Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.3. 2017 L engi hafa ríki reynt að hafa auga með samsærismönnum. Oftast vegna þess að rétthöfum almannavaldsins (veitt af kjósendum eða guði eftir atvikum) stafaði hætta frá þeim. Enn er minnst dánardægurs Sesars 15. mars og rifj- að upp er samsærismenn lögðu til hans með hnífum í gömlu Senatsbyggingunni. Sesar var mest hissa á Brútusi. Góðir samsærismenn Þeir samsærismenn áttu sinn málstað. Þeir töldu að Sesar hefði tekið sér alræðisvald og væri að festa það í sessi. Þeir litu á sig sem lýðsins menn, og það má vera rétt. En kannski í bland valdabraskarar að hugsa um sitt. Umboðslausir samsærismenn geta svo sannarlega verið riddarar þess góða sem verðskulda virðingu og aðdáun. Ekki síst þeir sem takast á við ofurvald ein- ræðis í einhverri mynd. Samsærismennirnir sem reyndu að tortíma Adolf Hitler börðust fyrir góðan málstað. Sumir þeirra höfðu vissulega fylgt foringj- anum lengi vel en sáu að eins og mál þróuðust yrði Þýskaland rjúkandi rúst réði hann ferðinni áfram. Sumir reyndu fyrr á valdaferli foringjans að andæfa og finna leið til að ryðja honum úr vegi. Þá hafði öllum lýð- ræðislegum leiðum til andspyrnu verið kyrfilega lokað. Leynilögreglan Gestapo og SS-eðalsveitir foringjans voru á hverri þúfu. Samsæri fárra var eini kosturinn sem í boði var. Það voru aðeins hetjur brennandi í and- anum sem lögðu á ráðin um morðtilraun þegar allt gekk Hitler í haginn og mikill meirihluti þjóðarinnar horfði til hans sem óskeikuls handhafa alls valds. Þess- um fámennu en kjörkuðu hópum hugnaðist ekki stefna hans, hatur og tryllingur. Öllum þessum samsæris- hópum mistókst. Stundum fyrir helbera óheppni. Sprengjur sem tekist hafði að koma í einkaflugvél for- ingjans sprungu ekki. Þessi langorði ræðufauti hvarf af óskiljanlegum ástæðum úr ræðustól miklu fyrr en ætla mátti og var því horfinn þegar sprengjan sem hefði bundið enda á líf hans sprakk. Og síðasta til- ræðið, sem heppnaðist best, náði aðeins að særa ein- ræðisherrann og tæta sundur föt hans þar sem sprengja í skjalatösku endaði vitlausu megin við massífan burðarfót fundarborðsins sem foringinn var við. Í flestum þessara tilvika biðu hetjanna hryllileg ör- lög, pyntingar og kvalafullar aftökur. Hinir Í lýðræðisríkjum hafa leiðtogum líka verið brugguð banaráð. Iðulega hafa það fremur verið geðfelldu leið- togarnir sem hafa lent verst i því. Í Bandaríkjunum var það eðalmennið Abraham Lincoln sem fyrstur forseta féll fyrir byssukúlu morð- ingja. Það var um það leyti sem loks sá fyrir enda á mesta hörmungartíma í sögu Bandaríkjanna. Það var lán að lýðræðiskerfið hafði náð að leiða fram besta manninn sem völ var á. Það blasti ekki endilega við að Abraham Lincoln væri sá maður. Sumir kusu hann af því að hann væri ekki „ofstækismaður gegn þræla- haldi“. Þessi friðsami maður, hugsuðurinn og góð- mennið, stóð í öndvegi þegar bræður börðust og féllu í hrönnum. Slagurinn stóð um það hvort halda mætti stórum hópi manna áfram í þrælkun og stunda með það fólk kaupskap eins og lausafé og búpening. Og hvort slíta mætti í sundur ríkið vegna þess. Annar forseti Bandaríkjanna sem féll fyrir byssu- kúlu morðingja var John F. Kennedy. Yngsti forseti í sögu Bandaríkjanna. Við vitum nú að hann var ekki sama úrvalseintakið og Lincoln. En hann naut á sinni tíð mikillar vinsemdar og aðdáunar hjá meirihluta