Fréttablaðið - 24.11.2017, Page 18
Í hlýlegu og fallegu húsi í Hrafnagils-
hverfi í Eyjafirði búa hjónin Einar
Geirsson og Heiðdís Fjóla Pétursdótt-
ir. Í maí á þessu ári misstu þau son
sinn í slysi á Eyjafjarðarbraut sunnan
Hrafnagils. Óliver Einarssyni, syni
þeirra, sem fæddist í síðasta mánuði
ársins 2004, er lýst sem uppátækja-
sömum og glaðværum orkubolta sem
fór sínar eigin leiðir og hafði gaman af
lífinu. Þegar þau rifja upp þennan dag
segja þau vinnulagið á sjúkrahúsinu á
Akureyri hafa komið þeim á óvart og
að betur megi gera þegar hlúð er að
aðstandendum í sáru áfalli eftir ást-
vinamissi.
Fyrsti vinnudagur Ólivers
„Hann Óliver er að koma úr vinnu.
Það eru þemadagar í skólanum og
hann fær leyfi til að gerast vinnu-
maður hjá frændfólki okkar að
Hranastöðum. Þetta var því fyrsti
vinnudagurinn hans sem fjósamaður
á Hranastöðum hjá mágkonu minni
og svila. Hann var staðráðinn í að vera
alvöru vinnumaður þetta sumar,“
segir Einar. „Við höfðum farið yfir
hlutina hvaða leið hann skyldi fara
til vinnu. Hann fer á hjólinu sínu, er
alvanur hjólamaður, og hjólar fyrir
utan veg frá heimili sínu að Hrana-
stöðum. Hins vegar þarf að fara yfir
þjóðveginn á einum stað.“
Óliver var mjög vanur að hjóla og
hafði stundað þá iðju um nokkurt
skeið. Í eftirmiðdaginn var Óliver
svo á leið heim eftir vinnu þegar
Einar heyrir sírenuvæl æða í gegnum
Hrafnagilshverfið. „Ég var utandyra
með strákunum mínum að mála
grindverkið, það var góðviðrisdagur
og ég heyri sírenuvælið koma. Ég var
ekkert að velta því fyrir mér en fannst
þetta síðan verða heldur mikið þegar
ég heyri bæði í sjúkrabílum og lög-
reglu og þeir stansa rétt sunnan við
Hrafnagil,“ segir Einar og ákvað þá
að hringja upp á Hranastaði og spyrja
hvort ekki væri allt í lagi þar. „Þar er
mér tjáð að allt sé í stakasta lagi þar og
er spurður á móti hvort Óliver sé ekki
kominn heim. Þá vissi ég að eitthvað
væri að og rauk af stað.“
Þegar Einar kemur að slysstað sér
hann hjól sonar síns. Óliver hafði hins
vegar verið fluttur í snatri á sjúkra-
húsið á Akureyri.
„Heiðdís og elsta dóttir okkar eru
í bænum að undirbúa fermingu
hennar og því koma þær á undan á
sjúkrahúsið. Þar lendum við í nokkuð
skringilegum aðstæðum,“ bætir Einar
við.
Tildrög fyrst ókunn
„Alvarlegt umferðarslys varð á Eyja-
fjarðarbraut vestari rétt fyrir klukk-
an 16 í dag. Slysið varð á veginum
skammt sunnan við Hrafnagil,“ segir
í frétt Vísis af slysinu örlagaríka.
Enn fremur segir í tilkynningu lög-
reglunnar að strax hafi orðið ljóst
að um alvarlegt slys væri að ræða og
viðbragðsaðilar hefðu verið sendir á
staðinn í hæsta forgangi.
Tildrög slyssins voru þau að bif-
reið var ekið suður Eyjafjarðarbraut.
Þegar Óliver þarf að þvera veginn á
litla bifhjólinu sínu verður hann í
vegi bifreiðarinnar og lendir undir
henni. Keyrt er yfir brjóst hans og
hjálmurinn lendir í klafanum undir
jeppanum.
„Það sem kemur okkur svo mikið
á óvart er að bílstjórinn gat ekki
með nokkru móti sagt frá því hvað
gerðist. Það kemur svo í ljós að hann
hafði ekki fundið fyrir högginu þegar
hann keyrir yfir drenginn og var því
ekki viss um hvort hann hefði verið
valdur að slysinu,“ segir Heiðdís Fjóla.
