Fréttablaðið - 17.11.2017, Síða 16

Fréttablaðið - 17.11.2017, Síða 16
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Öllum má vera ljóst að slíkar breyt- ingar geta aðeins orðið að veruleika fyrir tilstilli samhentrar pólitískrar forystu. Kristján Þ. Davíðsson framkvæmda- stjóri Landssam- bands fiskeldis- stöðva Ingólfur Ásgeirsson, flugstjóri og leigutaki Kjararár, flýgur lágt í áróðrinum gegn fiskeldi í Fréttablaðinu 14. nóvember. Þar ber hann að jöfnu ómengaðan dýrasaur og mannaskít, sem inniheldur flóru mengunar af mannavöldum. Hagsmunagæslan freistast til að grípa á lofti saurumræðu blaðamanns sem féll í sömu gildru, skrifandi um „óhreinsað skólp“. Eldisfiskur étur fóður búið til úr fiskimjöli, lýsi og næringarefnum úr jurta- ríkinu, svo vandlega gæðatryggt að eldislax inniheldur minni mengunarefni en villtur lax, sem er á beit í mis- mengaðri náttúrunni. Til gamans þeim sem hafa ástríðu fyrir talnaleikfimi á borð við þá sem birst hefur um fiskasaur á síðum Fréttablaðsins undanfarið, má nefna að sauðkind skítur um 1,5 tonnum saurs árlega. Bara í náttúru Húnavatns- sýslna berast rúmlega 100.000 tonn árlega af kindasaur, 15-20 tonn á ferkílómetra. Ætla mætti að svæðið væri nánast á kafi í skít? Hugsandi fólk sér að þetta er merkingarlítil talnaleik- fimi. Í besta falli er verið að bera saman epli og ljósa- perur. Sama gildir um samanburðurinn á mannaskít og fiskasaur í hafinu umhverfis Ísland. Regn og (laxveiði)ár skola megninu af kindasaurnum til sjávar, þar sem sam- spil strauma og ljóss leysa hann upp í næringarefni sem auka framleiðsluna í víðáttum hafsins. Það sama gerist með fiskasaurinn. Lífræn og ólífræn efni leysast upp í svo áhrifaríku ferli að það er meira að segja talið óhætt að synda við strendur margra milljónaborga heimsins. Fiskeldi er umhverfisvænsta matvælaframleiðslan. Stjórnvöld þeirra landa sem geta framleitt eldisfisk hvetja undantekningarlaust til aukningar framleiðslu, enda ekki vanþörf á að nýta bláa akurinn fyrir sívaxandi fjölda jarðarbúa. Hérlendis er í þróun vistvæn atvinnu- grein, byggð á bestu tækni og þekkingu, eftir ströngustu kröfum í heimi. Greinin skorast ekki undan rökrænni umræðu um það sem betur má fara, því ætíð má gera betur. Talnaleikfimi telja andstæðingar þeirrar þróunar e.t.v. henta sér best í baráttunni gegn uppbyggingunni, en fáfræði sem enga skoðun stenst dæmir sig sjálf. Samanburður á eplum og ljósaperum Stjórnvöld þeirra landa sem geta framleitt eldisfisk hvetja undan- tekningarlaust til aukningar framleiðslu, enda ekki vanþörf á að nýta bláa akurinn fyrir sívaxandi fjölda jarðar- búa. Mundir þú eftir að bursta og skola í morgun? GUM eru hágæða tannvörur tannlæk nar mæla m eð GUM tannvör um ... fæst í næsta apóteki og helstu stórmörkuðum allar upplýsingar á www.icecare.is Núverandi peningastefna Seðlabankans er fjarri því gallalaus. Endurskoða þarf stefnuna með hliðsjón af þeirri kerfisbreytingu sem hefur orðið á hagkerfinu. Erlend staða þjóðarbúsins hefur aldrei verið betri og viðvarandi viðskiptaafgangur hefur gert Ísland að fjár- magnsútflytjanda. Vinna verkefnisstjórnar að undir- búningi slíkra tillagna, sem hljóta að felast einkum í bættri umgjörð um krónuna, er nú á lokametrunum. Öllum má vera ljóst að þær breytingar geta aðeins orðið að veruleika fyrir tilstilli samhentrar pólitískrar forystu. Ástæða er til að ætla að svo geti orðið með þeirri ríkisstjórn sem nú er að fæðast. Þar yrði til mikils að vinna enda um að ræða eitt mikilvægasta verkefni stjórnvalda. Þrátt fyrir nauðsyn þess að peningastefnan verði tekin til endurskoðunar þá verður ekki fram hjá því horft að trú- verðugleiki hennar hefur aukist til muna síðustu ár. Með ýmsum úrbótum sem ráðist hefur verið í, ásamt innleið- ingu nauðsynlegra þjóðhagsvarúðartækja, hefur peninga- stefnan skilað talsverðum árangri í að tryggja efnahags- legan stöðugleika. Verðbólga hefur haldist lág samhliða einu lengsta samfellda hagvaxtarskeiði í lýðveldissögunni sem aftur hefur gefið Seðlabankanum færi á því að lækka smám saman vexti. Þá hafa verðbólguvæntingar, bæði til meðallangs og langs tíma, haldist í samræmi við markmið Seðlabankans. Þótt ráðist hafi verið í nánast fulla losun hafta fyrr á árinu, sem hafði í för með sér auknar gengis- sveiflur, þá hafa engu að síður ekki orðið breytingar á verðbólguvæntingum fjárfesta. Spennan í þjóðarbúskapnum er í hámarki. