Fréttablaðið - 24.11.2017, Page 40

Fréttablaðið - 24.11.2017, Page 40
Við ökum suður með Kleifar­vatni, suður í Krýsuvík, sýnum umhverfinu vakandi áhuga og sjáum að landið hefur margbreytilega ásýnd. Augljós ein­ kenni eru víða um uppblástur og gróðureyðingu. Þegar við erum komin langleiðina að Suður­ strandar vegi, tekur steininn úr. Skyndilega umbreytist landið, úr mýrlendi í gróðursnauða auðn. Þetta er undravert því við erum hvorki uppi á hálendi né er hér sér­ lega þurrkasamt. Það er í raun fátt sem þjakar þetta land, ekki annað en íslenskar aðstæður. Á þessu land­ svæði erum við í u.þ.b. 100 m hæð yfir sjó, u.þ.b. 3 km frá suðurströnd­ inni og þarna er sannarlega enginn skortur á úrkomu. Samt er eins og gróður hafi verið gerður útlægur héðan. Myndin sem hér fylgir gefur ögn fyllri lýsingu, frá miðjum sept­ ember þegar gróður er í hámarki. Brún moldin, hnullungar og berg­ mylsna. Hvar er gróðurinn? Leitum í sögunni til glöggvunar. Byggð hefur verið í Krýsuvík frá landnámi og ýmsar sagnir, sumar æði dularfullar, eru til um landnám þar. Þetta þótti ein af betri fjár­ jörðum landsins um aldir. Örlaga­ ríkasta augnablikið í sögu staðarins tengist því að árið 1880 hóf búskap í Krýsuvík einn fjárríkasti bóndi landsins sem flutti þangað af jörð sinni í Vestur­Skaftafellssýslu með um 2.000 fjár. Þessari stóru fjárhjörð ætlaði hann að  beita á stórt land Krýsuvíkurjarðarinnar, ekki síst á það land sem hér um ræðir. Þær áætlanir hafa ekki verið mótaðar undir heillastjörnu. Hinn alræmdi níundi áratugur 19. aldar reið í garð með sína tíðarfarsbresti, sem m.a. leiddu til mjög aukins landflótta til Vesturheims. Það voru sannarlega erfiðir tímar og um þetta leyti yrkir séra Matthías um fósturjörðina: Volaða land, horsælu hérvistar slóðir, húsgangsins trúfasta móðir, volaða land! Áform bóndans í Krýsuvík fóru fyrir lítið en það sem meira var, landgæði glötuðust til langframa. Veðráttan og búnaður bóndans flettu landið af gróðri og skógi. Afrakstursgeta jarðvegsins fauk sömu leið. Náttúran og maðurinn unnu hér saman að varanlegri gróður­ og jarðvegseyðingu. Í hnot­ skurn, harmsaga gróðurs og jarð­ vegs í þessu landi. Landið hefur ekki náð sér síðan og lengi vel voru engar ráðstafanir gerðar því til lífs. Gömul örnefni geyma þó þann hugblæ sem landið vakti með búendum fyrr á tíð. Para­ dís var t.d. nafn á trjálundi sem stóð undir Geitahlíð, en er nú horfinn. Öldin er sú 21., ekki sú 19. Annað tíðarfar, annar tíðarandi. Verkefni sem kallast Vistvangur er komið af stað og er unnið að frumkvæði sam­ takanna Gróður fyrir fólk í Land­ námi Ingólfs (GFF) í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ og með aðkomu hafnfirskra félaga og stofnana, eins og t.d. Skógræktarfélags Hafnar­ fjarðar, Flensborgarskólans og grunnskóla í Hafnarfirði. Helsta markmið með Vistvangi er að færa landinu líf með notkun lífrænna úrgangsefna. Notað verður hrossatað úr Hafnar firði og ýmislegt annað líf­ rænt sem fellur til. Verkefnið hófst í apríl 2016 með trjáplöntun 140 nemenda úr Flensborg og þegar er búið að taka við næstum 1.500 rúm­ metrum af hrossataði. Ætlunin er að „nota ferðina“ og virkja skólana til að stunda útiskóla og að svæðið megi nýta til ýmissa rannsókna. Vonir standa til að önnur sveitar­ félög á höfuðborgarsvæðinu taki þátt í verkefninu enda er svæðið stórt, um 300 ha. Vistvangur er umtalsverð afborgun landsmanna upp í skuldina við landið. Vistvangur – lífgun á örfoka landi Björn Guðbrandur Jónsson framkvæmda- stjóri GFF Jónatan Garðarsson formaður Skóg- ræktarfélags Hafnarfjarðar Mynd tekin til vesturs á Vistvangi þann 10. sept. sl. Sjá má móta fyrir Krýsu- víkurvegi ofarlega yst til vinstri. Arnarfell ofarlega fyrir miðri mynd og Reykja- nesfjöllin þar að baki. U.