Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.3. 2017
Einn dagur eftir
Það þekkja allir hveralykt,brennisteinslyktina semberst stundum yfir borgina
og er þá uppsprettan oftast Hellis-
heiðarvirkjun. Margir eru næmir á
þessa lykt, ekki síst útlendingar,
sem finna þessa „fúleggjalykt“
meira að segja af baðvatninu. Fyrr í
þessum mánuði fylgdi þessari lykt
brennisteinsmengun sem fór yfir
heilsuverndarmörk brennisteins-
vetnis sem eru 50 μg/m3 að meðaltali
á sólarhring.
Umdeild mörk
Árið 2010 voru í fyrsta skipti sett
mörk í íslenskar reglugerðir um
leyfilegan styrk brennisteinsvetnis í
andrúmslofti. „Þessi mörk eru um-
deild en við settum heilsuvernd-
armörkin við 50 μg/m3 en Alþjóða-
heilbrigðismálstofnunin er með 150
μg/m3,“ segir Þorsteinn Jóhanns-
son, sérfræðingur hjá Umhverf-
isstofnun. Mörkin eru mjög breyti-
leg milli landa, frá því að liggja lágt
og yfir í 150 μg/m3 eins og sést á
meðfylgjandi töflu.
Hann segir að stofnunin fái að
heyra frá jarðhitageiranum að þetta
séu of lág mörk en fái aftur á móti
kvartanir frá almenningi um að fólk
fái höfuðverk eða verði óglatt.
„Næmustu einstaklingarnir finna
lyktina af brennisteinsvetni við 7-10
μg/m3. Þegar þú ert kominn yfir
mengunarmörkin þá eru flestir farn-
ir að finna lykt,“ segir hann.
Þorsteinn segir að mál sem varði
lykt séu jafnan mjög flókin. „Ólykt
er hreinlega skilgreind sem mengun
en svo er mjög persónubundið hvað
er lykt og hvað ólykt.“
Engin undanþága
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gefur
út starfsleyfi fyrir Hellisheið-
arvirkjun. Stella Hrönn Jóhanns-
dóttir, heilbrigðisfulltrúi hjá HSL,
fylgist með virkjuninni. Hún segir
að misskilnings gæti um að virkj-
unin starfi á undanþágu en það sé
aðeins verið að fara eftir reglugerð
en reglugerð nr. 514/2010 um styrk
brennisteinsvetnis í andrúmslofti
var breytt með reglugerð nr. 715/
2014.
„Klukkustundarmeðaltalið þarf að
hafa verið yfir 150 μg/m3 í þrjár
klukkustundir samfellt áður en að
send er út tilkynning. Heilbrigð-
iseftirlitið þarf að sjá til þess að það
sé send út tilkynning en það er Orka
náttúrunnar sem sér um fram-
kvæmdina. Það sem gerðist núna
síðast er að brennisteinsvetnið fór
yfir 24 stunda meðaltalið sem er 50
μg/m3 en ekki yfir tilkynning-
armörkin. Hæsta klukkustund-
armeðaltalið var 140 μg/m3, háir
toppar sem stóðu yfir í stuttan tíma í
stuttan tíma sem telja í þetta hlaup-
andi sólarhringsmeðaltal,“ segir
Stella.
„Heilbrigðiseftirlitið fylgist með
því að framkvæmdaaðilar sjái til
þess að loftmengun frá starfsemi
virkjunarinnar sé innan marka
reglugerðar og svo hefur verið hing-
að til. Loftmengun frá virkjuninni
hefur ekki farið yfir þessi sólar-
hringsmörk þrisvar sinnum á þessu
ári eins og er. Við erum ekki komin
með yfirfarin gögn fyrir fyrsta árs-
fjórðunginn en í byrjum apríl fáum
við skýrslu frá óháðum aðila sem fer
yfir gögnin en það er ekki fyrr en þá
sem við getum sagt það með vissu
hvort þetta var einn eða tveir við-
burðir þar sem var farið yfir mörkin.
Ef loftmengun frá virkjuninni fer yf-
ir sólarhringsmörkin í þrjú skipti á
innan við ári þá fær fyrirtækið við-
vörun.“
Hvaða ferli tekur við?
„Við byrjum á áminningu og kröf-
um um úrbætur. Og svo verður ferl-
ið þyngra og þyngra eftir því sem á
líður samkvæmt þvingunarúrræðum
samkvæmt reglugerðum um meng-
unarvarnareftirlit,“ segir hún.
Starfsleyfi Hellisheiðarvirkjunar
var endurútgefið 19. október sl. til
12 ára og er endurskoðað á fjögurra
ára fresti.
Lofthreinsunin tvöfölduð
Bjarni Már Júlíusson hefur verið
framkvæmdastjóri Orku náttúrunn-
ar (ON) frá haustinu 2016 en hann
hóf störf hjá Orkuveitu Reykjavíkur
2012. ON hefur náð góðum árangri
síðustu ár með nýrri aðferð til að
draga úr styrk brennisteinsvetnis í
andrúmslofti af völdum jarð-
gufuvirkjana.
Lofthreinsistöðin gengur út á það
að þær jarðhitalofttegundir sem
fóru áður út í andrúmsloftið eru að-
skildar frá gufunni og dælt aftur nið-
ur í jarðhitageyminn þaðan sem þær
komu.
