Morgunblaðið - 28.02.2017, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 59. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Jennifer Aniston bar af
2. Skringilegt klapp Nicole …
3. Hvað klikkaði með umslagið?
4. Hjallastefnan byrjar með …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Guðmundur Sigurðsson organisti
kemur fram á hádegistónleikum í
Hafnarfjarðarkirkju í dag kl. 12:15. Á
efnisskránni eru verk eftir Johann
Sebastian Bach, Thomas Adams,
Thomas Attwood og Henry G. Ley.
Aðgangur er ókeypis.
Hádegistónleikar í
Hafnarfjarðarkirkju
Svissneska
myndlistarkonan
Rebekka Künis
fjallar um áhrif Ís-
lands í verkum
svissneskra sam-
tímalistamanna í
þriðjudagsfyrir-
lestri í Listasafn-
inu á Akureyri,
Ketilhúsi, í dag kl. 17. Künis lauk námi
frá Hochschule der Künste í Bern í
Sviss. Sl. ár hefur hún kennt myndlist
og þýsku við MA. Aðgangur er ókeypis.
Áhrif í verkum sviss-
neskra listamanna
Anna Jónsdóttir sópran, Ólöf Sig-
ursveinsdóttir á selló og Sophie
Schoonjans á hörpu flytja Hvítu-
vötn, verk í sjö hlutum, eftir Óliver
Kentish við ljóð Ingimars Erlends
Sigurðssonar á háskólatónleikum á
morgun, miðvikudag, kl. 12.30. Tón-
leikarnir verða í
Kapellunni á
fyrstu hæð
aðalbyggingar
Háskóla Íslands
og er aðgang-
ur ókeypis.
Hvítuvötn flutt á
háskólatónleikum
Á miðvikudag, fimmtudag og föstudag Hæg austlæg eða
breytileg átt og víða léttskýjað. Norðan 8-13 m/s austast á landinu
og lítilsháttar él. Frost 1 til 12 stig, kaldast inn til landsins.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg breytileg átt og víða léttskýjað. Norðan
8-13 m/s austast á landinu og lítilsháttar él. Kólnandi veður, frost 1
til 10 stig.
VEÐUR
Gregg Popovich, sem nýlega
setti met í NBA-deildinni yf-
ir flesta sigra þjálfara með
sama liðinu, var aðstoð-
arþjálfari San Antonio
Spurs þegar Pétur Guð-
mundsson lék með liðinu
tímabilið 1988-1989. Morg-
unblaðið spjallaði við Pétur
um Popovich sem þá var lítt
þekktur þjálfari, að sögn
Péturs, og með óvenjulegan
bakgrunn tengdan varn-
armálum. »2-3
Pétur starfaði
með Popovich
„Stór hluti af uppbyggingunni er ekki
bara að komast í nógu gott stand til
þess að geta lagt lóð á vogarskál-
arnar með KR heldur langar mig að
komast í landsliðið fyrir EM og gera
eitthvað af viti með því á
EM, það er langtíma-
markmiðið. Í eig-
ingirni minni hugsa ég
um sumarið með
landsliðinu og það
að ná að vera í
nægilega góðu
formi til
þess að
vera
með,“
segir
körfu-
boltamað-
urinn Pavel
Ermolinskij.
»4
Hugsar ekki bara um KR
heldur líka um EM
Ísland byrjaði afar vel í B-riðli 2.
deildar kvenna á heimsmeist-
aramótinu í íshokkí. Ísland skellti
Rúmeníu á Akureyri í gærkvöldi. „Það
er skemmst frá því að segja að ís-
lensku valkyrjurnar tóku Rúmena í al-
gjöra kennslustund og unnu öruggan
7:2 sigur,“ segir Einar Sigtryggsson
meðal annars í umfjöllun sinni í
íþróttablaðinu í dag. »2-3
Rúmenar teknir
í kennslustund
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Varðskipið Óðinn er veigamikill
þáttur í sýningu Sjóminjasafnsins í
Reykjavík og setur mikinn svip á
gömlu höfnina.
