Fréttablaðið - 20.11.2017, Side 10

Fréttablaðið - 20.11.2017, Side 10
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 01 Smærri viðgerðir Hraðþjónusta HEKLU. Hringdu í 590 50 30 eða renndu við. Hekla.is Eitthvað sem hvorki Seðlabankinn né íslenskir kjósendur eiga lengur að þurfa að þola af völdum hinna yfir- gangssömu sérhagsmuna- afla sem of lengi hafa hér svo gott sem öllu ráðið. Alþjóðlegur dagur barna er haldinn hátíðlegur í dag 20. nóvember. Dagurinn er jafnframt afmælis dagur barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem samþykktur var þennan dag árið 1989. Ísland hefur verið skuldbundið af sáttmálanum í meira en 25 ár, en hann var lögfestur hér á landi árið 2013. Þó að staða barna sé sterk hér á landi í alþjóðlegu samhengi eigum við talsvert í land að tileinka okkur þann breytta hugsunarhátt sem í sáttmálanum felst. Þannig virðist oft gleymast að börn eigi sjálfstæð mann- réttindi, hafi rétt til að hafa áhrif á eigið líf og samfélagið almennt. Í sumar tók ég við starfi umboðsmanns barna en hlutverk embættisins er að stuðla að bættum hag barna og standa vörð um hagsmuni þeirra, þarfir og réttindi á öllum sviðum samfélagsins. Í nánast hverri viku frétti ég af málefnum barna í viðkvæmri stöðu; börn sem glíma við kvíða eða geðræn vandamál og fá ekki viðeigandi þjónustu; fötluð börn sem ekki fá skólavist á sama tíma og jafnaldrar þeirra; börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi og einelti; börn sem verða miðja átaka foreldra við skilnað; börn sem búa við fátækt svo dæmi séu tekin. Með öðrum orðum börn sem verða útundan í samfélagi okkar með einum eða öðrum hætti. Staða þessara barna og viðbrögð við henni er hinn raunverulegi mælikvarði á það hversu alvarlega við lítum þau réttindi sem þau eiga samkvæmt barna- sáttmálanum. Á síðustu árum hafa mörg jákvæð skref verið tekin í átt að bættum hag barna en við getum gert mun betur. Kosningar til Alþingis eru nýafstaðnar og viðræður standa yfir um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Ég hvet þá sem nú hafa verið kosnir til trúnaðarstarfa á löggjafar- þinginu til næstu fjögurra ára og þá sem munu leiða nýja ríkisstjórn að tryggja að þau réttindi sem barnasáttmál- inn veitir börnum séu raunverulega virk í framkvæmd. Hlustum á börn og setjum hagsmuni þeirra í forgang! Alþjóðlegur dagur barna – Til hamingju með daginn Salvör Nordal umboðsmaður barna Hlustum á börn og setjum hagsmuni þeirra í forgang! Aðgengi fjölmiðla að upplýsingum og ábyrg meðhöndlun þeirra er lykilforsenda starf-hæfs lýðræðis. Ríki sem stýra upplýsingum út frá hagsmunum valdhafa, útvalinna stétta, fyrirtækja og einstaklinga og beina þeim upplýsingum í gegnum þeim þjónk- andi fjölmiðla eru einfaldlega spillt. Markmið slíkra aðgerða er alltaf að vera að villa um fyrir kjósendum eða leyna þá sannleikanum og hafa þannig óeðlileg áhrif á framgang lýðræðisins. Síðastliðinn laugardag birti Morgunblaðið hið margfræga símtal Geirs H. Haarde, þáverandi forsætis- ráðherra, og Davíðs Oddssonar, þáverandi formanns bankastjórnar Seðlabanka Íslands en núverandi ritstjóra þessa sama fjölmiðils. Í símtalinu kemur fram það sem reyndist vera vond ákvarðanataka tveggja manna og átti eftir að verða þjóðinni dýr en þrátt fyrir allt er það ekki stóra málið. Stóra málið er að samtalið skuli birt nú og með þessum hætti. Íslenskir fjölmiðlar hafa lengi kallað eftir því að þetta mikilvæga samtal verði birt almenningi. Enginn fjölmiðill hefur sótt