„Þessi nýja aðferð hefur verið í
þróun allt frá árinu 2007 og í notkun
síðustu þrjú ár og reynst vel. Við er-
um að dæla niður um 60% af öllu
brennisteinsvetni sem kemur upp
með gufunni. Við tvöfölduðum loft-
hreinsunina í sumar. Af sjö vélum
virkjunarinnar erum við að dæla nið-
ur brennisteinsvetni frá fimm. Hinar
tvær eru í nýjasta stöðvarhúsinu sem
er aðeins fjær eldra húsinu og þær
eru ekki tengdar þessu kerfi,“ segir
Bjarni.
Verkefnisáætlunin miðaði við að
hreinsa um tvo þriðju brennisteins-
vetnisins og athuga hvort það væri
nægjanlegt til að vera innan marka
starfsleyfis, sem kveður á um að
meðaltalsstyrkur á sólahring fari
ekki oftar en þrisvar á ári yfir 50 μg/
m3.
„Það kom okkur á óvart að við þær
sérstöku veðuraðstæður sem urðu í
byrjun mars, að styrkurinn fór tvisv-
ar yfir sólahringsmörkin. Nú vitum
við að þetta getur gerst við þessar
sérstöku veðurfarsaðstæður og ætl-
um því að tengja síðustu tvær vél-
arnar við lofthreinsistöðina og auka
þannig afköstin. Þetta mun gerast
fyrir næsta vetur ef þarf,“ segir
hann.
Kröfurnar hafa breyst
Þegar fyrsti áfangi Hellisheiðarvirkj-
unar var byggður árið 2006 voru eng-
ar reglur í gildi á Íslandi um styrk
brennisteinsvetnis í andrúmslofti. „Í
dag gerir almenningur eðlilega meiri
kröfur til loftgæða. ON mætir þess-
um kröfum. Við erum ákaflega stolt
af þessari grænu orkuvinnslu og vilj-
um gera allt sem í okkar valdi stend-
ur til að gera enn betur og stefnum á
sporlausa vinnslu,“ segir hann.
Heilsuverndarmörk í
ýmsum löndum
* Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
Heimild: Sigurður Björnsson og Þröstur Þorsteinsson 2014
St
yr
ku
r
br
en
ni
st
ei
ns
ve
tn
is
(μ
g/
m
3 )
Br
et
la
nd
(2
4
kls
t.)
Ba
nd
ar
ík
in
m
eð
al
ta
l
Ka
na
da
m
eð
al
ta
l
Ás
tr
al
ía
(2
4
kls
t.)
N
ýj
a-
Sj
ál
an
d
(1
kls
t.)
In
dl
an
d
(2
4
kls
t.)
Rú
ss
la
nd
(2
4
kls
t.)
Ú
rú
gv
æ
(2
4
kls
t.)
160
140
120
100
80
60
40
20
0
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Allt bendir til þess að brennisteinsvetnismengunin frá Hellisheiðarvirkjun hafi farið tvisvar yfir sólarhrings viðmiðunarmörk
á þessu ári. Aðeins er leyfi til þess að fara þrisvar yfir mörkin á ári. Orka náttúrunnar bregst við með því að hreinsa meira.
’
Lífeðlisfræðileg skýring er fyrir því að brennisteinsvetnislykt
getur valdið ógleði en það getur verið smá brennisteinsvetn-
islykt af skemmdum mat. Sú lykt er að segja okkur að borða ekki
matinn og þó að enginn matur sé til staðar framkallast ógleðin.
INNLENT
INGA RÚN SIGURÐARDÓTTIR
ingarun@mbl.is
Núverandi vefsíða Umhverfisstofnunar sem sýnir loftgæðamælingar
er orðin gömul og þarfnast uppfærslu. Sem stendur er aðeins hægt
að skoða tíu mínútna meðaltöl fyrir mælana við Grensásveg og
Norðlingaholt á ust.is. Seinna á árinu verður opnuð ný síða Umhverf-
isstofnunar þar sem hægt verður að sjá tíu mínútna-, klukkutíma- og
sólarhringsmeðaltöl á magni brennisteinsvetnis í andrúmslofti. Þá
mun síðan líka telja sjálfvirkt hversu oft hefur verið farið yfir mörkin.
Svokallað dreifilíkan verður einnig á væntanlegri síðu. Þá verður
hægt að sjá hvernig mengunin breiðir úr sér þegar svo stendur á. „Þá
geturðu séð að strókurinn úr Hellisheiðarvirkjun liggur núna í Kópa-
vog og Hafnarfjörð en ekki í Reykjavík, eða það að hann liggur í Mos-
fellsbæ. Þetta eru þá reiknuð gildi. Öll upplýsingamiðlun verður
miklu betri,“ segir Þorsteinn. „Í dag getum við aðeins sýnt hvernig
styrkurinn er á hverri mælistöð en með dreifilíkani getum við séð
hvernig mengun dreifir úr sér, til dæmis út frá stórum umferð-
argötum eða verksmiðjum,“ segir hann.
Unnið er að uppsetningu hugbúnaðarins en einhverja mánuði tek-
ur að láta hann virka enda þarf að setja gríðarlega mikið gagnamagn
inn í líkanið svo það virki rétt.
Bylting með nýrri síðu