Fréttablaðið - 24.11.2017, Síða 56
Svartur föstudagur hefur markað upphaf jólaverslunar í Bandaríkjunum frá árinu
1951. Dagurinn er alltaf fjórði
föstudagur í nóvember og miðast
við þakkargjörðarhátíðina sem
er fjórða fimmtudag í nóvember
en hún er brennidepill verslunar
fram að þessum degi. Verslunar-
eigendur hafa haft fyrir sið að
opna búðir sínar eldsnemma
daginn eftir, föstudaginn svarta,
klukkan sex, fimm og jafnvel
fjögur á morgnana. Og viðskipta-
vinir láta sig margir hverjir hafa
það að gista í tjöldum fyrir framan
verslanir til að komast sem fyrst
inn þegar opnað er. Ástæðan er
gríðargóður afsláttur og tilboð
sem gilda aðeins þennan dag.
Sögulega þótti ekki við hæfi að
auglýsa jólavarning fyrr en eftir
að þakkargjörðarhátíðinni, sem
sameinar alla Bandaríkjamenn,
var lokið og er þessi tilboðsdagur
viðbragð kaupmanna til þess að
koma jólaversluninni af stað af
krafti.
Svarta viðurnefnið á deginum á
sér ýmsar skýringar. Ein er sú að
á þessum degi breyttust hagn-
aðartölur verslana úr rauðu sem
þýðir mínus yfir í svart sem þýðir
að þær séu í plús og önnur eldri
skýring segir að liturinn vísi til
þess að verkamenn hafi stundað
að tilkynna veikindi þennan dag
til að ná sér í fjögurra daga helgi en
föstudagurinn eftir þakkargjörðar-
daginn er ekki opinber frídagur og
þar af leiðandi ekki rauður dagur
í dagatalinu heldur svartur. Aðrir
segja að það vísi í umferðaröng-
þveitið sem skapast þegar allir
flykkjast í verslanir til að ná sér
í jólagjafir á góðu verði. Þá eru
sumir sem benda á ofbeldisverk
sem hafa verið framin af kaup-
glöðum viðskiptavinum. Eitt það
óhugnanlegasta er þegar æstur
múgur tróð öryggisvörð undir
í Valley Stream, smábæ í New
York ríki, árið 2008 með þeim
afleiðingum að maðurinn lést. Þá
hafa fjölmargir látist af skotsárum
í bardögum um bílastæði, stað í
röð eða síðasta eintakið af vöru á
einstöku tilboðsverði og kona ein
í Kaliforníu sprautaði piparúða á
fólk sem var á undan henni í röð í
leikfangaverslun.
Síðustu ár hefur stór kúfur af
svarta föstudeginum færst yfir
í netverslun mánudaginn eftir
sem hefur verið kallaður Cyber
Monday eða netheimamánudagur.
Þetta dregur vissulega úr slysum og
ofbeldi, í raunheimum að minnsta
kosti. Netmánudagurinn er svar
minni söluaðila við föstudeginum
svarta og er mest keypt af fatnaði
og tískuvörum þann dag og mun
meira en á föstudeginum.
Neytendasamtök víða um heim
hafa bent á að eins og með aðra
afslætti borgi sig samt að athuga
hversu mikill afslátturinn er í raun
og veru með því að bera saman
fyrri verð á vörum við verð með
afslætti á stórtilboðsdögum og
ekki láta glepjast af smitandi
kaupgleðinni.
Hérlendis hefur svartur föstu-
dagur eða svartur fössari eins og
sumir vilja kalla hann náð æ meiri
fótfestu, fyrst í netverslun en nú
má sjá honum stað í raftækja-
verslunum, ritfangaverslunum og
jafnvel hefur það gerst að bif-
reiðaumboð bjóða einstök tilboð
á þessum degi.
Markar upphaf jólaverslunar
Jólaverslunin hefst ekki fyrr en fimm vikum fyrir jól í Bandaríkjunum en þá
spýtir fólk líka heldur betur í lófana.
Hugtakið „svartur
föstudagur“ á
sér langa sögu í
Bandaríkjunum
en hérlendis er
tiltölulega stutt
síðan sá siður
verslunareigenda
að bjóða mikinn
afslátt fjórða
föstudag í nóv-
embermánuði
náði fótfestu.
Jólakötturinn kemur í heimsókn í C is for Cookie á sunnudaginn.
Jólabækurnar flæða nú yfir land og lýð og því bera vitni fjölmörg upplestrarkvöld
sem haldin eru víða um land. Á
kaffihúsinu C is for Cookie sem
stendur við Óðinstorg verður
lesið úr jólabókum í næstu viku
og eitthvað fram eftir jólaföst-
unni.
Á sunnudaginn klukkan tvö
verður áherslan á barna- og ungl-
ingabækur en þá lesa Brian Pilk-
ington og Sævar Helgi Bragason
úr nýútkomnum bókum sínum
um jólaketti og geimverur. Næsta
þriðjudagskvöld, 28. nóvember,
klukkan átta verður áherslan á
ævisögur og endurminningar
en þá lesa Silja Aðalsteinsdóttir,
Jón Gnarr og Sigmundur Ernir
Rúnarsson úr verkum sínum og
fimmtudags kvöldið 30. nóvem-
ber klukkan átta eru það svo Gísli
Pálsson, Adolf Smári Unnarsson
og Orri Páll Ormarsson sem fá
sviðið með bækur sínar. Á dag-
skránni í desember eru meðal
annars ljóðakvöld 5. desember
og sitthvað fleira sem kemur í ljós
þegar nær dregur.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir
en nánari upplýsingar má fá á
Facebook-síðunni C is for Cookie.
Lesið úr jólabókum
við Óðinstorg
12 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . N Óv e M B e R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
2
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
5
1
-3
A
B
0
1
E
5
1
-3
9
7
4
1
E
5
1
-3
8
3
8
1
E
5
1
-3
6
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K