslensku krón
unnar. Verðbólga á kvarða vísitöl
unnar er falin undir því risi, a.m.k.
tímabundið en í leiðinni býr Seðla
bankinn til sjálfstætt vandamál fjár
málalegs óstöðugleika með því að
peningamagn í umferð fær aukinn
kaupmátt – falskan kaupmátt. Hinir
háu vextir leiða til ýktrar hagsveiflu
með hrunkenndum öldudölum. Að
þessu sinni hefur þróttur og vöxtur
ferðaþjónustunnar gefið okkur
lengri sveiflu.
Líkt og fyrir hrunin 2001 og 2008
hefur hávaxtastefnan leitt til þess
að gengið er ósjálfbært, þ.e. raun
hagkerfið er hætt að standa undir
kaupmættinum. Útflutningsgreinar
gefa eftir, viðskiptahalli er í augsýn
og vex þar til ekki fæst rönd við
reist og hrun eða fall gjaldmiðilsins
blasir við. Örugg leið að fallinu er að
í kjölfar vaxandi verðbólgu næstu
misseri muni Seðlabankinn hækka
stýrivexti að hætti hússins, eins og
stjórnendur lofuðu í vikunni, og reka
okkur þannig í vaxandi vandamál
tengd viðskiptahalla og peninga
magni.
Meira en 20 ár eru síðan Ben
Bernanke o.fl. hröktu þá fullyrðingu
sem Seðlabankinn hefur að leiðar
ljósi, að stýrivextir séu hlutlausir
gagnvart raunhagkerfinu til lengri
tíma litið. Annað leiðarljós Seðla
bankans að vísitala neysluverðs
mæli verðbólgu er einnig villuljós.
Vísitala neysluverðs mælir ekki
virðisbreytingu gjaldmiðilsins því
hún hefur ekki hönnunarforsendur
til þess. Skekkjan varð allt að 70%
árin fyrir hrun 2008 og hefur verið
umtalsverð síðustu misseri.
Við Íslendingar verðum að
hætta þessum skollaleik og ein
beita okkur að verkfærum peninga
stjórnar öðrum en vaxtatækinu.
Setjum vaxtatækið í hlutlausan gír,
afnemum verðtryggingu á neytenda
lánum og snúum okkur að stjórnun
í gegnum peningamagnið. Höfum
ennfremur hömlur á eða eftirlit með
stórum fjármagnsflutningum milli
hagkerfa til að sporna gegn spákaup
mennsku. Gengið mun þá ráðast af
þrótti hagkerfisins og útflutnings
atvinnuvega. Stöðugleikinn sem allir
sækjast eftir kemur ekki fyrr.
Ef við ættum tommustokk sem við
vissum að lengdist í hitasvækju, þá
myndum við passa að geyma hann
á köldum stað svo við gætum treyst
honum. Eins er með krónuna, hún
bjagast sem mælieining þegar vextir
á Íslandi eru hærri en í viðskipta
löndunum. En kennum ekki krón
unni um, sökin liggur hjá Alþingi og
Seðlabankanum.
Lækkun vaxta leiðir til verðbólgu
skots, en það skot er betra en hrun
síðar. Pössum bara að afnema verð
trygginguna áður en við hleypum úr
þaninni krónunni.
Við lifum í afbökuðum peningaheimi
Örn Karlsson
vélaverk
fræðingur
Ísland hefur mikla sérstöðu í alþjóðaumhverfinu þegar kemur að möguleikum til
sjálfbærni. Þessi sérstaða byggir
á nokkrum þáttum, ekki síst á
þeirri staðreynd að Ísland er eyja,
með ríkulegar auðlindir til lands
og sjávar sem er tært og ósnortið
að miklu leyti sökum hnattstöðu
landsins og landfræðilegrar upp
byggingar þess. Vaxandi fólksfjöldi,
hungur og matar sóun eru meðal
stóru málanna á alþjóðavísu þegar
litið er til framtíðar.
Almennt er talið að á alþjóðavísu
komi um 5% matar og fóðurs úr sjó
og vatni, á meðan staðreyndin er sú
að höf og vötn umlykja í kringum
70% af jörðinni. Á Íslandi höfum
við þá sérstöðu að í kringum
8090% af matarframleiðslu okkar
koma úr sjó og vatni (breytilegt
milli ára). Nýsköpun í tengslum við
sjávargróður, svo sem þörungarækt
til manneldis, verður ekki til annars
en hækkunar á þessu háa hlutfalli.
Þetta er sérstaða sem ber að horfa
til með tilliti til langtímastefnu
mótunar.
Í erindi Heiðrúnar Lindar, fram
kvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja
í sjávarútvegi, á ársfundi sam
takanna þann 28. maí sl., lýsti hún
sérstöðu Íslands hvað varðar sjávar
útveg okkar sem sjálfbæra auðlind.
Sagði hún þessa sérstöðu byggja á
1) umhverfislegri sjálfbærni, grund
vallaðri á kvótakerfi sem tryggir
viðhald og framtíð íslensku sjávar
auðlindarinnar, 2) efnahagslegri
sjálfbærni, sem grundvallast á fyrir
sjáanlegu og stöðugu lagaumhverfi
og 3) samfélagslegri sjálfbærni, sem
grundvallast á þeim miklu fram
förum sem orðið hafa í veiðum og
vinnslu í þessum grunnatvinnu
vegi Íslendinga og stuðla að betri
nýtingu auðlindarinnar, minnkuðu
kolefnisspori og aukinni sjálfbærni.