„Einstaklingurinn sem kemur að slys-
inu sér hann bara einan á götunni því
maðurinn sem ók á hann var þá far-
Segja ekki haldið nógu vel um fólk í sorg
Hjónin Heiðdís Fjóla Pétursdóttir og Einar Geirsson misstu son sinn í maí síðastliðnum. Þau segja viðmót og aðstoð sjúkrahússins á
Akureyri ekki hafa verið upp á marga fiska þar sem þau fengu litla sem enga áfallahjálp á slysadeild eftir slysið sunnan Hrafnagils.
Hjónin Heiðdís Fjóla Pétursdóttir og Einar Geirsson misstu son sinn Óliver í maí síðastliðnum í slysi sunnan Hrafnagils. Fréttablaðið/Auðunn
Við ákváðum bara
að opna heimilið.
Leyfa fólki að koma og hitta
okkur.
Einar Geirsson, faðir Ólivers
inn af vettvangi til að leita aðstoðar.
Þegar hann kemur svo aftur segist
hann kannski eiga þátt í þessu en er
ekki viss.“
„Maðurinn sem ók á son okkar var
86 ára gamall með mikla heyrnar-
skerðingu og maður spyr sig svona
eftir á hvað þessi maður var að gera
með bílpróf svona á sig kominn,“ segir
Einar. „Líklegast vegna þess að hann
bjó einn lengst inni í firði og þurfti að
komast í búð og aftur heim til sín.
Þetta er auðvitað bara ömurlegt
slys fyrst og fremst og engum verður
kennt um slysið. Einnig verður líka
að segjast að við erum á gráu svæði
að leyfa honum að fara á hjólinu því
hann þarf að þvera þarna veginn. En
hann var þrælvanur hjólamaður, það
er ekki það,“ segir Einar og Heiðdís
Fjóla bætir við: „Hann hefði alveg eins
getað lent í þessu slysi á reiðhjóli.“
Ökumaður bifreiðarinnar sem varð
Óliver að bana þennan örlagaríka dag
varð bráðkvaddur 11 dögum síðar á
heimili sínu.
Á almennri biðstofu
Þegar Heiðdís Fjóla kemur upp á
bráðadeildina á sjúkrahúsinu er
henni boðið að setjast niður á bið-
stofunni innan um veika einstaklinga
sem biðu eftir læknatíma. „Maður
kemur inn í mikilli geðshræringu,
vitandi að barnið mitt er inni alvar-
lega slasað. Mér er sagt í móttökunni
að bíða í anddyrinu innan um fullan
biðsal af fólki. Mér fannst eins og eng-
inn vissi hvernig þetta ætti að vera. Ég
settist á stól alveg við innganginn á
bráðadeildina því mér fannst ég ekki
eiga heima þarna. Svo þegar Einar
kemur er okkur fljótlega vísað inn í
fjölskylduherbergið,“ segir Heiðdís.
„Við fáum síðan að fara inn í fjöl-
skylduherbergið. Þar bíðum við
fregna og manni fannst eins og fólkið
væri ekki undirbúið undir áfall sem
þetta hjá aðstandendum. Á þessum
tíma höfðum við enn ekki fengið
neinar upplýsingar um strákinn
okkar og hvernig honum liði.“
Þegar þau höfðu beðið inni í fjöl-
skylduherbergi á deildinni kemur
læknir til þeirra og segir að slysið
hafi verið alvarlegt og endurlífgun
sé í gangi. Reynsla Einars og Heið-
dísar Fjólu af veru sinni á bráðadeild
sjúkrahússins á Akureyri þennan dag
er ekki góð. Að þeirra mati vantaði
ríkara utanumhald um aðstandendur
sem biðu. „Hjúkrunarfræðingur sem
kom til okkar færði okkur vatn og
bauðst til að hringja á prest. Þannig
var okkar upplifun. Við fengum enga
sálgæslu eða áfallahjálp á sjúkrahús-
inu frá starfsmönnum þess á meðan
við vorum þar. Það var í raun ekki
hlúð að okkur í sorg fyrr en prestur
mætir á svæðið."
