Fréttablaðið - 17.11.2017, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 17.11.2017, Blaðsíða 52
Ástkær faðir okkar, sonur, bróðir og mágur, Guðmundur Ármann Eggertsson stálsmiður, Viðarási 21a, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 13. nóvember. Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 24. nóvember kl. 13.00. Arnar Jón Guðmundsson Katrín Ósk Guðmundsdóttir Eggert Guðmundsson Óli Már Eggertsson Eydís Dögg Sigurðardóttir Vignir Eggertsson Lilja Björk Kristjánsdóttir Birna Eggertsdóttir Rúnar Hrafn Ingimarsson og fjölskyldur Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Þorsteinsson læknir, Hvassaleiti 73, lést á Landspítalanum 15. nóvember. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 23. nóvember kl. 13. Sigríður Jónsdóttir Ólafur Örn Thoroddsen Eiríkur Jónsson Petrína Úlfarsdóttir Margrét Jónsdóttir Aðalsteinn Þorgeirsson Ingunn Jónsdóttir Þórunn Jónsdóttir Enes Cogic afabörn og langafabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Hulda Pétursdóttir frá Patreksfirði, sem lést miðvikudaginn 1. nóvember, verður jarðsungin frá Garðakirkju, mánudaginn 20. nóvember kl. 13. Sigríður Björg Gísladóttir Sigþór Pétur Svavarsson Unnur Berglind Svavarsdóttir Kjartan Gunnsteinsson og aðrir aðstandendur. Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og útfarar Braga Jóhannessonar Geitastekk 8. Sérstakar þakkir fær allt starfsfólk deildar 11G Landspítalans við Hringbraut og Karitas fyrir ómetanlega umönnun og hlýju í garð Braga og fjölskyldunnar. Elísabet Erla Gísladóttir börn, tengdabörn og barnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og kærleik vegna andláts elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Guðmundar Gígja Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hjördís Jónasdóttir Jónas Guðmundsson María Guðmundsdóttir Gígja Gunnar Kristjánsson Geir Gígja Jónína Einarsdóttir Svanhvít Ljósbjörg Guðmundsdóttir afabörn og langafabarn. Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, Þórunn Andrésdóttir Kjerúlf lést á Hrafnistu Garðabæ – Ísafold þann 11. nóvember. Útförin fer fram frá Garðakirkju þann 22. nóvember kl. 13. Anna Dóra Snæbjörnsdóttir Ingólfur Ísfeld Jónasson Guðrún Snæbjörnsdóttir Stefán Ingi Jónsson Snæbjörn Þór Snæbjörnsson Ingunn Vigdís Sigmarsdóttir og barnabörnin öll. Þegar ég fór að hugsa um þetta í sumar, þegar það fór að líða að þessum tímamót-um, þá fór ég að velta fyrir mér að það eru ekki allir jafn heppnir og ég,“ segir Eiríkur Gíslason sem á 70 ára afmæli á mánudaginn. Í tilefni þess heldur hann glæsilega styrktartónleika á sunnudag- inn undir yfirskriftinni Yndislegt líf. Hann kveðst hafa átt yndislegt líf, þó ekki áfallalaust eins og gengur og gerist. „Mér datt nú í hug að nota þessi tímamót til að gera eitthvað, gefa mér eitthvað í afmælisgjöf, og sömuleiðis að láta eitt- hvað gott af mér leiða í þágu þeirra sem minna mega sín.“ Ágóði tónleikanna rennur til Umhyggju, félags langveikra barna. Eiríkur segir það félag vera stórmerkilegt og hann langar að leggja því lið. Á tónleikunum kemur fram tónlistar- fólk sem Eiríkur hefur kynnst á tón- listarferli sínum. Þau sem fram koma eru Margrét Einarsdóttir, Ópus 12, Einar Clausen, Söngfuglar, Viðar Gunn- arsson, Kammerkór Reykjavíkur, Þrjár klassískar, Söngfjelagið Góðir grannar, Ólafur M. Magnússon, Húnakórinn, Signý Sæmundsdóttir og Karlakór Kjal- nesinga. Spurður út í hvernig hafi gengið að setja saman tónleika segir Eiríkur: „Það gekk alveg frábærlega. Ég kom alls staðar að opnum dyrum. Ég er búinn að vera í söng í 55 ár núna, ég er nefnilega að halda upp á 55 ára söngafmæli um