Fréttablaðið - 24.11.2017, Page 72
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r54 b í l A r ∙ F r É T T A b l A ð i ð
Undanfarið eitt og hálft ár hafa sex bílar sem knúðir eru metanóli verið í reynsluakstri á Íslandi. Um er að ræða bíla af tegund-
inni Geely Emgrand, en kínverskur
framleiðandi þeirra er hluthafi í
íslenska hátæknifyrirtækinu Carbon
Recycling International (CRI) sem
framleiðir vistvænt metanól úr kol-
tvísýringi (CO2) og vetni í verksmiðju
sinni við orkuverið í Svartsengi. Í
fyrsta áfanga þessara prófana hefur
bílunum verið ekið rúmlega 150.000
km. Meðal ökumanna í prófunum
metanólbílanna eru, auk starfsfólks
CRI, utanaðkomandi álitsgjafar, til
að mynda frá Bílgreinasambandinu
og Frumherja.
Reynsluakstur bílanna er sam-
starfsverkefni kínverska bílafram-
leiðandans, CRI og Brimborgar. Nær
enginn munur er á notkun metanól-
bílanna og hefðbundinna bensínbíla,
en bílarnir geta ekið á hvorutveggja
eldsneytinu. Þar sem metanólið er
framleitt úr rafmagni og koltvísýringi
veldur notkun þess mun minni losun
gróðurhúsalofttegunda í samanburði
við sambærilegan bíl sem gengur fyrir
bensíni eða dísilolíu.
Dregur úr losun á koltvísýringi
Að sögn Ómars Sigurbjörnssonar,
framkvæmdastjóra sölu- og markaðs-
mála hjá CRI, sem stjórnaði prófun-
unum nemur samdráttur í losun frá
metanólbílunum 70% í samanburði
við bensínbíl með sömu eiginleika,
þegar tillit er tekið til eyðslu og allra
þátta í framleiðslu og dreifingu elds-
neytisins. „Losunin er 46 grömm CO2
ígildis á ekinn kílómetra. Þá er bruni
metanólsins mun hreinni en ef notað
væri bensín, hvað þá dísilolía. Bruni
metanóls veldur engri sótmengun,
auk þess er það laust við brennistein
og krabbameinsvaldandi efnasam-
bönd sem verða til við bruna bensíns
og dísils.“
Að sögn Ómars er gert ráð fyrir að
metanólbílar komi til með að vera
samkeppnishæfir við hefðbundna
bensínbíla, tengiltvinnbíla og raf-
magnsbíla í innkaupum og rekstri
þegar þeir koma á markað hér á landi.
„Niðurstöðurnar gefa jákvæð fyrir-
heit og er CRI ásamt samstarfsaðilum
sínum að leggja drög að næstu skref-
um,“ segir Ómar. „Við teljum að hægt
sé að draga verulega úr losun frá sam-
göngum en til þess þarf að horfa til
fleiri kosta en rafvæðingar sem tekur
fyrst og fremst til minni bíla í þéttbýli.
Ef ætlunin er að mæta þeim skuld-
bindingum sem íslensk stjórnvöld
hafa gengist undir er minni losun frá
samgöngum lykilatriði og til þess þarf
að taka á öllu samgöngukerfinu, auð-
velda ekki bara orkuskipti fyrir minni
einkabíla heldur einnig í stærri farar-
tækjum.“
Metanól á heimamarkaði
Geely þróaði bílana fyrir heimamark-
að í Kína, þar sem notkun metan óls
sem eldsneytis hefur stóraukist á
undanförnum árum. Samkvæmt
nýlegri rannsókn bandarísku orku-
stofnunarinnar EIA notuðu Kínverjar
um 500.000 föt olíuígildis af metanóli
á dag sem eldsneyti árið 2016, en það
jafngildir meira en 15% af notkun
bensíns á sama tíma.
Sjanghæ, sem er fjölmennasta borg
landsins, og 13 af 23 héröðum í Kína
hafa þegar innleitt staðla fyrir blöndur
metanóls og bensíns. Algengasta
blandan er 15% metanól á móti 85%
bensíns. Kínverjar framleiða megnið
af því metanóli sem notað er sem
eldsneyti og til efnaiðnaðar innlands,
úr kolum. CRI vinnur nú með sam-
starfsaðilum í Kína að því að byggja
upp umhverfisvænni framleiðslu með
tækninni sem þróuð var hér á landi.
Eins og hefðbundnir bílar
Geely Emgrand 7 bílarnir eru hefð-
bundnir fjögurra dyra fólksbílar í
millistærð. Þeir eru búnir 1800 cc.
127 hestafla vél með rafkveikju sem
brennt getur hvort tveggja hreinu
metanóli eða bensíni. Bílarnir eru
búnir tveimur eldsneytistönkum, 50
lítra metanóltanki og 10 lítra bensín-
tanki.
