Fréttablaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 90
5. Treflar, hanskar
og hattar
Maður getur alltaf á sig
blómum bætt. Það er um
að gera að skreyta sig með
flíkunum sem hita okkur
núna. Fjárfestu í fallegum
leðurhönskum, kannski
með loði, stórum trefli í
fallegu munstri og húfu eða
hatti sem setur punktinn
yfir i-ið. Alpahúfan kemur
til dæmis sterk inn i ár og
smellpassar fyrir hátíðarnar.
Glamour
Klæðum okkur
fínt í kuldanum
Nú er tíminn til að pússa spariskóna og lakka neglurnar – það
eru stanslaus veisluhöld fram undan og margir sem njóta þess
að skarta sínu fínasta pússi. Það getur hins vegar reynst þrautin
þyngri að klæða sig upp á þegar hitamælirinn sýnir mínusgráð-
ur. En Glamour hefur ráð undir rifi hverju – hvernig getum
við klætt okkur upp á án þess að skauta um göturnar
með glamrandi tennur?
2. Grófir sólar
Það er fátt verra en að vera eins og
belja á svelli, þó að gönguleiðin frá
bíl og inn í boð sé stutt. Eitt ráð er
að mæta í gönguskónum og koma
með spariskóna í poka. Það er líka
sniðugt að fjárfesta í grófum skóm
sem ganga við sparifötin. Það getur
líka gefið þeim töffaralegra yfir-
bragð og kemur í veg fyrir óþarfa
óhöpp í skammdeginu.
Farðu inn á Glamour.is og fáðu daglegar
fréttir úr heimi hönnunar, lífsstíls og tísku.
l Facebook l Instagram l Twitter
1. Ullarsokkabuxur
Ullin kemur yfirleitt til bjargar á
þessum kaldasta tíma ársins og
það er sniðugt að fjárfesta í fal-
legum sokkabuxum úr ullarefni
undir jólakjólinn. Notagildið er
líka mikið enda hægt að nota
þær í staðinn fyrir föðurland á
fjallið ef þannig ber undir.
3. Loðkragar
Feldur er ekki bara hlýr heldur einn af fylgihlutunum sem eiga alltaf við á
þessum tíma árs. Bæði gefur það gömlu ullarkápunni hátíðlegt yfirbragð
að smella loðkraganum yfir og svo er hann líka flottur fylgihlutur við
blússuna eða kjólinn.
4. Ullarnærföt
Föðurlandið hefur löngum
bjargað okkur hérna í gegnum
mestu vetrarhörkurnar og nú er
úrvalið af svoleiðis undirfatnaði
ansi mikið og fjölbreytt. Það er til
dæmis sniðugt að fá sér fínlegan
hlýrabol, jafnvel með blúndu, til
að vera í undir jólakjólnum.
Farmers Mar-
ket 5.900 kr
Kultur
10.995 kr
Feldur
35.800 kr
GK Reykja-
vík, Filippa
K 14.995 kr
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r72 l í F i ð ∙ F r É T T A b l A ð i ð
2
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
5
0
-B
A
5
0
1
E
5
0
-B
9
1
4
1
E
5
0
-B
7
D
8
1
E
5
0
-B
6
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K