Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Blaðsíða 28
Það er alltaf eitthvað svo hlýlegt að koma íNorræna húsið. Í gamla daga var algengtað skreppa þangað á myndlistarsýningu, lesa norræn blöð, fá sér jafnvel kakó og vöfflu og horfa yfir Vatnsmýrina með öllu sínu fuglalífi. Í dag má finna þar veitingastaðinn AALTO Bistro sem tekur á móti gestum í hádegismat, síðdeg- iskaffi alla daga vikunnar, og kvöldmat allt að fjögur kvöld í viku. Innanstokksmunir sem lang- flestir eru eftir hinn finnska heimsfræga arkitekt hússins, Alvar Aalto, hafa lítið breyst í áratugi og sami notalegi andinn er þar enn í dag. Veitinga- staðurinn heitir í höfuðið á honum til að heiðra einstaka arfleifð hans í Vatnsmýrinni. „Við fáum stundum fólk sem kemur í kaffi og er í smá nos- talgíukasti,“ segir Sveinn og bætir við að stemn- ingin sé dálítið eins og að vera í sveitinni. „Svo er gríðarlegt fuglalíf hér og þó að þú sért með Hringbrautina nálægt þá ertu samt kominn út í sveit.“ Veitingastaðinn AALTO Bistro má finna í Norræna húsinu. Yfirkokkurinn Sveinn Kjartansson segir matinn í norrænum anda en undir áhrifum frá Miðjarðarhafslöndum og er áhersla lögð á ferskleika og frumleika. Útsýnið yfir Vatnsmýrina skemmir ekki fyrir og stutt er fyrir kokkana að sækja kryddjurtir og grænmeti sem vex rétt fyrir utan gluggann. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Krafa um vegan-rétti Sveinn segir nóg að gera en viðskiptavinir eru blanda af erlendum ferðamönnum og Íslend- ingum. „Við erum að reyna að gera öllum til hæfis og erum til dæmis með jafn marga kjöt-, fisk- og vegan-rétti á matseðlinum,“ segir Sveinn og segir að fólk í dag gerir kröfur um að hægt sé að fá vegan-rétti. „Það er skemmti- leg nýjung að vera með marga vegan-rétti og heldur manni vakandi,“ segir hann. „Við förum okkar eigin leiðir í að nálgast hrá- efni og verslum mikið við smáframleiðendur, bæði í fiski og grænmeti,“ segir Sveinn. „Við erum líka með gróðurhús á sumrin þar sem við ræktum okkar eigin kryddjurtir og smámat- jurtagarð þar sem við ræktum grænmeti.“ Matarmenningar mætast Maturinn byggist á norrænum grunni með Miðjarðarhafsútfærslu. „Þegar ég tala umMorgunblaðið/Ásdís Norrænn Miðjarðarhafsmatur Sveinn Kjartansson hefur eldað fisk og kjöt í áratugi. Nú tekst hann einnig á við vegan-rétti. 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.3. 2017 MATUR Fyrir 4 4 andaleggir 8 msk fínt borðsalt 10 stk kardimommur rifinn börkur af ½ appelsínu ½ tsk engiferduft 700 g andafita 3 lárviðarlauf svört piparkorn 1 appelsína 1 msk teriyaki sósa 4 stk tortillur Hreinsið leggina vel, stráið helm- ingnum af saltinu á bakka og legg- ið fuglinn á bakkann. Myljið kardimommurnar, börk- inn af appelsínunni, engiferduftið og lárviðarlaufin fínt og stráið yfir. Stráið síðan restinni af saltinu yfir og geymið í 8 klst. Hreinsið saltið af fuglinum með köldu vatni og þerrið vel. Leggið í eldfast mót, hitið and- arfituna og hellið yfir fuglinn í mótinu, bætið timjani og svörtum piparkornum í mótið. Lokið og setjið í 150°C heitan ofn í um 5 klst. Takið út úr ofninum, skafið kjöt- ið af beinunum, skrælið appelsínu og skerið kjötið í fína bita og setjið saman við kjötið ásamt teriyaki- sósunni. JARÐARBERJA-LINSUSALAT 200 gr brúnar linsubaunir 6 jarðarber ENGIFER-KÓRIANDER KRYDDLÖGUR 20 gr engifer 5 stönglar kóriander 2 msk sesamolía 3 msk sæt chilisósa 3 msk repjuolía Maukið engiferinn í matvinnsluvél ásamt kóriander, bætið síðan chili- sósunni og olíunum saman við og maukið aðeins betur. Sjóðið linsubaunir og kælið, skerið jarðarberin og bætið út í ásamt engifer-kóriander krydd- leginum. Setjið salatið á fjóra diska. Setj- ið öndina inn í tortillur, skerið þær í tvennt og setjið ofan á salatið. Hægeldaðir andaleggir í tortillu á linsubauna-jarðarberjasalati Kældur límónuleginn saltfiskur Fyrir 4 300 g vel útvatnaður saltfiskhnakki 8 stk blandaðar ólífur 2 vel þroskaðir kirsuberjatómatar safi úr 1 límónu nýmulinn svartur pipar repjuolía bergmynta Skerið saltfiskinn í þunnar sneiðar og leggið á stóran disk þannig að sneiðarnar séu þétt saman en liggi ekki hver ofan á annarri. Piprið. Skerið ólífurnar í litla bita. Skerið kjötið utan af tómötunum í litla bita og dreifið ólífunum og tómöt- unum yfir saltfiskinn. Kreistið lím- ónuna yfir fiskinn og sáldrið repju- olíunni yfir ásamt bergmyntulaufum. Berið fram vel kalt og gott að bera fram með ristuðu brauði.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.