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá mun hagvöxtur helmingast í ár og verða 3,7 prósent. Þar ræður mestu aukinn innflutningur og hægari vöxtur útflutnings, einkum í ferðaþjónustunni. Sú þróun þarf ekki að koma á óvart enda ekki við því að búast að sá gríðarmikli vöxtur gæti haldið áfram með sama hætti. Már Guðmundsson seðlabankastjóri benti réttilega á það í ræðu sinni á peningamálafundi Viðskiptaráðs í gær að það væri þess vegna „óumflýjanlegt og æskilegt“ að hagvöxtur væri farinn að minnka. Þótt það sé til vinsælda fallið að gera krónuna ávallt að blóraböggli þá hefur hún þar leikið lykilhlutverk. Gengishækkun gjaldmiðilsins hefur skipt sköpum í nauðsynlegri aðlögun þjóðarbúsins að þeim búhnykk sem hefur fylgt uppgangi ferðaþjónust- unnar. Að öðrum kosti væri meira ójafnvægi í hagkerfinu, aukin verðbólga og hærri vextir. Ný ríkisstjórn tekur við á sama tíma og efnahagsstaðan hefur aldrei verið sterkari. Því fylgja tækifæri og áskoranir. Mestu skiptir að ekki verði slakað á aga í ríkisfjármálum og að stöðugleiki verði tryggður á vinnumarkaði þar sem samið verði um hóflegar launahækkanir. Takist það er fyrst ástæða til binda vonir við að Ísland geti farið að þok- ast í átt til þess að verða líkara lágvaxtalöndum. Verði hins vegar ráðist í þau útgjaldaloforð sem ýmsir flokkar boðuðu í aðdraganda kosninga eru afleiðingarnar fyrirsjáanlegar og viðskiptaafgangurinn mun meðal annars snúast í halla innan fárra ára. Einn helsti lærdómur gjaldeyris- og banka- kreppunnar 2008 er sá að fyrir opið lítið hagkerfi eins og Ísland skiptir öllu að viðhalda jafnvægi á greiðslujöfnuði við útlönd. Aldrei aftur má hagkerfið komast í þá stöðu að vera rekið með blússandi viðskiptahalla ár eftir ár. Þá fyrst er hætta á harðri lendingu í efnahagslífinu. Aldrei aftur Hvað næst? Þetta hefur verið nokkuð tíðinda- mikil vika fyrir þá sem fylgjast með pólitík. Samfylkingarmenn og Píratar svekkja sig yfir því að VG hafi ákveðið að hefja stjórnarmyndunarviðræður við Sjálfstæðisflokkinn. Þeir hinir sömu gleðjast víst yfir því að Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði skilið við Facebook í þessari sömu viku og sjónvarpsstöðin ÍNN lagði upp laupana, en sjónvarpsstöðin hefur verið einn helsti vettvangur hægrimanna á ljósvakanum. Allt er þá þrennt er og hugsanlega bíða vinstrimennirnir þess nú að Útvarp Saga fari sömu leið. Brotthvarf Drífu Níutíu manns hafa skráð sig úr VG eftir að stjórnarmyndunar- viðræður við Sjálfstæðisflokk- inn hófust. Einn þeirra er Drífa Snædal, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri VG og núverandi framkvæmdastjóri Starfsgreina- sambandsins. Í raun er eðlilegt að forystumenn í verkalýðs- hreyfingunni láti flokkapólitík eiga sig. Verkalýðshreyfingin þarf nefnilega að geta rúmað fólk úr öllum stjórnmálaflokkum. Að því leyti er brotthvarf Drífu úr VG því ósköp eðlilegt. En að fram- kvæmdastjórinn hafi rökstutt brotthvarf sitt með fyrirlitningu á Sjálfstæðisflokknum, sem VG á í stjórnarmyndunarviðræðum við, er öllu verra mál. jonhakon@frettabladid.is 1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r16 S k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð SKOÐUN 1 7 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 7 2 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 3 E -1 8 B 0 1 E 3 E -1 7 7 4 1 E 3 E -1 6 3 8 1 E 3 E -1 4 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 7 2 s _ 1 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.