Fréttablaðið - 17.11.2017, Qupperneq 52
Ástkær faðir okkar, sonur,
bróðir og mágur,
Guðmundur Ármann
Eggertsson
stálsmiður,
Viðarási 21a, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn
13. nóvember. Útförin fer fram frá Garðakirkju
föstudaginn 24. nóvember kl. 13.00.
Arnar Jón Guðmundsson
Katrín Ósk Guðmundsdóttir
Eggert Guðmundsson
Óli Már Eggertsson Eydís Dögg Sigurðardóttir
Vignir Eggertsson Lilja Björk Kristjánsdóttir
Birna Eggertsdóttir Rúnar Hrafn Ingimarsson
og fjölskyldur
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Þorsteinsson
læknir,
Hvassaleiti 73,
lést á Landspítalanum 15. nóvember.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 23. nóvember kl. 13.
Sigríður Jónsdóttir Ólafur Örn Thoroddsen
Eiríkur Jónsson Petrína Úlfarsdóttir
Margrét Jónsdóttir Aðalsteinn Þorgeirsson
Ingunn Jónsdóttir
Þórunn Jónsdóttir Enes Cogic
afabörn og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Hulda Pétursdóttir
frá Patreksfirði,
sem lést miðvikudaginn 1. nóvember,
verður jarðsungin frá Garðakirkju,
mánudaginn 20. nóvember kl. 13.
Sigríður Björg Gísladóttir
Sigþór Pétur Svavarsson
Unnur Berglind Svavarsdóttir Kjartan Gunnsteinsson
og aðrir aðstandendur.
Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu vegna andláts og útfarar
Braga Jóhannessonar
Geitastekk 8.
Sérstakar þakkir fær allt starfsfólk
deildar 11G Landspítalans við Hringbraut
og Karitas fyrir ómetanlega umönnun og
hlýju í garð Braga og fjölskyldunnar.
Elísabet Erla Gísladóttir
börn, tengdabörn og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og kærleik
vegna andláts elskulegs eiginmanns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Guðmundar Gígja
Útförin fór fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Hjördís Jónasdóttir
Jónas Guðmundsson
María Guðmundsdóttir Gígja Gunnar Kristjánsson
Geir Gígja Jónína Einarsdóttir
Svanhvít Ljósbjörg Guðmundsdóttir
afabörn og langafabarn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Þórunn Andrésdóttir Kjerúlf
lést á Hrafnistu Garðabæ – Ísafold
þann 11. nóvember. Útförin fer
fram frá Garðakirkju þann
22. nóvember kl. 13.
Anna Dóra Snæbjörnsdóttir Ingólfur Ísfeld Jónasson
Guðrún Snæbjörnsdóttir Stefán Ingi Jónsson
Snæbjörn Þór Snæbjörnsson Ingunn Vigdís Sigmarsdóttir
og barnabörnin öll.
Þegar ég fór að hugsa um þetta í sumar, þegar það fór að líða að þessum tímamót-um, þá fór ég að velta fyrir mér að það eru ekki allir jafn heppnir og ég,“ segir
Eiríkur Gíslason sem á 70 ára afmæli á
mánudaginn. Í tilefni þess heldur hann
glæsilega styrktartónleika á sunnudag-
inn undir yfirskriftinni Yndislegt líf.
Hann kveðst hafa átt yndislegt líf, þó
ekki áfallalaust eins og gengur og gerist.
„Mér datt nú í hug að nota þessi tímamót
til að gera eitthvað, gefa mér eitthvað í
afmælisgjöf, og sömuleiðis að láta eitt-
hvað gott af mér leiða í þágu þeirra sem
minna mega sín.“
Ágóði tónleikanna rennur til
Umhyggju, félags langveikra barna.
Eiríkur segir það félag vera stórmerkilegt
og hann langar að leggja því lið.
Á tónleikunum kemur fram tónlistar-
fólk sem Eiríkur hefur kynnst á tón-
listarferli sínum. Þau sem fram koma
eru Margrét Einarsdóttir, Ópus 12,
Einar Clausen, Söngfuglar, Viðar Gunn-
arsson, Kammerkór Reykjavíkur, Þrjár
klassískar, Söngfjelagið Góðir grannar,
Ólafur M. Magnússon, Húnakórinn,
Signý Sæmundsdóttir og Karlakór Kjal-
nesinga.
Spurður út í hvernig hafi gengið
að setja saman tónleika segir Eiríkur:
„Það gekk alveg frábærlega. Ég kom alls
staðar að opnum dyrum. Ég er búinn að
vera í söng í 55 ár núna, ég er nefnilega
að halda upp á 55 ára söngafmæli um
þessar mundir. Og ég hafði samband
við þá sem ég hef sungið með og tengst í
gegnum tónlistina og fékk frábærar mót-
tökur,“ segir Eiríkur sem hefur sungið
með Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps
síðan hann var 15 ára.