Bæklingar um næstu skref
Það sem Heiðdísi Fjólu finnst erfiðast
í minningunni er að hennar mati sú
ákvörðun hjúkrunarfræðings að láta
hana taka við bæklingum um hvað
taki við. „Svo kom hún með þessa
helvítis bæklinga. Bæklingar um að
nú þurfum við að finna föt handa
stráknum okkar, um kistulagningu,
að það þurfi að finna prest og fara að
undirbúa jarðarför. Þetta er það sem
við tökum með okkur af sjúkrahús-
inu.“
Heiðdís og Einar telja sig hafa verið
á bráðadeildinni í um þrjú korter þar
til tveir læknar koma til þeirra með
þær fréttir að sonur þeirra, 12 ára
gamall, sé látinn. „Það eina sem við
fáum svo er að fara út bakdyramegin,
með bæklingana í höndunum,“ segir
Heiðdís.
Erfitt að fá aðstoð við svefn
Hjónin lýsa því að þá um kvöldið hafi
fjölskyldumeðlimur farið á stúfana til
að útvega þeim aðstoð við að sofna þá
um nóttina. Mikilvægt hafi verið fyrir
þau að hvílast að einhverju ráði. „Svili
minn fór í það verkefni fyrir okkur að
fá svefntöflur eða eitthvað róandi fyrir
okkur svo hægt væri að sofna,“ segir
Einar. „Við vorum ekki í neinni stöðu
til að leggjast á koddann í því sálar-
ástandi sem við vorum í þetta kvöld.
Þetta gengur hálf brösuglega en á end-
anum fær hann kríaðar út þrjár töflur
af Sobril fyrir okkur á sjúkrahúsinu,“
bætir Heiðdís við.
„Þegar mágur minn er kominn upp
eftir að ná í töflurnar þrjár fær hann
yfirlestur um það hversu ávanabind-
andi þessar töflur nú séu og bent á
rannsóknir þessum orðum þeirra
til stuðnings. Við ættum sko að fara
varlega,“ segir Heiðdís og er nokkuð
niðri fyrir. „Í guðs bænum; við vorum
þarna, fjölskyldan, í sjokki heima
fyrir eftir að hafa misst barnið okkar
og það hefst með herkjum að hjálpa
okkur að sofna.“
Félagsauðurinn
Það er oft sagt að það þurfi heilt þorp
til að ala upp barn. Í því felst að sam-
félagið sem heild, tengsl manna og
samheldni búi í sameiningu að upp-
eldi barnanna. Þegar lífið gengur sinn
vanagang eru þessir kraftar að mestu
ósýnilegir. Það er hins vegar í áföllum
sem félagsauðurinn verður hverjum
manni augljós. Á sama tíma og það
tekur heilt þorp að ala upp barn, þá á
það einnig við um það þegar kveðja á
barn; samfélagið reis upp og aðstoð-
aði sem mest það mátti.
„Við fengum ótrúlega hjálp í kjöl-
farið, segir Heiðdís Fjóla. „Sá hópur
sem stendur að handverkshátíðinni
steig fram og aðstoðaði við svo margt.
Íbúar elduðu fyrir okkur fyrstu dag-
ana og sáu til þess að við hefðum tíma
til að hugsa um okkur sjálf. Vinir Ein-
ars úr kokkasamfélaginu aðstoðuðu
við veisluna að lokinni jarðarförinni
og svo mætti lengi telja. Þetta gerði
svo margt fyrir okkur og við erum svo
þakklát fólkinu okkar.“
Einar bætir við að þau hafi fljótlega
ákveðið að loka ekki á samfélagið.
„Við ákváðum bara að opna heimil-
ið. Leyfa fólki að koma og hitta okkur.
Bekkjarsystkini barna okkar fengu að
koma og ræða við okkur í rólegheit-
um, við bara buðum fólki að koma í
heimsókn og svo gerðum við jarðar-
förina barnvæna,“ segir Einar. „Þetta
var ekki týpísk jarðarför, þetta var
meira í hans anda, að hafa gaman.“
Fór eigin leiðir
Óliver var að sögn foreldra sinna
atorkusamur og gerði það sem hann
langaði til að gera. „Ef honum leidd-
ist í skólanum þá átti hann það til
að fara út um gluggann í kennslu-
stofunni,“ segir Einar og hlær. Hann
hafði gaman af lífinu og við fráfall
hans skildi hann eftir nokkurt tóma-
rúm í lífi fjölskyldunnar. „Maður þarf
Sveinn
Arnarsson
sveinn@frettabladid.is
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r16 F r é T T i r ∙ F r é T T A b L A ð i ð
2
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
5
0
-C
4
3
0
1
E
5
0
-C
2
F
4
1
E
5
0
-C
1
B
8
1
E
5
0
-C
0
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
0
4
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K