Fréttablaðið - 24.11.2017, Síða 72

Fréttablaðið - 24.11.2017, Síða 72
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r54 b í l A r ∙ F r É T T A b l A ð i ð Undanfarið eitt og hálft ár hafa sex bílar sem knúðir eru metanóli verið í reynsluakstri á Íslandi. Um er að ræða bíla af tegund- inni Geely Emgrand, en kínverskur framleiðandi þeirra er hluthafi í íslenska hátæknifyrirtækinu Carbon Recycling International (CRI) sem framleiðir vistvænt metanól úr kol- tvísýringi (CO2) og vetni í verksmiðju sinni við orkuverið í Svartsengi. Í fyrsta áfanga þessara prófana hefur bílunum verið ekið rúmlega 150.000 km. Meðal ökumanna í prófunum metanólbílanna eru, auk starfsfólks CRI, utanaðkomandi álitsgjafar, til að mynda frá Bílgreinasambandinu og Frumherja. Reynsluakstur bílanna er sam- starfsverkefni kínverska bílafram- leiðandans, CRI og Brimborgar. Nær enginn munur er á notkun metanól- bílanna og hefðbundinna bensínbíla, en bílarnir geta ekið á hvorutveggja eldsneytinu. Þar sem metanólið er framleitt úr rafmagni og koltvísýringi veldur notkun þess mun minni losun gróðurhúsalofttegunda í samanburði við sambærilegan bíl sem gengur fyrir bensíni eða dísilolíu. Dregur úr losun á koltvísýringi Að sögn Ómars Sigurbjörnssonar, framkvæmdastjóra sölu- og markaðs- mála hjá CRI, sem stjórnaði prófun- unum nemur samdráttur í losun frá metanólbílunum 70% í samanburði við bensínbíl með sömu eiginleika, þegar tillit er tekið til eyðslu og allra þátta í framleiðslu og dreifingu elds- neytisins. „Losunin er 46 grömm CO2 ígildis á ekinn kílómetra. Þá er bruni metanólsins mun hreinni en ef notað væri bensín, hvað þá dísilolía. Bruni metanóls veldur engri sótmengun, auk þess er það laust við brennistein og krabbameinsvaldandi efnasam- bönd sem verða til við bruna bensíns og dísils.“ Að sögn Ómars er gert ráð fyrir að metanólbílar komi til með að vera samkeppnishæfir við hefðbundna bensínbíla, tengiltvinnbíla og raf- magnsbíla í innkaupum og rekstri þegar þeir koma á markað hér á landi. „Niðurstöðurnar gefa jákvæð fyrir- heit og er CRI ásamt samstarfsaðilum sínum að leggja drög að næstu skref- um,“ segir Ómar. „Við teljum að hægt sé að draga verulega úr losun frá sam- göngum en til þess þarf að horfa til fleiri kosta en rafvæðingar sem tekur fyrst og fremst til minni bíla í þéttbýli. Ef ætlunin er að mæta þeim skuld- bindingum sem íslensk stjórnvöld hafa gengist undir er minni losun frá samgöngum lykilatriði og til þess þarf að taka á öllu samgöngukerfinu, auð- velda ekki bara orkuskipti fyrir minni einkabíla heldur einnig í stærri farar- tækjum.“ Metanól á heimamarkaði Geely þróaði bílana fyrir heimamark- að í Kína, þar sem notkun metan óls sem eldsneytis hefur stóraukist á undanförnum árum. Samkvæmt nýlegri rannsókn bandarísku orku- stofnunarinnar EIA notuðu Kínverjar um 500.000 föt olíuígildis af metanóli á dag sem eldsneyti árið 2016, en það jafngildir meira en 15% af notkun bensíns á sama tíma. Sjanghæ, sem er fjölmennasta borg landsins, og 13 af 23 héröðum í Kína hafa þegar innleitt staðla fyrir blöndur metanóls og bensíns. Algengasta blandan er 15% metanól á móti 85% bensíns. Kínverjar framleiða megnið af því metanóli sem notað er sem eldsneyti og til efnaiðnaðar innlands, úr kolum. CRI vinnur nú með sam- starfsaðilum í Kína að því að byggja upp umhverfisvænni framleiðslu með tækninni sem þróuð var hér á landi. Eins og hefðbundnir bílar Geely Emgrand 7 bílarnir eru hefð- bundnir fjögurra dyra fólksbílar í millistærð. Þeir eru búnir 1800 cc. 127 hestafla vél með rafkveikju sem brennt getur hvort tveggja hreinu metanóli eða bensíni. Bílarnir eru búnir tveimur eldsneytistönkum, 50 lítra metanóltanki og 10 lítra bensín- tanki. Metanól er fljótandi eldsneyti og því er hægt að dreifa því á hefðbund- inni eldsneytisdælu. Vélartölvan í Geely-bílunum ræsir á bensíni og skiptir síðan sjálfkrafa yfir á metanól þegar réttu hitastigi vélarinnar er náð, oftast innan örfárra mínútna frá því að bíllinn fer