Allar frumframleiðslugreinar
Íslands, hvort sem þær nýta auð
lindir lands eða sjávar og vatna, eru
mikilvægar þegar kemur að sjálf
bærni Íslands og langtímastefnu
mótun og hugsun sem tryggir
viðhald og uppbyggingu þeirra er
lykilatriði til framtíðar sjálfbærs
Íslands og sjálfbærrar jarðar. Þegar
horft er til möguleika Íslands á að
leggja sitt af mörkum til sjálfbærni
jarðar, er þó mikilvægt að horfa
ekki síst til íslenska sjávarútvegsins
og sérstöðu hans hnattrænt.
Með tilliti til möguleika Íslands
á að leggja sitt af mörkum til
manneldis og velferðar jarðar
búa almennt, mætti því ætla að
opinber stefnumótun sem tryggir
möguleika sjávarútvegsins á lang
tímasamningum erlendis sé afar
mikilvæg, en grundvöllur slíkrar
stefnumótunar hlýtur að vera sá
að stöðugleiki hins íslenska gjald
miðils verði tryggður. Sífelldar
sveiflur íslensku krónunnar og
óútreiknanlegar aðstæður hljóta
að vera hindranir sem erfitt og
jafnvel ómögulegt er að yfirstíga í
langtímastefnumótun og langtíma
samningum frumframleiðenda og
annarra framleiðenda og fyrirtækja
á sölu íslenskra afurða erlendis, þar
með talið sjávarafurða.
Sjálfbært Ísland?
Samfélagsleg sjálfbærni Íslands er
í vexti, með framförum og verk
efnum í átt að sjálfbærari aðferðum.
Umhverfisleg sjálfbærni Íslands er
í vexti, með aðstæðum innanlands
sem hvetja til aukinnar virðingar og
verndar í umgengni við náttúruna
og auðlindir hennar. Efnahagsleg
sjálfbærni Íslands er í vexti, með
meðvitund ráðamanna og vilja til
að innleiða og tryggja möguleika
innanlands til umhverfisverndar
og eðlilegrar nýtingar og viðhalds
auðlinda. Hvað sjálfbærni Íslands
til framtíðar varðar er áríðandi að
hugað sé alvarlega að mögulegum
áhrifum stóriðju, virkjana og orku
vera á vistkerfi náttúrunnar og þar
með auðlindir og frumframleiðslu.
Í því samhengi er brýnt að lang
tímasjónarmið ráði ferð.
Með tilliti til möguleika Íslands
á að leggja sitt af mörkum í átt að
sjálfbærari jörð, nægir efnahagsleg
sjálfbærni innanlands ekki ein.
Mikilvægt er að tryggja efna
hagslega sjálfbærni Íslands einnig
á alþjóðavísu, með því að skapa
frumframleiðendum fyrirsjáanlegt
og stöðugt umhverfi til langtíma
stefnumótunar og samningagerðar.
Mikilvægt er að finna leiðir til að
lækka kostnað og skapa aðstæður
sem veita frumframleiðendum í
öllum greinum sanngjarnt verð
fyrir framleiðslu sína og þar með
traustan rekstrargrundvöll.
Mikilvægt er að sjónarmið lykil
hugtakanna virðingar og verndar
verði í auknum mæli ráðandi í við
horfum okkar til auðlinda jarðar,
frumframleiðslu og alls lífs, því:
Matur er mannsins megin, matur
og næring er lífið sjálft, frumfram
leiðsla snýst um líf mannkyns og
viðhald þess á móður jörðu.
Greinin er þriðji hluti greinaraðar-
innar Sjálfbært Ísland – sjálfbær
jörð.
Sérstaða Íslands í alþjóðasamhengi
Sveinn
Margeirsson
forstjóri Matís
Rakel
Halldórsdóttir
annar stofn
enda Frú Laugu
bændamark
aðar, stjórnar
maður SLOW
FOOD Reykjavík
og ráðgjafi hjá
Matís
Páll Gunnar
Pálsson
sérfræðingur
hjá Matís
E I N R Ó M A L O F
Skelfileg en falleg saga, full af sársauka
og átökum,elskusemi og æðruleysi.
HÞ/Morgunblaðið
Syndafallið er falleg og nærgöngul fjölskyldusaga
sem lætur engan ósnortinn.
Katrín Jakobsdóttir
Með því besta
og fallegasta
sem ég hef lesið lengi.
Thelma Ásdísardóttir
Takk fyrir allan kærleikann
og hugrekkið sem þarf
til að segja svona sögu.
Jón Gnarr
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR VW
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði
sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina
má flest allt um ástand bílsins og gæði.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
- í Fríkirkjunni í Reykjavík.
JólatónleikarMEÐ HELGUM HLJÓM
Hátíðartónleikar til styrktar
Kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild Landspítalans, 13E/G
fimmtudaginn 7. desember kl. 12
Ásamt hljómsveit og kvennakórnum Concordia
Miðasala á tix.is og við innganginn - Miðaverð 2500.-
Auður
Gunnarsdóttir,
sópran
Þorbjörn
Rúnarsson,
tenór
Bjarni Thor
Kristinsson,
bassi
1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r22 S k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
7
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:4
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
E
-1
3
C
0
1
E
3
E
-1
2
8
4
1
E
3
E
-1
1
4
8
1
E
3
E
-1
0
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K