Fréttablaðið - 24.11.2017, Page 10
Svartur
Fössari
Svartur
F i
Kíktu á öll
tilboðin á elko.is
1963 Núverandi ákvæði
um Landsdóm og ráð-
herraábyrgð lögfest.
24. maí 2007
Ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokksins
og Samfylking-
arinnar, sem Geir
H. Haarde fór fyrir,
tók við stjórn landsins.
6. október 2008 Geir
mælir fyrir frumvarpi að
neyðarlögunum.
17. desember 2008
Rannsóknarnefnd
Alþingis komið á fót
með lögum um rann-
sókn á aðdraganda
og orsökum
falls íslensku
bankanna 2008
og tengdra
atburða.
26. janúar 2009
Samfylkingin slítur
stjórnarsamstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn.
26. apríl 2010 Rann-
sóknarnefnd Alþingis
skilar af sér skýrslu um
aðdraganda hrunsins. Í
kjölfarið var skipuð níu
manna nefnd þing-
manna til að móta
tillögur að viðbrögðum
Alþingis við niður-
stöðum skýrslunnar.
11. september
2010 Þings-
ályktun um
málshöfðun
gegn Geir H.
Haarde, Árna
M. Mathiesen,
fjármálaráðherra
áðurnefndrar stjórnar,
Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur utanríkis-
ráðherra og Björgvin G.
Sigurðssyni viðskipta-
ráðherra.
28. september 2010
Alþingi samþykkir með
atkvæðum 33 þing-
manna að höfða
mál gegn Geir.
Aðrar tillögur
voru felldar.
12. október
2010 Sigríður
Friðjónsdóttir, þá
vararíkissaksóknari,
kosin ákærandi málsins.
10. maí 2011 Ákæra
gefin út í málinu.
10. júní 2011 Kröfu
Geirs um að átta
dómarar í mál-
inu, af fimmtán,
vikju sæti var
hafnað. Milli
þess að Alþingi
samþykkti máls-
höfðun og þess að
ákæra var gefin út hafði
kjörtímabil dómara
Landsdóms runnið út.
3. október 2011 Frávís-
unarkröfu Geirs í málinu
hafnað að stærstum
hluta. Tveimur ákæru-
liðum af sex var vísað
frá dómi. Einn dómari,
Ástríður Gríms-
dóttir, skilaði
sératkvæði og
taldi að vísa
ætti málinu frá
í heild þar sem
Sigríður sak-
sóknari hafði gefið
álit á mögulegri saksókn
á fyrri stigum málsins.
23. apríl 2012 Dómur
kveðinn upp í málinu.
Geir var sýknaður af
þremur ákæruliðum
en sakfelldur fyrir að
hafa látið fyrirfarast að
halda ráðherrafundi um
mikilvæg stjórnarmála-
efni líkt og kveðið er á
um í 17. gr. stjórnarskrár
lýðveldisins Íslands.
17. október 2012 Geir
kærir niðurstöðu Lands-
dóms til Mannréttinda-
dómstóls Evrópu (MDE).
13. nóvember 2013
MDE ákveður að taka
mál Geirs fyrir efnislega.
✿ Aðdragandi og endalok Landsdómsmálsins
DÓMSMÁL Íslenska ríkið var sýknað
af öllum kröfum Geirs H. Haarde,
fyrrverandi forsætisráðherra, af
Mannréttindadómstóli Evrópu
(MDE) í Strasbourg í gær. Niður-
staða MDE um sýknu ríkisins var
mjög afdráttarlaus.
Geir taldi að málsmeðferð
íslenska ríkisins í málinu hefði brot-
ið gegn 6. gr. Mannréttindasáttmála
Evrópu (MSE) en hún kveður á um
réttinn til réttlátrar málsmeðferðar
fyrir dómi. Þá taldi hann einnig að
brotið hefði verið gegn 7. gr. sátt-
málans sem kveður á um að óheim-
ilt sé að gera manni refsingu nema
hann hafi brotið gegn lögum.
Í máli Geirs fyrir dómnum var
meðal annars sett út á rannsókn
þingmannanefndarinnar, að brotið
hafi verið gegn rétti hans til að tjá
sig á rannsóknarstigi málsins og
að málsókn gegn honum hafi verið
pólitísk. Þá hafi aðgangur hans að
gögnum málsins ekki verið full-
nægjandi. Þá taldi Geir saksóknara
málsins, Sigríði Friðjónsdóttur, vera
vanhæfa þar sem hún hafði gefið
sérfræðiálit á meðan á rannsókn
málsins stóð.
Þessu hafnaði dómurinn. Benti
hann meðal annars á að Geir hefði
staðið til boða að tjá sig en hann ekki
nýtt sér það. Þá taldi dómurinn að þó
ákvörðun um málsóknina hafi verið
tekin af þinginu hafi málsmeðferðin
í kjölfarið ekki brotið gegn ákvæðum
sáttmálans. Þá var ekki talið að 6. gr.
MSE fæli í sér rétt til þess að saksókn-
ari málsins væri hlutlaus.