þessar mundir. Og ég hafði samband við þá sem ég hef sungið með og tengst í gegnum tónlistina og fékk frábærar mót- tökur,“ segir Eiríkur sem hefur sungið með Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps síðan hann var 15 ára. Eiríkur hvetur alla tónlistarunnendur til að leggja leið sína í Langholtskirkju á sunnudaginn, 19. nóvember. „Tónleik- arnir hefast klukkan 16.00 og hægt er að kaupa miða við innganginn í Lang- holtskirkju. Miðaverðið er afskaplega hófstillt, nánast útsöluprís, eða 2.500 krónur,“ segir Eiríkur glaður í bragði. gudnyhronn@365.is Lætur gott af sér leiða með tónleikum á afmælinu Eiríkur fagnar 70 ára afmæli og 55 ára söngafmæli um þessar mundir. Til að fagna 70 ára afmæl- inu ætlar Eiríkur Gíslason að láta gott af sér leiða og halda tónleika í Langholts- kirkju á sunnudaginn. Á tónleikunum verður fjöl- breytt dagskrá og allur ágóði rennur til Umhyggju, félags langveikra barna. Íslendingar eignuðust alheimsfegurð- ardrottningu í þriðja sinn þegar Linda Pétursdóttir var valin Ungfrú heimur á þessum degi. Linda hafði betur í baráttu við Yeon-He Choi, 22 ára gamla íþróttafréttaþulu frá Suður-Kóreu og ungfrú Bretland, Kirsty Roper, sem var þá 17 ára. Roper heitir nú Kirsty Bertarelli og er ríkasta kona Bretlands. Hún er metin 11,7 milljarða punda sem eru yfir 1.500 milljarðar króna. „Hér ríkir mikil hátíðastemning vegna úrslitanna, og á tímabili voru allar síma- línur rauðglóandi, þegar fólk hringdi til að óska hvert öðru til hamingju,“ sagði fréttaritari Morgunblaðsins á Vopna- firði í blaðagrein sem birtist daginn eftir. Mikil fagnaðarlæti brutust út í Royal Albert Hall þegar nafn Lindu var lesið upp. Mikil spenna hafði verið í loftinu enda voru úrslitin ekki eftir bókinni. Þannig var Ungfrú Venesúela ekki í topp þremur eins og spáð hafði verið. Norðurlanda- búar gerðu vel og Ísland, Noregur og Svíþjóð komust inn á topp 10 listann. Baldvin Jónsson, umboðsmaður Miss World á Íslandi, sagði að árangur Íslands væri einstakur og mörg stórblöð hefðu þegar boðað komu sína til að fylgjast með keppninni um Ung- frú Ísland ári síðar. „Það vilja allir vita hvernig þessi litla þjóð fer að því að velja fegurðar- drottningar sínar, stúlkur sem staðið hafa sig betur í keppninni Ungfrú Heimur en nokkrar aðrar. Milljóna þjóðir komast ekki með tærnar þar sem við höfum hælana," sagði Baldvin í samtali við Morgunblaðið. Þ ETTa G E R ð i ST : 1 7 . n ÓV E M B E R 1 9 8 8 L i n da P. Va L i n U n G f Rú H E i M U R   Merkisatburðir 1390 Skriða féll á Lönguhlíð ytri í Hörgárdal. Hrafn Bótólfs- son lögmaður, kona hans og fleiri fórust. 1558 Elísabet 1. tók við konungdómi í Englandi og Írlandi eftir hálfsystur sína. Elísabetartímabilið hófst á Englandi. 1603 Sir Walter Raleigh var dreginn fyrir rétt í Winchester- kastala ákærður fyrir þátttöku í Maine-samsærinu. 1631 Svíar lögðu Frankfurt am Main undir sig. 1869 Súesskurðurinn milli Rauðahafs og Miðjarðarhafs var opnaður. 1912 Íslenska guðspekifélagið var stofnað í Reykjavík. 1913 Morgunblaðið birti fyrstu íslensku fréttamyndirnar, sem voru dúkristur, gerðar vegna morðmáls í Dúkskoti í Reykjavík. 1938 Vikan kom út í fyrsta sinn, fyrsti ritstjóri hennar var Sigurður Benediktsson. 1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r28 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð i ð tímamót 1 7 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 7 2 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 E -0 E D 0 1 E 3 E -0 D 9 4 1 E 3 E -0 C 5 8 1 E 3 E -0 B 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 7 2 s _ 1 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.