Eiríkur hvetur alla tónlistarunnendur
til að leggja leið sína í Langholtskirkju á
sunnudaginn, 19. nóvember. „Tónleik-
arnir hefast klukkan 16.00 og hægt er
að kaupa miða við innganginn í Lang-
holtskirkju. Miðaverðið er afskaplega
hófstillt, nánast útsöluprís, eða 2.500
krónur,“ segir Eiríkur glaður í bragði.
gudnyhronn@365.is
Lætur gott af sér leiða með
tónleikum á afmælinu
Eiríkur fagnar 70 ára afmæli og 55 ára söngafmæli um þessar mundir.
Til að fagna 70 ára afmæl-
inu ætlar Eiríkur Gíslason
að láta gott af sér leiða og
halda tónleika í Langholts-
kirkju á sunnudaginn. Á
tónleikunum verður fjöl-
breytt dagskrá og allur
ágóði rennur til Umhyggju,
félags langveikra barna.
Íslendingar eignuðust alheimsfegurð-
ardrottningu í þriðja sinn þegar Linda
Pétursdóttir var valin Ungfrú heimur
á þessum degi. Linda hafði betur í
baráttu við Yeon-He Choi, 22 ára gamla
íþróttafréttaþulu frá Suður-Kóreu og
ungfrú Bretland, Kirsty Roper, sem var
þá 17 ára. Roper heitir nú Kirsty
Bertarelli og er ríkasta kona Bretlands.
Hún er metin 11,7 milljarða punda sem
eru yfir 1.500 milljarðar króna.
„Hér ríkir mikil hátíðastemning vegna
úrslitanna, og á tímabili voru allar síma-
línur rauðglóandi, þegar fólk hringdi til
að óska hvert öðru til hamingju,“ sagði
fréttaritari Morgunblaðsins á Vopna-
firði í blaðagrein sem birtist daginn
eftir.
Mikil fagnaðarlæti brutust
út í Royal Albert Hall
þegar nafn Lindu var
lesið upp. Mikil spenna
hafði verið í loftinu
enda voru úrslitin ekki
eftir bókinni. Þannig var
Ungfrú Venesúela ekki í
topp þremur eins og spáð
hafði verið. Norðurlanda-
búar gerðu vel og Ísland,
Noregur og Svíþjóð komust inn á
topp 10 listann.
Baldvin Jónsson, umboðsmaður
Miss World á Íslandi, sagði að árangur
Íslands væri einstakur og mörg
stórblöð hefðu þegar boðað
komu sína til að fylgjast
með keppninni um Ung-
frú Ísland ári síðar. „Það
vilja allir vita hvernig
þessi litla þjóð fer að
því að velja fegurðar-
drottningar sínar, stúlkur
sem staðið hafa sig betur
í keppninni Ungfrú Heimur
en nokkrar aðrar. Milljóna
þjóðir komast ekki með tærnar
þar sem við höfum hælana," sagði
Baldvin í samtali við Morgunblaðið.
Þ ETTa G E R ð i ST : 1 7 . n ÓV E M B E R 1 9 8 8 L i n da P. Va L i n U n G f Rú H E i M U R
Merkisatburðir
1390 Skriða féll á Lönguhlíð ytri í Hörgárdal. Hrafn Bótólfs-
son lögmaður, kona hans og fleiri fórust.
1558 Elísabet 1. tók við konungdómi í Englandi og Írlandi
eftir hálfsystur sína. Elísabetartímabilið hófst á Englandi.
1603 Sir Walter Raleigh var dreginn fyrir rétt í Winchester-
kastala ákærður fyrir þátttöku í Maine-samsærinu.
1631 Svíar lögðu Frankfurt am Main undir sig.
1869 Súesskurðurinn milli Rauðahafs og Miðjarðarhafs var
opnaður.
1912 Íslenska guðspekifélagið var stofnað í Reykjavík.
1913 Morgunblaðið birti fyrstu íslensku fréttamyndirnar,
sem voru dúkristur, gerðar vegna morðmáls í Dúkskoti í
Reykjavík.
1938 Vikan kom út í fyrsta sinn, fyrsti ritstjóri hennar var
Sigurður Benediktsson.
1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r28 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð i ð
tímamót
1
7
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:4
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
E
-0
E
D
0
1
E
3
E
-0
D
9
4
1
E
3
E
-0
C
5
8
1
E
3
E
-0
B
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K