það af viðlíka eftirfylgni og vef- miðillinn Kjarninn og það jafnvel með því að stefna Seðlabankanum með tilheyrandi kostnaði. Eftirfylgni Kjarnans ber með sér skýran vilja til þess að upplýsa þjóðina að fullu um það hvað gerðist í efnahagshruninu en hún felur líka í sér þá staðreynd að upplýsingar á borð við umrætt samtal eru verðmæti. Í þessu tilviki verðmæti sem Seðlabanki Íslands var reiðubúinn til þess að verja fyrir dómstólum með tilheyrandi kostnaði. Morgunblaðið hefur hvorki falast eftir afriti af umræddu samtali frá Seðlabankanum né fengið það afhent. Því er óhjákvæmilegt annað en að álykta að rit- stjóri Morgunblaðsins hafi haft það á brott með sér með ólögmætum hætti – gögn tilheyra stofnunum og fyrir- tækjum en ekki starfsmönnum – þegar hann var rekinn frá SÍ. Birting samtalsins nú veldur Kjarnanum fjárhags- tjóni en staðfestir líka svo ekki verður um villst að vald- hafar á borð við Davíð Oddsson eru reiðbúnir til þess að stýra upplýsingum eftir eigin hagsmunum fremur en almennings. Veita kjósendum upplýsingar eftir henti- stefnu og óumflýjanlegri nauðsyn fremur en opinni og ábyrgri upplýsingastefnu. Að samtalið skuli dúkka upp í Morgunblaðinu á þess- um tíma og með þessum hætti, án allrar staðfestingar um að það sé birt í heild sinni eða rétt með farið, er einstakt dæmi um gagnaleka í íslenskri stjórnsýslu. Gagnalekar sem hafa þann tilgang að upplýsa almenning um sitt- hvað misjafnt, jafnvel lögbrot, í störfum og fjármálum ráða- og efnamanna hafa löngu sannað mikilvægi sitt fyrir framgang lýðræðisins. En að hafa á brott með sér upplýsingar frá ríkisstofnun, þegar viðkomandi er sagt upp störfum, til þess að nýta þær upplýsingar svo eftir hentugleika jafnvel mörgum árum síðar, er eitthvað allt annað. Eitthvað sem hvorki Seðlabankinn né íslenskir kjósendur eiga lengur að þurfa að þola af völdum hinna yfirgangssömu sérhagsmunaafla sem of lengi hafa hér svo gott sem öllu ráðið. Það er mál að linni. Gagnaleki Iðjusemin Greint var frá því á dögunum að nýkjörnir þingmenn hefðu sótt námskeið á Alþingi til að fræðast um framtíðarvinnu- staðinn. Að öðru leyti vitum við lítið um það hvað þing- menn hafa verið að sýsla við upp á síðkastið. Fyrir utan þingmenn Pírata, þá Helga Hrafn Gunnarsson og Smára McCarthy, sem nýttu helgina til þess að hjálpa tölvufyrirtækinu 1984 við að endurheimta gögn sem fyrirtækið tapaði og varð til þess að fjöldi vefsíðna liggur enn niðri. Verðum við ekki að fagna því að drengirnir hafi eitthvað við að vera þangað til Alþingi kemur saman? Gagnrýnin Þeir Þorsteinn Víglundsson og Sigmundur Davíð Gunn- laugsson eru ekki bjartsýnir á þá ríkisstjórn sem er í fæðingu. Báðir lýstu þeir viðhorfum sínum á Bylgjunni í gær. „Þetta er svo sannarlega ekki stjórn sem byggist á einhverri til- tekinni pólitískri stefnu eða skýrri framtíðarsýn,“ sagði Sigmundur Davíð. Það er kannski mikilvægt fyrir stjórn- málamenn að geta tekið skýra afstöðu til pólitískra andstæð- inga. En væri ekki eðlilegt að leyfa stjórninni að verða til og sýna á spilin sín áður en tekin er afstaða til stefnumálanna? jonhakon@frettabladid.is 2 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m Á n U D A G U r10 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð SKOÐUN 2 0 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 4 1 -5 C 5 C 1 E 4 1 -5 B 2 0 1 E 4 1 -5 9 E 4 1 E 4 1 -5 8 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 1 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.