Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.01.2017, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.1. 2017
LESBÓK
H
elstu ástæður þess að
Brynjar Karl Ótt-
arsson hóf fyrir all-
mörgum árum að
safna efni um Krist-
nes í Eyjafirði eru þær að hann vildi
halda til haga ýmsu um sögu þorps-
ins. Jafnframt langaði hann að skrifa
óð til staðarins þar sem hann ólst
upp. Hann hefur nú sent frá sér bók-
ina Lífið í Kristnesþorpi – Frá upp-
vexti til blómaskeiðs og tilvist-
arkreppu þar sem hann fjallar um
byggingarsögu staðarins, þróun þétt-
býlis og mannlíf.
Verkefninu er fráleitt lokið því
önnur bók er í smíðum og kemur von-
andi út í haust, í tengslum við 90 ára
afmæli Kristneshælis.
Fyrri bókin „er samsafn af hinum
og þessum heimildum í máli og
myndum sem ég set saman og hræri í
og vona að út úr því komi bragðmikill
grautur sem verður til þess að les-
andinn fær einhverja innsýn í sam-
félagið,“ segir höfundurinn.
Í seinni bókinni verður mannlíf á
staðnum enn frekar í brennidepli.
„Foreldrar mínir fluttu í Kristnes
árið 1974 með tvö börn og ég fæddist
1975. Segja má að lok áttunda ára-
tugarins, allur sá níundi og hluti þess
tíunda hafi verið minn tími í Krist-
nesi. Ég þekki staðinn mjög vel; vann
þar í 14 sumur í lóðavinnu, síðustu ár-
in sem Kristneshæli var ríkisstofnun
og þónokkur ár eftir að Sjúkrahúsið á
Akureyri tók við rekstrinum 1993,“
segir Brynjar Karl.
Upphaf verkefnisins má rekja til
þess er Brynjar Karl var við nám í
Kennaraháskóla Íslands um alda-
mótin. „Þegar kom að því að gera
lokaverkefni ákvað ég að skrifa um
berklatímann í Kristnesi. Ég vissi að
ég þekkti söguna í grófum dráttun en
þegar ég fór að kynna mér hana bet-
ur í tengslum við lokaritgerðina kom
ýmislegt í ljós sem ég hafði aldrei
heyrt um. Margt kom mér á óvart.
Mér brá til dæmis þegar ég las ævi-
sögu manns sem hafði verið sjúkling-
ur á hælinu. Sú saga kom mér á spor-
ið.“
Umræddur maður var Pétur Finn-
bogason. Hann dó seint á fjórða ára-
tugnum „og lýsingar í dagbók hans af
Hælinu á þessum tíma voru all svaka-
legar. Eftir að ég útskrifaðist hélt ég
áfram að taka saman heimildir og hef
nú unnið að þessu í ein 15 ár með
hléum.“
Í dagbókum og sendibréfum lýsir
Pétur Finnbogason hlutskipti sínu.
„Taka verður með í reikninginn að
hann veit hvert stefnir; ekkert bíður
hans annað en dauðinn og Pétur er
því eðlilega neikvæður. En ástandið
var greinilega mjög slæmt, hann lýsir
því til dæmis hve aðbúnaður sjúk-
linga var slæmur, bæði varðandi mat
og annað. Það var talið gott fyrir
sjúklinga að anda að sér súrefni og
vera mikið úti og það gekk svo langt á
upphafsárum Hælisins að gluggar
voru jafnvel hafðir opnir yfir nótt um
hávetur þannig að snjóaði inn í stof-
urnar. Allt var neikvætt, ekkert við
að vera, allir á Hælinu biðu bara í for-
dyri hvíta dauða.
En svo því sé haldið til haga áttaði
á mig á því, þegar ég fór að lesa bók-
ina betur og kynna mér nánar, að
verstu sögurnar eru komnar frá
Merkilegt
samfélag
í Kristnesi
Brynjar Karl Óttarsson er fæddur og uppalinn í
Kristnesi við Eyjafjörð. Hann skrifar um bygging-
arsögu, þróun þéttbýlis og mannlíf á staðnum.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Doktor Vilhjálmur G. Skúlason hefur, samhliða
starfi og rannsóknum hjá Háskóla Íslands, ritað
margt um lyfjafræði og vísindi, gefið út bækur og
skrifað greinar í tímarit og blöð. Í nýrri bók hans,
Blöndu, er að finna ýmsar greinar og ritgerðir
um sitthvað vísindatengt, svo sem erfðafræði,
geðsjúkdóma, stera, súlfalyf, streptomycin, insúl-
ín og vítamín. Í bókinni svarar Vilhjálmur meðal
annars spurningunni um hvað vítamín séu, segir
frá steinefnum, snefilefnum og næringarefnum,
rekur þætti úr sögu erfðafræði, geðsjúkdóma og stera, fjallar um lyf
og litarefni, uppgötvun insúlíns og upphaf álvinnslu.