Metanól er fljótandi eldsneyti og
því er hægt að dreifa því á hefðbund-
inni eldsneytisdælu. Vélartölvan í
Geely-bílunum ræsir á bensíni og
skiptir síðan sjálfkrafa yfir á metanól
þegar réttu hitastigi vélarinnar er
náð, oftast innan örfárra mínútna
frá því að bíllinn fer í gang. Ástæðan
fyrir því að tvær tegundir eldsneytis
eru notaðar er að ólíkt bensíni, sem er
rokgjarnt efni, er metanól stöðugt við
lágt hitastig og gufar hægt upp. Með
því að ræsa á rokgjarnara eldsneyt-
inu er komið í veg fyrir vandamál við
kaldræsingu. Ökumaður verður ekki
var við það þegar bíllinn skiptir yfir á
annað eldsneyti.
Geely vinnur nú að nýrri hönnun
þar sem bílarnir verða aðeins búnir
metanóltanki og ekki er þörf á að ræsa
á bensíni. Bílarnir eru áþekkir Skoda
Octavia eða Toyota Corolla að stærð
og með ágætu rými fyrir farþega og
í farangursgeymslu. Af aukabúnaði í
bílunum má nefna leðursæti, snerti-
skjá í mælaborði, bakkmyndavél og
fjarlægðarnema í afturstuðara.
Kallar á litlar breytingar
Metanól hefur verið notað í aksturs-
íþróttum, s.s. Indy-kappakstrinum í
Bandaríkjunum og kvartmílukeppni
víða um heim, þar á meðal hér á landi.
Ólíkt metangasi og vetni þarf ekki
breytta aðferð og dýrari tækjabúnað
til að geyma og dreifa metanóli á
bensínstöðvum. Geely framleiðir
metanólbíla sína samhliða bensín-
bílunum í sömu bílaverksmiðjunum
sem dregur úr framleiðslukostnaði.
Að sögn Ómars er hægt að nota
metanól jafnt á hefðbundnar vélar
og efnarafala, þar sem metanóli er
breytt beint í rafmagn. „Metanól fram-
leitt með aðferð CRI er eitt umhverfis-
vænsta fljótandi eldsneyti sem völ er
á. Það brennur án sótmengunar og
hefur háa oktantölu sem gefur mögu-
leika á að hanna léttar og aflmiklar
vélar með nýtni umfram hefðbundnar
bensín- eða dísilvélar.
Við höfum einnig verið í samstarfi
við danskan framleiðanda á metanól
efnarafölum þar sem okkar eldsneyti
hefur verið notað til að auka drægi á
rafbílum og ferjum sem ganga fyrir
rafmagni,“ segir Ómar. Má því segja
að framleiðsla á metanóli með raforku
og notkun þess í stað bensíns og dísils
bjóði upp á rafvæðingu á stærri hluta
samgöngukerfisins og í sjávarútvegi.
Jákvæðar niðurstöður
af reynsluakstri metanólbíla á Íslandi
Bílaflotinn sem er nú í reynsluakstri hérlendis með eldsneyti frá Carbon Recycling International.
Volvo XC40 settur saman í verksmiðjunni í Gent í Belgíu.
Talsverður spenningur er fyrir til-
komu nýs jepplings frá Volvo, þ.e.
XC40, en raðsmíði hans er hafin í
verksmiðju Volvo í Gent í Belgíu. Þó
svo bíllinn komi ekki á markað fyrr
en á fyrstu mánuðum næsta árs eru
nú þegar komnar 13.000 pantanir í
hann. Það verður því í nógu að snú-
ast fyrir starfsfólk verksmiðjunnar í
Gent við að fylla upp í þær pantanir.
Volvo XC40 er fyrsti bíll Volvo sem
byggður er á CMA-undirvagninum
sem er sameiginlegur með Geely-
og Volvo-bílum, en kínverski bíla-
smiðurinn Geely er núverandi eig-
andi Volvo. Í verksmiðjunni í Gent
eru líka smíðaðir Volvo V40, V40
Cross Country, S60 og V60 bílarnir.
Í verksmiðjunni þurfti að bæta við
363 nýjum róbotum til smíði XC40
bílsins og var hún að auki stækkuð
lítillega. Áhugasamir íslenskir
kaupendur ættu ekki að þurfa að
bíða mjög lengi eftir komu Volvo
XC40, en hann mun koma í Brim-
borg á fyrsta ársfjórðungi næsta árs
og mun hann kosta frá 5.990.000
krónum og er þar um að ræða fjór-
hjóladrifna bíla. Fyrstu bílarnir sem
munu rúlla út úr verksmiðjunni í
Gent eru eingöngu fjórhjóladrifnir,
en í kjölfarið verða í boði framhjóla-
drifnar og talsvert ódýrari útgáfur af
þessum bíl.
Smíði Volvo XC40 hafin í Belgíu
Bruni metanóls er
mun hreinni en ef
notað væri bensín,
hvað þá dísilolía.
Bruni metanóls veld-
ur engri sótmengun,
auk þess er það laust
við brennistein og
krabbameinsvald-
andi efnasambönd.
reynsluakstur
Finnur
Thorlacius
finnurth@365.is
Samdráttur Í
loSun frá metan
ólBÍlunum nemur 70% Í
SamanBurði Við BenSÍnBÍl
með Sömu eiginleika.
13.000
fyrirframpantanir hafa
BoriSt VolVo Í BÍlinn nýJa.
Bílar
2
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
5
1
-0
4
6
0
1
E
5
1
-0
3
2
4
1
E
5
1
-0
1
E
8
1
E
5
1
-0
0
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
0
4
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K