Þá taldi Geir það brjóta gegn rétti
hans að lagaákvæði þau sem hann
var talinn brjóta gegn væru ekki
nægilega skýrar og afdráttarlausar
refsiheimildir. Háttalag hans í starfi
sem forsætisráðherra hefði verið í
samræmi við áratuga venju. Í dómi
Landsdóms var talið að óformleg
samtöl leiðtoga ríkisstjórnarinnar
gætu ekki leyst forsætisráðherra
undan þeirri skyldu sem mælt er
fyrir um í 17. gr. stjórnarskrárinnar.
Yrði að virða Geir það til „stórkost-
legs gáleysis“ að hafa látið farast
fyrir að taka fyrir á stjórnarfundum
þann háska sem yfirvofandi var.
Dómarar MDE voru sammála um
að sýkna ríkið af kröfum sem varða
brot gegn 6. gr. MSE. Einn dómari
af sjö skilaði hins vegar sératkvæði
varðandi brot gegn 7. gr. MSE og
tók undir þau sjónarmið sem fram
komu í atkvæði minnihluta Lands-
dóms um að refsiheimildin hafi ekki
verið nægilega skýr.
„Sú niðurstaða Landsdóms að
sýkna mig af alvarlegustu sökunum
sem á mig voru bornar skiptir mestu
máli fyrir mig. Ég vann landsdóms-
málið efnislega. En í ljósi þess að ég
var sakfelldur án refsingar fyrir eitt
minni háttar atriði í málinu taldi
ég mér skylt að fá úr því skorið hjá
[MDE] hvort Alþingi hefði með
málsmeðferð sinni og málshöfðun
brotið gegn [MSE],“ segir í yfirlýsingu
frá Geir H. Haarde. Hann bætir því
við að hann virði niðurstöðu MDE.
„Mér finnst skiljanlegt að Geir
hafi látið á þetta reyna enda var mál
hans mjög merkilegt og um óvenju-
leg réttarhöld að ræða,“ segir hæsta-
réttarlögmaðurinn Geir Gestsson.
„Það kemur mér nokkuð á óvart,
miðað við hvað niðurstaða MDE í
málinu er afgerandi, að málið hafi
fengið efnismeðferð fyrir dómnum
í upphafi. Slíkt þýðir oft að þú sért
með sterkan málsstað og í raun bjóst
ég ekki við fyrirfram að ríkið yrði
sýknað,“ segir Geir.
Mannréttindadómstóllinn afgerandi í
því að sýkna ríkið í Landsdómsmálinu
Málsmeðferð íslenska ríkisins í aðdraganda Landsdómsmálsins og meðan á því stóð uppfyllti kröfur Mannréttindasáttmála Evrópu.
Fyrrverandi forsætisráðherra taldi að brotið hefði verið gegn tveimur greinum sáttmálans en ekki var fallist á rök hans. Einn dómari
skilaði sératkvæði í málinu. Hæstaréttarlögmaður segir óvænt hve afdráttarlaus niðurstaðan var í ljósi þess að málið fékk efnismeðferð.
Að mati Geirs vann hann Landsdómsmálið efnislega. Hann unir niðurstöðu MDE. FréttAbLADið/viLHELM
ArgentínA Óvenjulegur, stakur,
stuttur og kraftmikill atburður, lík-
legast sprenging, mældist í Suður-
Atlantshafi nærri þeirri staðsetn-
ingu þar sem horfinn argentínskur
kafbátur sást síðast. Frá þessu var
greint í gær en kafbáturinn, ARA
San Juan, hvarf á miðvikudag.
Argentínski herinn greindi frá
hinni líklegu sprengingu í gær en
alls hafa á annan tug ríkja boðið
yfirvöldum þar í landi aðstoð sína
við leitina að kafbátnum.
Vonir aðstandenda skipverjanna
44 um að áhöfnin væri enn á lífi
dvínuðu við þessi tíðindi og greinir
BBC frá því að aðstandendur hafi
brugðist bæði sorgmæddir og reiðir
við þegar þeir heyrðu tíðindin.
Aðstandendur voru staddir í sjó-
herstöðinni í Mar del Plata þar sem
herforingjar sögðu þeim frá spreng-
ingunni. Sökuðu sumir aðstandenda
herinn um að hafa logið að sér og
vakið falskar vonir. Aðrir bentu á
ríkisstjórnina sem sögð var ekki
hafa fjárfest nóg í hernum og að hún
hafi leyft spillingu að grassera innan
hans. Áhöfnin hafi þess vegna þurft
að sigla óöruggum og hættulegum
kafbát.
„Þeir drápu bróður minn, helvít-
is fíflin. Þeir drápu bróður minn,“
sagði bróðir eins skipverja við arg-
entínska dagblaðið Clarin í gær.
– þea
Áhöfn kafbátsins líklega látin
Aðstandendur áhafnarinnar eru reiðir yfirvöldum. NorDicpHotos/AFp
Jóhann Óli Eiðsson
johannoli@frettabladid.is
2 4 . n Ó v e M b e r 2 0 1 7 F Ö S t U D A g U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð
2
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
5
0
-F
0
A
0
1
E
5
0
-E
F
6
4
1
E
5
0
-E
E
2
8
1
E
5
0
-E
C
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
0
4
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K