Fréttablaðið - 24.11.2017, Side 88
Leikkonan Heiða Rún Sig-urðardóttir, eða Heida Reed eins og hún kallar sig í Bretlandi þar sem hún býr og starfar, er stolt af afrakstrinum en hún
fer með hlutverk Stellu Blómkvist
í samnefndri þáttaröð sem brátt
verður frumsýnd og er framleidd af
Sagafilm. Henni fannst gaman að
glíma við hlutverkið og spegla sig í
eiginleikum Stellu.
Engar glansmyndir
„Það var hressandi að bregða sér
í hlutverk Stellu, jafnvel svolítið
frelsandi því hún er svona frekar
frökk týpa og er alveg sama hvað
öðrum finnst. Gerir það sem hún
vill og með sínu lagi. Hún er ein-
fari, lögfræðingur sem tekur að sér
mál, annaðhvort sem hún fær mikið
borgað fyrir eða sem hún hefur sér-
stakan áhuga á. Hún er ólík mér, ég
er klaufaleg en Stella er svöl,“ segir
Heiða Rún sem segir ekki endilega
eftirsóknarvert að halda sér í skefj-
um eins og Stella. „Hún er tilfinn-
ingalega bæld og hefur ekki unnið
vel úr sinni fortíð.“
Heiða Rún gætir þess að gefa ekki
af sér glansmynd á samfélagsmiðl-
um. „Mér finnst það mikilvægt, ég er
ekki til í að halda úti samfélagsmiðl-
um þar sem ég er í einhverju hlut-
verki. Ég vil bara fá að vera ég sjálf og
vil gefa mynd af hversdeginum. Allar
þessar óraunverulegu staðalmyndir
skaða okkur, ég vil ekki vera hluti af
því.“
Stritið í London
Heiða Rún útskrifaðist úr London
Drama Center School árið 2010. Eftir
útskrift hlaut hún nokkur smærri
hlutverk í breskum glæpaþáttum þar
til hún landaði hlutverki Elizabeth í
Poldark. Hún hefur fengið mikið lof
fyrir leik sinn í þáttunum. Það hefur
veitt henni öryggi um tíma enda
þekkir hún vel hlutskipti atvinnu-
lausrar leikkonu. „Ég bý við aðeins
meiri stöðugleika en áður en er samt
auðvitað í óvissu um framtíðina. Líf
mitt hefur ekki breyst mjög mikið,
það kemur kannski fólk upp að
manni sem þekkir mann og ég sæki
fleiri viðburði en áður.
Ég bý í Norður-London, aðeins
fyrir utan miðbæinn. Í rólegu og
þægilegu hverfi. Það hefur ekki
alltaf verið auðvelt að búa og starfa í
London sem leikkona. Ég kom meira
að segja heim til Íslands í nokkra
mánuði fyrir nokkrum árum, alveg
búin að fá nóg. London er skárri
þegar maður býr við örugga atvinnu.
Ég gleymi því ekkert hvernig það var
þegar ég var atvinnulaus, það voru
mínir erfiðustu tímar í borginni. Ég
veit ekki hvort gæfan endist. Poldark
mun ekki endast að eilífu. En ég kann
betur á lífið í London í dag,“ segir
Heiða Rún og gefur góð ráð til ungra
leikara sem hyggja á frama í borginni.
„Ef ég gæti gert eitthvað öðruvísi
þá hefði ég reynt að forgangsraða
betur. Tekið miklu ódýrara húsnæði
fram yfir að búa á vinsælum stað í
London. Síðustu árin hef ég þrátt
fyrir að vera í vinnu búið fyrir utan
mitt gamla hverfi sem ég sóttist áður
eftir að búa í.“
Hún segir einnig mikilvægt að
hafa trú á eigin velgengni. „Ég held
að það sé stór og mikilvægur hluti af
því að láta hlutina gerast. Þú verður
að sjá sjálfan þig fyrir þér eins og þig
dreymir um.“
Heiða Rún trúlofaðist síðasta
sumar Sam Ritzen berg, sem er
bandarískur fram leiðandi. „Við
erum ekki búin að negla neitt niður,
við erum með einhverjar tíma-
setningar í huga en það er flókið
að skipuleggja enda erum við sitt
frá hvorum staðnum í heiminum,“
segir Heiða Rún sem hefur komið
til Íslands með unnustanum í hvíld
frá stórborginni. „Mér finnst gott
að slappa af hér heima þótt þetta
séu stuttar heimsóknir. Ég er mest
heima við þegar ég kem hingað. Við
eigum fjölskylduhund sem ég fæ
að sjá þegar ég kem heim og kúra
með,“ segir hún. Jólunum ætlar hún
þó ekki að verja á Íslandi eins og
vanalega. „Nei, nú förum við til San
Francisco og verðum þar yfir jólin
með fjölskyldu unnusta míns. Það
er mjög spennandi.“
kristjanabjorg@frettabladid.is
Frelsandi að leika óheflaða týpu
Heiða Rún með unnusta sínum Sam Ritzenberg.
Heiða Rún Sigurðar-
dóttir, ein aðal-
leikkona þáttanna
Poldark á BBC, ver
jólunum í fyrsta sinn
í San Francisco með
fjölskyldu unnusta
síns. Hún fer með
hlutverk Stellu Blóm-
kvist í nýjum sam-
nefndum þáttum.
Bretland og #metoo
Heiða Rún hefur ekki farið var-
hluta af umræðu um kynferðis-
lega áreitni og ofbeldi í flestum
geirum samfélagsins. Hún segir
minni umræðu um þessi mál í
Bretlandi en Hollywood. „Hér
hafa ekki flóðgáttir opnast eins
og í Hollywood og maður vonar
að hlutirnir séu skárri hér. En því
miður þá er þetta alls staðar og
það er mikilvægt að það ríki ekki
þöggun um þessi mál. Þetta er
rosalega sorglegt því það lítur
út fyrir að þessar frásagnir taki
engan enda. En vonandi förum
við samt ekki til baka, heldur
áfram úr þessari menningu. Það
er svo margt sem við þurfum
að breyta. Ég sjálf hef ekki lent
í alvarlegri áreitni en ég, eins og
aðrar stelpur, afsaka ýmislegt,
leiði hjá mér hluti sem eru alls
ekki í lagi. En ég hef trú á því að
með aukinni umræðu breytist
hlutirnir.
Heiða Rún hefur í huga að gæfan endist ekki að eilífu, minnug þess þegar hún stritaði í London sem atvinnulaus leikkona. Mynd/Saga
Heiða Rún í tökum á þáttunum um Stellu Blómkvist.
MAGNOLIA
OFFICINALIS
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Heilsuver,
Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við
sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni
„Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og
ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki
á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef
ekki sofið betur í mörg ár.“
SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ
balsam.is
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
Hefur verið notað við
svefnvandamálum, kvíða og
depurð í yfir 2000 ár í Asíu
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r70 l í F i ð ∙ F r É T T A b l A ð i ð
Lífið
2
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
5
0
-B
F
4
0
1
E
5
0
-B
E
0
4
1
E
5
0
-B
C
C
8
1
E
5
0
-B
B
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
0
4
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K