Morgunblaðið - 28.02.2017, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2017
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 12 þriðjudaginn 7. febrúar.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
ÍMARK DAGUR
Af því tilefni gefur Morgunblaðið út sérblað,
tileinkað ÍMARK deginum föstudaginn 10. mars
Íslenski markaðsdagurinn verður haldinn hátíðlegur
með veglegri ráðstefnu í Hörpu 10. mars.
i8 Gallery tekur
eins og undan-
farin ár þátt í
listkaupstefn-
unni The Armory
Show í New
York, en hún fer
fram um næstu
helgi og er hald-
in í sýningar-
skálunum á
Bryggjum 92 og
94 á Manhattan.
Að þessu sinni setur i8 upp sýn-
ingu með verkum eftir sjö af lista-
mönnum gallerísins, þau Hrein
Friðfinnsson, Kristján Guðmunds-
son, Sigurð Guðmundsson, Roni
Horn, Callum Innes og Ragnar
Kjartansson.
The Armory Show er önnur af
tveimur helstu listkaupstefnum
með myndlist sem haldnar eru í
Bandaríkjunum ár hvert. Síðast
sóttu um 65 þúsund gestir sýningar
helstu gallería samtímans þá þrjá
daga sem sýningar voru opnar.
i8 tekur þátt í
Armory Show
Sigurður
Guðmundsson
Kvartett Halla Guðmunds kemur
fram á djasskvöldi Kex Hostels við
Skúlagötu í kvöld, þriðjudag.
Leiðtogi kvartettsins er kontra-
bassaleikarinn Haraldur Ægir Guð-
mundsson en aðrir meðlimur kvart-
ettsins eru þeir Snorri Sigurðarson
sem leikur á trompet, Andrés Þór
Gunnlaugsson á gítar og Scott
McLemore á trommur.
Kvartettinn hyggst leika frum-
samið efni auk vel valinna stand-
arda. Flutningurinn hefst klukkan
20.30 og er aðgangur ókeypis.
Kvartett Haraldar
Ægis leikur á Kex
Bassaleikarinn Haraldur Ægir Guð-
mundsson leiðir kvartettinn.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þetta er ofboðslega vel samið
verk,“ segir Magnús Ragnarsson,
stjórnandi Söngsveitarinnar Fíl-
harmóníu, um hið fræga tónverk
Johannesar Brahms, Þýska sálu-
messu, Ein deutsches Requiem,
sem kórinn flytur í Norðurljósasal
Hörpu í kvöld klukkan 20.
Verkið verður að þessu sinni
flutt í útsetningu fyrir tvö píanó
og pákur og verður hljóðfæraleik-
urinn í höndum píanóleikaranna
Guðríðar St. Sigurðardóttur og
Brynhildar Ásgeirsdóttur og Egg-
erts Pálssonar sem leikur á pákur.
Hallveig Rúnarsdóttir sópran og
Ágúst Ólafsson barítón fara með
einsöngshlutverkin tvö.
Sex sinnum áður
Johannes Brahms (1833-1897) er
jafnan talinn í hópi mestu tón-
skálda 19. aldar. Þýsk sálumessa,
sem var frumflutt árið 1868, er lík-
lega frægasta verk Brahms og
sker sig frá hefðbundnum sálu-
messum vegna textans sem sóttur
er í lútersku biblíuna og er, eins
og heitið gefur til kynna, á þýsku.
Messuna tileinkaði hann vini sín-
um, tónskáldinu Robert Schu-
mann, móður sinni og mannkyni
öllu.
Söngsveitin Fílharmónía hefur
flutt Þýska sálumessu Brahms sex
sinnum áður, fyrst árið 1961 og
síðast árið 2014. Fyrir þann flutn-
ing fékk kórinn tilnefningu til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna fyrir
tónlistarviðburð ársins.
Býsna krefjandi raddlega
Söngsveitin Fílharmónía gjör-
þekkir Þýska sálumessu og tekur
hana nú aftur upp. Hvers vegna?
„Þetta er stórkostlegt verk og
alltaf gaman að takast á við það,“
segir Magnús. „Síðast fluttum við
það fyrir rúmlega tveimur og hálfu
ári og okkur fannst öllum gaman
að taka það fram að nýju. Sjálfum
finnst mér til að mynda athygl-
isvert að sjá hvað breytist hjá
manni í nálguninni og í túlkun eft-
ir því sem maður þroskast með
aldrinum.“
Magnús segir að kórinn hafi
ætlað að halda af landi brott í
keppnisferð síðar á árinu en hafi
svo ákveðið að fresta því um ár og
safna meiru í ferðasjóðinn. „Í stað-
inn vorum við sammála um að
flytja þetta meistaraverk
Brahms,“ segir hann.
Í kórnum eru nokkrir nýir
söngvarar sem hafa þurft að læra
verkið. „En þegar flestir kunna
það vel þá gengur hraðar fyrir
hina að læra.
Verkið er býsna krefjandi radd-
lega, það fer ansi hátt og þetta er
mikill söngur, nánast stanslaus
kórsöngur í sjötíu mínútur.