í gang. Ástæðan fyrir því að tvær tegundir eldsneytis eru notaðar er að ólíkt bensíni, sem er rokgjarnt efni, er metanól stöðugt við lágt hitastig og gufar hægt upp. Með því að ræsa á rokgjarnara eldsneyt- inu er komið í veg fyrir vandamál við kaldræsingu. Ökumaður verður ekki var við það þegar bíllinn skiptir yfir á annað eldsneyti. Geely vinnur nú að nýrri hönnun þar sem bílarnir verða aðeins búnir metanóltanki og ekki er þörf á að ræsa á bensíni. Bílarnir eru áþekkir Skoda Octavia eða Toyota Corolla að stærð og með ágætu rými fyrir farþega og í farangursgeymslu. Af aukabúnaði í bílunum má nefna leðursæti, snerti- skjá í mælaborði, bakkmyndavél og fjarlægðarnema í afturstuðara. Kallar á litlar breytingar Metanól hefur verið notað í aksturs- íþróttum, s.s. Indy-kappakstrinum í Bandaríkjunum og kvartmílukeppni víða um heim, þar á meðal hér á landi. Ólíkt metangasi og vetni þarf ekki breytta aðferð og dýrari tækjabúnað til að geyma og dreifa metanóli á bensínstöðvum. Geely framleiðir metanólbíla sína samhliða bensín- bílunum í sömu bílaverksmiðjunum sem dregur úr framleiðslukostnaði. Að sögn Ómars er hægt að nota metanól jafnt á hefðbundnar vélar og efnarafala, þar sem metanóli er breytt beint í rafmagn. „Metanól fram- leitt með aðferð CRI er eitt umhverfis- vænsta fljótandi eldsneyti sem völ er á. Það brennur án sótmengunar og hefur háa oktantölu sem gefur mögu- leika á að hanna léttar og aflmiklar vélar með nýtni umfram hefðbundnar bensín- eða dísilvélar. Við höfum einnig verið í samstarfi við danskan framleiðanda á metanól efnarafölum þar sem okkar eldsneyti hefur verið notað til að auka drægi á rafbílum og ferjum sem ganga fyrir rafmagni,“ segir Ómar. Má því segja að framleiðsla á metanóli með raforku og notkun þess í stað bensíns og dísils bjóði upp á rafvæðingu á stærri hluta samgöngukerfisins og í sjávarútvegi. Jákvæðar niðurstöður af reynsluakstri metanólbíla á Íslandi Bílaflotinn sem er nú í reynsluakstri hérlendis með eldsneyti frá Carbon Recycling International. Volvo XC40 settur saman í verksmiðjunni í Gent í Belgíu. Talsverður spenningur er fyrir til- komu nýs jepplings frá Volvo, þ.e. XC40, en raðsmíði hans er hafin í verksmiðju Volvo í Gent í Belgíu. Þó svo bíllinn komi ekki á markað fyrr en á fyrstu mánuðum næsta árs eru nú þegar komnar 13.000 pantanir í hann. Það verður því í nógu að snú- ast fyrir starfsfólk verksmiðjunnar í Gent við að fylla upp í þær pantanir. Volvo XC40 er fyrsti bíll Volvo sem byggður er á CMA-undirvagninum sem er sameiginlegur með Geely- og Volvo-bílum, en kínverski bíla- smiðurinn Geely er núverandi eig- andi Volvo. Í verksmiðjunni í Gent eru líka smíðaðir Volvo V40, V40 Cross Country, S60 og V60 bílarnir. Í verksmiðjunni þurfti að bæta við 363 nýjum róbotum til smíði XC40 bílsins og var hún að auki stækkuð lítillega. Áhugasamir íslenskir kaupendur ættu ekki að þurfa að bíða mjög lengi eftir komu Volvo XC40, en hann mun koma í Brim- borg á fyrsta ársfjórðungi næsta árs og mun hann kosta frá 5.990.000 krónum og er þar um að ræða fjór- hjóladrifna bíla. Fyrstu bílarnir sem munu rúlla út úr verksmiðjunni í Gent eru eingöngu fjórhjóladrifnir, en í kjölfarið verða í boði framhjóla- drifnar og talsvert ódýrari útgáfur af þessum bíl. Smíði Volvo XC40 hafin í Belgíu Bruni metanóls er mun hreinni en ef notað væri bensín, hvað þá dísilolía. Bruni metanóls veld- ur engri sótmengun, auk þess er það laust við brennistein og krabbameinsvald- andi efnasambönd. reynsluakstur Finnur Thorlacius finnurth@365.is Samdráttur Í loSun frá metan­ ólBÍlunum nemur 70% Í SamanBurði Við BenSÍnBÍl með Sömu eiginleika. 13.000 fyrirframpantanir hafa BoriSt VolVo Í BÍlinn nýJa. Bílar 2 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 1 0 4 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 5 1 -0 4 6 0 1 E 5 1 -0 3 2 4 1 E 5 1 -0 1 E 8 1 E 5 1 -0 0 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 0 4 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.