þ.b. 3 km eru til sjávar. Græni liturinn sem sést móta fyrir kemur upp úr taðhrúgum sem þar bíða uppgræðslu næsta árs. Mynd frá Vistvangi þann 9.okt sl. Stóra-Eldborg í baksýn, Geitahlíð til vinstri. Næst er tað sem dreift var 2017, um miðja mynd er gróðurþekja sem lögð voru drög að á upphafsárinu 2016 og fjær sjást taðhaugar sem koma til dreifingar árið 2018. Samkvæmt 65. gr. stjórnarskrár­innar skulu allir vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoð­ ana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Nýleg dæmi sýna að verulega skortir á það hér á landi að eftir þessu sé farið. Þegar Mannréttindasáttmáli Evrópu (MSE) var lögfestur hér á landi árið 1994 og nokkur helstu efnisatriði hans í kjölfarið tekin upp í stjórnarskrána var því almennt fagnað af þeim sem láta sig slík málefni einhverju varða. Staðreyndin er hins vegar sú að erfið­ lega hefur gengið að fá dómstóla og ákæruvald hér á landi til að fara eftir þessum reglum þegar á hefur reynt. Í september sl. gekk dómur í Hæstarétti þar sem ákvæði MSE um bann við tvöfaldri refsingu og tvö­ faldri málsmeðferð út af sama atviki var til sérstakrar umfjöllunar. Hér var mikið í húfi, því að Mannréttinda­ dómstóll Evrópu hafði fyrr á þessu ári komist að niðurstöðu um að brotið hefði verið á tveimur mönnum hér á landi með dómi Hæstaréttar í sam­ kynja máli. Hæstiréttur ákvað að sjö dómarar skyldu dæma í þessu máli. Allir sjö dómararnir höfðu sakfellt menn í samkynja málum áður, en nú skyldi verða til nýtt dómafordæmi til framtíðarbrúks. Niðurstaðan er öllum kunn – sex dómarar af sjö fóru ákveðna hjáleið framhjá kjarna máls­ ins og kváðu upp dóm sem er í sam­ ræmi við fyrri afstöðu réttarins. Þetta nýja fordæmi Hæstaréttar hefur engu að síður leitt til þess að ákæruvaldið hefur ákveðið að fylgja ekki eftir refsikröfum í allmiklum fjölda mála sem voru til meðferðar á þeim tíma sem dómur Hæsta­ réttar gekk í september. Jafnframt hefur ákæruvaldið ákveðið að fylgja öðrum samkynja málum eftir fyrir dómi og hafa þar uppi ítrustu refsi­ kröfur. Af dæmum sem undirritaður hefur séð virðist það ráða ákvörðun ákæruvaldsins í þessum málum, að hafi sakborningur ákveðið að skjóta ágreiningi um skattskyldu til yfir­ skattanefndar og ekki fengið álagn­ ingu fellda niður þar skuli hann fá að svara til saka fyrir dómi líka. Jafnræðisreglu ekki fylgt Í þessum tilvikum er augljóst að áðurnefndri jafnræðisreglu stjórnar­ skrárinnar er ekki fylgt. Meðan regl­ unni um bann við tvöfaldri refsingu er fylgt gagnvart sumum eru aðrir sóttir til saka fyrir dómi án tillits til reglunnar. Hér er ekki um tilvilj­ anir að ræða, heldur ákvarðanir sem teknar eru að yfirlögðu ráði. Ég skora á embætti héraðssak­ sóknara að birta hið fyrsta opinber­ lega upplýsingar um eftirfarandi: l Hve mörg mál voru í biðstöðu hjá embættinu meðan beðið var dóms í hæstaréttarmálinu nr. 283/2016? Í hve mörgum þeirra hafði sakborningur borið ágrein­ ing um skattskyldu undir yfir­ skattanefnd? l Í hve mörgum þessara mála hafði verið gefin út ákæra og hve mörg voru á rannsóknarstigi hjá emb­ ættinu? l Hve mörg málanna sem ákært hafði verið í hafa verið eða stendur til að fella niður af ákæruvaldinu? Í hve mörgum þeirra hafði sak­ borningur borið ágreining um skattskyldu undir yfirskatta­ nefnd? l Hve mörg