Í inngangi bókarinnar segir Vilhjálmur að von sín sé að bókin
„verði lesendum, ef nokkrir verða, til gagns og fróðleiks. En því ber
ekki að leyna, að bókin er einnig skrifuð til heiðurs öllum þeim vís-
indamönnum, sem starfað hafa „undir gunnfána lífsins“.“
Vilhjálmur gefur bókina út sjálfur.
Framan af nýjustu bók Jo Nesbø um Harry Hole,
Löggan, er Harry víðsfjarri þó andi hans svífi yfir
vötnunum. Það er í það minnsta í hans anda sem
fyrrverandi samstarfsmenn hans mynda óop-
inberan hóp innan norsku rannsóknarlögregl-
unnar til að glíma við raðmorðingja sem einbeitir
sér að lögreglumönnum sem komið hafa að rann-
sóknum á morðmálum. Á sama tíma liggur maður
í dái á sjúkrahúsi í Ósló undir strangri lög-
regluvernd. Enginn veit hvort hann muni komast
til meðvitundar en hann býr yfir hættulegri vitneskju og sumir vilja
ekki að hann vakni.
Þó samstarf hópsins nái langt dugir það ekki til, en þegar Harry
slæst í hópinn um miðja bók fara hjólin loks að snúast.
Þetta er tíunda bókin í röðinni um Harry Hole og sú tíunda sem
JPV gefur út. Bjarni Gunnarsson þýddi bókina.
Harry Hole og löggan
Kristján Jón Guðnason hefur verið iðinn við að gefa
út teiknimyndasögur sínar og fyrir stuttu kom út
kverið Rauða musterið þar sem söguhetjan Mundi
gerir sitt til að skapa betri heim.
Eins og Kristján lýsir bókinni fjallar sagan um
hófsemi og nægjusemi „sem eru fornar dyggðir í öll-
um trúarkerfum og ef allir færu að tileinka sér þær
að einhverju marki þá hrynur stórkapítalisminn“.
Bókaúgtáfan Óþurft gefur bókina út líkt og fyrri
bækur Kristjáns, en hann hefur gefið út nokkrar bækur, aðallega
teiknimyndasögur, en líka ljóðabækur. Kristján stundaði nám við
Myndlistar- og handíðaskólann í Reykjavík og við Statens håndverks-
og kunstindustriskole í Ósló.
Mundi og musterið
Eins og fram hefur komið vakti það
óánægju margra að bókaforlagið
Simon & Schuster hygðist gefa út
bók eftir breska hægrimanninn
Milo Yiannopoulos, sem frægur er
fyrir glannalegar yfirlýsingar um
aðskiljanleg málefni. Bandaríski
rithöfundurinn Roxane Gay er líka
þekkt fyrir að liggja ekki á skoð-
unum sínum eins og birtist ræki-
lega í því að hún rifti útgáfusamn-
ingi við Simon & Schuster og
innkallaði bók sem koma átti út á
næstunni til að mótmæla þvi að for-
lagið hygðist gefa út bók eftir
Yiannopoulos.
Roxane Gay er meðal annars
þekkt fyrir metsölubókina Bad
Feminist, starfar sem prófessor við
Purdue-háskóla í Indiana og skrif-
ar reglulega í New York Times.
Í yfirlýsingu segist Gay ekki vilja
koma í veg fyrir að Yiannopoulos
gefi út bækur. Henni hugnist þó
ekki að vera á mála útgefanda sem
gefi út bækur eftir slíka höfunda,
en tekur það fram að hún fari ekki
fram á að aðrir geri slíkt hið sama.
Bandaríski rithöfundurinn og femínistinn Roxane Gay er samkvæm sjálfri sér.
Gay mótmælir Milo
ÚTGÁFUSVIPTINGAR
Vísinda- og fræðablanda
Skútuvogur 1c, 104 Reykjavík | Sími 550 8500 | www.vv.is
sjáu
mst!
Frískleg og hugvitsamleg hönnun,
þau eru afar létt og þæginleg í notkun.
Lýsing og rafhlöðuending er framúrskarandi.
• Ljósstyrkur: 220 lm
• Drægni: 130 m
• Þyngd: 93 g
• Endurhlaðanlegt
• Vatnsvarið: IPX6
• Stillanlegur fókus og halli
• Hvítt kraftmikið LED ljós og
eitt rautt LED ljós sem hentar vel
til að halda nætursjón
Útsölustaðir:
Gangleri Outfitters, Hverfisgötu 82, Rvk. Afreksvörur, Gæsibæ, Rvk. Byko Granda, Rvk.
KM Þjónustan, Vesturbraut 20, Búðardal. Eins og fætur toga, Bæjarlind 4, Kópavogi.