Nú þarf að taka Óðin í slipp
vegna viðhalds. Slipptakan og það
sem henni fylgir kostar allt að tíu
milljónir króna, að sögn Guðmundar
Hallvarðssonar, formanns Hollvina-
samtaka Óðins og fyrrverandi al-
þingismanns.
„Við vonum að stjórnvöld standi
við bakið á okkur í þeirri fram-
kvæmd, eins og þau hafa gert hing-
að til,“ sagði Guðmundur. Hann
sagði að Hollvinasamtökin væru
þakklát fyrir að njóta nú fastra fjár-
framlaga frá menntamálaráðuneyt-
inu vegna daglegs reksturs skips-
ins. Slipptaka og viðhald væri þó
þar fyrir utan.
Guðmundur benti á að það þætti
eðlilegt að vernda gömul hús og
miklu væri varið til þeirra mála.
„En þegar kemur að einhverju eins
og varðskipinu Óðni, sem á mjög
merkilega sögu bæði sem varðskip
og sem björgunarskip, gegnir öðru
máli,“ sagði Guðmundur. Varðskipið
Óðinn lítur mjög vel út að innan í
dag. Farið er að bera á ryð-
skemmdum á ytra byrðinu og að-
eins farið að gæta leka inn í yfir-
bygginguna, að sögn Guðmundar.
Félagar í Hollvinasamtökunum hafa
lagt fram mikla sjálfboðavinnu við
viðhald Óðins.
Vélbúnaðurinn í Óðni hefur
ekki verið gangfær. Guð-
mundur sagði mikils virði að
koma honum í gang, en það
kostaði mikla fjármuni. Torsótt
yrði að fá fé í það á meðan pen-
inga vantaði til að halda
skipinu þokkalega við.
Hann sagði að áhugi
hefði verið á að tengja
viðhald véla Óðins við
Véltækniskólann. Því miður hefði
það ekki enn náð fram að ganga.
Hann benti á að ekki væru lengur
til margar vélar af gerðinni Bur-
meister & Wain eins og eru í Óðni.
Saga landhelgisbaráttunnar
Guðmundur sagði að mörgum
gesta Sjóminjasafnsins þætti mest
varið í að koma um borð í Óðin.
Grunnskólanemar heimsæktu Sjó-
minjasafnið og enduðu um borð í
Óðni. Þar væri saga þorskastríð-
anna meðal annars rifjuð upp fyrir
þeim og sagt frá útfærslu landhelg-
innar. Guðmundur kvaðst telja hollt
að halda því hátt á lofti meðal æsku
landsins hve mikið hefði verið haft
fyrir því að færa út og verja land-
helgina.
Vs. Óðinn þarf að fara í slipp
Slipptaka og
viðhald kostar um
tíu milljónir króna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Varðskipið Óðinn Skipið er veigamikill þáttur í sýningu Sjóminjasafnsins. Grunnskólabörn fá þar m.a. fræðslu um
landhelgisbaráttuna. Félagar í Hollvinasamtökum Óðins hafa unnið mikið að viðhaldi skipsins í sjálfboðavinnu.
„Það er mjög sérstakt að í Bretlandi
hafi menn sameinast um að
varðveita togarann Arctic
Corsair í stað þess að setja
hann í ofninn og að hér á landi
hafi menn sameinast um að
koma í veg fyrir að varðskipið
Óðinn yrði selt úr landi,“
sagði Guðmundur
Hallvarðsson, for-
maður Hollvina-
samtaka Óðins.
Bæði skipin komu við sögu í þorska-
stríðunum. Guðmundur sagði að
borgaryfirvöld í Hull hefðu á sínum
tíma lýst áhuga á að kaupa Óðin til
að hafa á safni þar.
„Mér finnst að það að selja Óðin
úr landi hefði verið algjör vanvirða
við þá sem unnu ötullega að út-
færslu landhelginnar öll þau ár sem
þorskastríðin stóðu. Það er alla
embættismenn, stjórnmálamenn og
starfsmenn Landhelgisgæslunnar.“
Bretar vildu kaupa vs. Óðin
VARÐSKIPIÐ ÓÐINN TÓK ÞÁTT Í ÖLLUM ÞORSKASTRÍÐUNUM
Guðmundur
Hallvarðsson