Bandaríkjamanna. Tveir forsetar aðrir voru myrtir á þeirri öld sem leið á milli morða Lincolns og Kennedys. Það voru þeir Garfield og McKinley. Mörgum þótt táknrænt að varaforseti Lincolns héti Johnson eins og varaforseti Kennedys. Og þá var það undur oft nefnt að einkaritari Kennedys hét Evelyn Lincoln og stundum var því haldið fram að ritari Lin- colns hefði heitið Kennedy, en það er ekki trúlegt. For- setarnir voru þeir fyrstu sem fæddir voru á sömu öld sem þeir þjónuðu á. Þeir voru báðir skotnir í höfuðið á föstudegi og með eiginkonur sínar sitjandi við hlið sér. Báðir forsetarnir eignuðust fjögur börn og báðir misstu son á meðan þeir bjuggu í Hvíta húsinu. Lin- coln var myrtur í Ford-leikhúsinu og Kennedy í Lin- coln-bifreið framleiddri af Ford. Mjög margt annað, sem þótti sérkennilegt, var tínt til. Ekkert af því skipti máli, en var til þess fallið að ýta undir dulúð. Tveir forsetar Bandaríkjanna hlutu skotsár við morðtilraunir, þeir Theodore Roosevelt og Ronald Reagan. Sá síðarnefndi slapp mjög naumlega. Í flest- um þessara tilvika voru árásarmennirnir taldir veikir á geði. Fjölmargar samsæriskenningar hafa þó blossað upp og verið lífseigar, t.d. tengdar morðinu á Kennedy. Fjöldi bóka, blaðagreina, sjónvarpsþátta og kvik- mynda hefur verið gerður til að styðja samsæriskenn- ingar. Ekki hefur þó enn tekist að gera það með trú- verðugum hætti. Sá eini Í nágrannaríki okkar Bretlandi hafa 54 menn gegnt embætti forsætisráðherra. Ekki liggja fyrir haldgóðar upplýsingar um það hversu oft hefur verið reynt að myrða forsætisráðherrann þar. En hitt liggur fyrir að aðeins einu sinni hefur það tekist. Sá sem féll fyrir morðingja hendi er ekki einn af þekktustu forsætis- ráðherrunum. Sá hét Spencer Perceval. Hann hafði gegnt allmörgum ráðherraembættum og hlaut til að mynda lof fyrir störf sín sem fjármálaráðherra. Hann varð forsætisráðhera árið 1809 en 11. maí 1812 féll hann fyrir byssukúlu frá John Bellingham í almenningi þinghússins. Hann dó samstundis. Perceval var í hópi fátækustu einstaklinga sem gegnt hafa embætti for- sætisráðherra í Bretlandi, en til þess var tekið hversu örlátur hann var á sitt takmarkaða fé. Forsætisráð- herrann og kona hans Jane voru trúföst og kirkjuræk- in með afbrigðum og það þótti fögur sjón að sjá þegar ráðherrahjónin sóttu kirkju sína á hverjum sunnudegi og leiddu þangað öll börnin sín 12. Sá barnaskari var ekki hjálplegur fjárhag forsætisráðherrans. Árásarmaðurinn John Bellingham var ekki geðtrufl- aður í almennri merkingu orðsins. Hann hafði verið fangelsaður í Rússlandi sem hermaður og taldi að breska ríkið skuldaði sér skaðabætur. Varð hann algjörlega heltekinn af því máli og hafði rætt það við þingmenn og ráðherra, og þar á meðal forsætisráð- herrann, án árangurs. Þess vegna myrti hann ráð- herrann. Það voru hafðar hraðar hendur í sakamálum á þessum tíma. Fjórum dögum eftir að Perceval var veginn, hinn 15. maí, var réttað yfir Bellingham, sem sýndi enga iðrun. Kviðdómur tók sér 10 mínútur til að Göngum hægt og göngum hljótt þá grunar öngvan nokkuð ljótt ’ En það eru margir sem hafa aldrei sýnt á spilin sín. Þeir eru hættulegastir. Þýska lögreglan telur sennilegt að um 10 þús- und hryðjuverkamenn hafi komið með þeim hundruðum þúsunda sem tekið var fagnandi, þótt úr fagnaðarlátum hafi dregið. Reykjavíkurbréf24.03.17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.