málanna sem voru til rannsóknar hjá embættinu hafa verið felld niður? Í hve mörgum þessara mála hafði ágreiningur um skattskyldu verið borinn undir yfirskattanefnd? Eru allir jafnir fyrir lögum? Ragnar Halldór Hall lögmaður Ég stóð einu sinni við hlið manns í Skagafirði og ræddi við hann um kirkjuna í heima­ byggð hans. Orð hans voru eftir­ minnileg og opnuðu mér glugga að viðhorfi fólks um allt land, jafnvel óháð trú eða vantrú. Hann sagði: „Þetta er kirkjan okkar. Kirkjan er hluti af okkur. Við viljum halda í hana og hafa hana fallega.“ Svo skýrði hann mál sitt og mér vitrað­ ist að kirkjan var honum mun meira en bara guðsþjónusturými. Hún var manninum tákn um líf fólksins hans, sögu þess og menningu. Víða hef ég heyrt fólk tala með svipuðum hætti um kirkjuna sína. Sögur þeirra eru ástarsögur, ekki um spýtur, steypu og gler, heldur um líf fólks og menningu. Kirkjuhúsin þjóna ekki einu heldur mörgum og mismunandi hlutverkum. Ferðafólk á leið um landið vitjar þeirra. Margir skoða kirkjur og garðana umhverfis þær vegna þess m.a. að þar eru menn­ ingarminjar. Þær tjá sjálfsviðhorf fólks í sókninni og getu samfélags­ ins. Fólk vill, að kirkjuhúsin séu falleg og þykir ótækt að þau grotni niður þó erfitt sé að finna fé til að kosta viðgerðir. Þeim er jafnvel haldið við eftir að allt fólk er flutt úr sveitinni. Svo eru þessi hús umgjörð um mikilvægustu athafnir í lífi fólks, staðir lifandi orðs og samfélags. Ytri umgjörð á að vera í samræmi við inntakið. Kirkjur eru gjarnan tákn um sögu viðkomandi byggðar og samhengi þeirra kynslóða, sem eiga sér sam­ eiginlegan helgidóm, jafnvel um aldir. Kirkjur eru tákn, sem vísa til gilda og tilgangs. Hvert sam­ félag þarfnast skírskotunar um sið og hlutverk. Kirkjur þjóna ekki aðeins því hlutverki að teikna línur í landslag, vera kennileiti í sveit eða augnhvílur fólks á ferð. Kirkjuhús eru tákn um að mannfélag eigi sér dýpri rök og gilt samhengi, sem ekki bregst í hverfulum heimi. Það er skírskotun helgistaða. Ástartjáning fólks gagnvart kirkjum þeirra heillar. Og rímar við ástarsögu Guðs í erkifrásögn kristn­ innar um að lífið sé gott og dauðan­ um sterkara. Við mannfólkið erum aðilar þeirrar sögu. „Meðan kirkjan stendur mun þessi byggð standa,“ var sagt um kirkju í Vestur­Skaftafellssýslu. Kirkjuhúsin tjá hvaða viðhorf við höfum  til menningar okkar. Við seljum ekki eða förgum því sem við elskum heldur verndum og gætum. „Ég elska þessa kirkju,“ sagði kona við mig og átti bæði við húsið og erindi hennar. Góðar ástarsögur hrífa. Ástarsögur Kirkjur eru gjarnan tákn um sögu viðkomandi byggðar og samhengi þeirra kynslóða, sem eiga sér sameiginlegan helgidóm, jafnvel um aldir. Sigurður Árni Þórðarson prestur Meðan reglunni um bann við tvöfaldri refsingu er fylgt gagnvart sumum eru aðrir sóttir til saka fyrir dómi án tillits til reglunnar. Hér er ekki um tilviljanir að ræða, heldur ákvarðanir sem teknar eru að yfirlögðu ráði. Þegar við erum komin langleiðina að Suður- strandarvegi, tekur steininn úr. Skyndilega umbreytist landið, úr mýrlendi í gróður- snauða auðn. visir.is Sjá má lengri útgáfu greinarinnar á Vísi. 2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r38 S k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 2 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 1 0 4 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 5 1 -2 B E 0 1 E 5 1 -2 A A 4 1 E 5 1 -2 9 6 8 1 E 5 1 -2 8 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 0 4 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.