Ég æfði Þýska sálumessu fyrst
árið 2008 með Fílhamóníu fyrir
flutning með Sinfóníuhljómsveit-
inni, og það var erfitt því margir
voru að læra verkið og þótti það
erfitt, en þegar upp var staðið
tókst flutningurinn mjög vel. Fyrir
tveimur og hálfu ári gekk mun
betur og núna hafa æfingar svo
flogið áfram …“
Einsöngvararnir Ágúst og Hall-
veig hafa áður sungið sálumessuna
með kórnum. Hallveig var tilnefnd
til Íslensku tónlistarverðlaunanna
fyrir frammistöðu sína fyrir tveim-
ur og hálfu ári en Ágúst söng barí-
tónrulluna árið 2008.
„Hann fór þá með okkur til Pól-
lands þegar við fluttum þetta þar,
en ég stýrði þá flutningi kórsins
með Ludoslawski-fílharmóníu-
hljómsveitinni í Wrocław,“ segir
Magnús. „Ágúst syngur þetta
gríðarlega vel. Kristinn Sigmunds-
son ætlaði að syngja með okkur en
þurfti að fara til Portúgal að
syngja í Wagner-óperu en Ágúst
gat hlaupið í skarðið.
Hallveig söng þetta með okkur
síðast og var þá að gera það í
fyrsta skipti en hún er sem fædd í
þetta hlutverk. Rödd hennar hent-
ar hlutverkinu einstaklega vel, lín-
urnar eru langar og krefjast þess
tæknilega valds sem hún býr yfir,
tærleika í röddinni en þroska um
leið.“
Dramatískt og blæbrigðaríkt
Þýsk sálumessa er eitt allra vin-
sælasta stóra kórverkið. Hvernig
skýrir Magnús vinsældirnar?
„Ég er mikill aðdáandi verka
Brahms en alls ekki allra kórverka
hans. En þetta verk er einstakt.
Það er mjög dramatískt en blæ-
brigðaríkt um leið, og vefnaðurinn
er glæsilegur, með endurteknum
stefjum. Kórinn er í krefjandi að-
alhlutverki í verkinu en mér finnst
mjög gaman að gera þetta með
tveimur píanóum og pákum, eins
og nú. Við getum unnið meira með
dýnamík en ef við flyttum verkið
með hljómsveit, til að mynda get-
um við sungið veikar í ákveðnum
köflum og þá er þetta eins og
kammerverk. Þegar kórinn er svo
á fullu þá er leikið á píanóin á full-
um krafti og jafnvægið verður afar
fínt. Svo bætast pákurnar við og
þær gefa mjög skemmtilegan
blæ.“
„Þetta verk er einstakt“
Söngsveitin Fílharmónía flytur hið þekkta kórverk eftir Johannes Brahms,
Þýska sálumessu Ágúst Ólafsson og Hallveig Rúnarsdóttir einsöngvarar
Kórinn Þetta verður í sjöunda sinn sem Söngsveitin Fílharmónía tekst á við Þýska sálumessu eftir Brahms. „Kórinn
er í krefjandi aðalhlutverki í verkinu,“ segir Magnús Ragnarsson stjórnandi en með er leikið á tvö píanó og pákur.
Hollenski meistarinn Johannes
Vermeer (1632-1675) er einn dáð-
asti málari myndlistarsögunnar.
Sérfræðingar eru einungis sam-
mála um að eigna honum 34 mál-
verk, sem flest sýna sama her-
bergið með svipuðum uppstill-
ingum en tvö sýna sjónarhorn
utandyra í heimaborginni Delft.
Opnuð hefur verið í Louvre-
safninu í París sýningin Vermeer et
les maîtres de la peinture de genre,
þar sem gefur að líta 12 hinna
þekktu og dáðu verka málarans,
auk málverka eftir evrópska sam-
tímamenn sem unnu með svipuð
myndefni, eins og daglegt líf borg-
aranna. Verkin eru fengin að láni í
mörgum helstu söfnum Vestur-
landa, eins og Rijksmuseum í Amst-
erdam, National Gallery í Wash-
ington DC og Metropolitan Museum
í New York.
Gagnrýnendur ausa sýninguna
lofi og stjörnum og segja hana ein-
stakt tækifæri til að sjá svo mörg
meistaraverkanna saman komin.
Þá sé val annarra verka einnig
áhugavert, en þau eru meðal ann-
ars eftir hollenska samtímamenn
Vermeer; Gerard ter Borch, Ni-
colaes Maes og Gerrit Dou.
„Svo miklum ljóma slær af verk-
um nokkurra snillinga að önnur
verk verða grá í samanburðinum,“
skrifar Jonathan Jones, rýnir The
Guardian, í umsögn sinni og segir
Vermeer vera einn þeirra fáu.
AFP
Meistaraverk Fréttamaður beinir linsunni að stúlku með mjólkurkönnu, einu af kunn-
um verkum Vermeer frá 17. öld. 12 af 34 þekktum verkum hans eru sýnd í Louvre.
Einstök sýning á verkum eftir Vermeer
í Louvre með um þriðjungi verka hans