Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.3. 2017
VETTVANGUR
Í vikunni seldi einkafyrirtæki29% hlut í Arion banka tilnokkurra erlendra fjármálafyr-
irtækja. Seljandinn er einnig að
verulegu leyti í eigu sömu erlendu
aðila. Kaupendurnir hyggjast
sækja um leyfi Fjármálaeftirlitsins
til að fara með virkan eignarhlut í
bankanum.
Íslenska ríkið átti enga aðkomu
að þessum viðskiptum, var hvorki
kaupandi né seljandi enda ekki eig-
andi að þessum hlut í Arionbanka
og hefur vonandi engan sérstakan
áhuga á að bæta fjórða ríkisbank-
anum í safn sitt. Fyrir á íslenska
ríkið Landsbankann, Íbúðalánasjóð
og Íslandsbanka.
Það óvenjulega við þessi við-
skipti einkaaðila með hlut í banka
er að söluandvirðið, tæpir 50 millj-
arðar króna, rennur allt í ríkissjóð
Íslands. Ríkissjóður hefur að mér
sýnist fljótt á litið aldrei fengið svo
háa fjárhæð í sinn hlut við banka-
sölu, jafnvel ekki þegar seldir voru
hlutir í bönkum
sem voru þó í
eigu hans sjálfs!
En svo gaus
reiðin upp.
Og hverjir
urðu svona reið-
ir? Kannski er-
lendu seljendurnir sem fengu ekki
krónu fyrir hlutinn sem þeir seldu?
Nei, það voru ýmsir landar mínir
sem áttu enga aðild að þessum við-
skiptum en töldu sig og aðra Ís-
lendinga hlunnfarna með ein-
hverjum hætti, og það þótt allir
fjármunirnir sem skiptu um hend-
ur í þessum viðskiptum muni renna
í ríkissjóð Íslendinga. Og það þótt
enginn sé skyldaður í viðskipti við
þennan banka. Þeir sem kunna að
vera ósáttir við eignarhaldið geta
einfaldlega leitað annað.
Meðal hinna reiðu voru nokkrir
þingmenn sem höfðu þó komið að
og samþykkt þau lög sem um þessi
mál gilda, bæði almenn lög sem
gilda um eignarhald banda og eft-
irlit með þeim og sérstök lög sem
lögðu grunn að því að hægt væri
að aflétta höftunum að mestu leyti
og vörðuðu því leiðina í þessum
viðskiptum með hlutinn í Arion
banka.
Mesta undrun mína vakti að sjá
fyrrverandi ráðherra Framsókn-
arflokksins lýsa efasemdum um
þessi mál sem þeir áttu sjálfir svo
ríkan þátt í með lagasetningu á
síðasta kjörtímabili. En ef til villl
höfðu hinir ágætu Framsókn-
armenn vænt-
ingar um að
engir kaupendur
fyndust að
bankanum, hann
endaði þar með
á einhvern hátt í
fangi ríkisins og
yrði síðar meir liður í „end-
urskipulagningu“ Framsókn-
arflokksins á fjármálakerfinu.
Þrátt fyrir þá óvenjulegu stöðu
að beina aðkomu Framsókn-
arflokksins skorti við þessa banka-
sölu mun umræddur banki vonandi
lifa áfram eigendum sínum, starfs-
mönnum og viðskiptavinum til
gagns. En auðvitað er ekki á vísan
að róa í bankarekstri, alveg sama
hver eigandinn er, eins og und-
anfarinn áratugur hefur kennt
mönnum á nokkuð sársaukafullan
hátt á Vesturlöndum.
Hjálp, hlutur í banka seldur án
aðkomu Framsóknarflokksins
’ Hverjir urðu svonareiðir? Kannski er-lendu seljendurnir semfengu ekki krónu fyrir
hlutinn sem þeir seldu?
Úr ólíkum
áttum
Sigríður Andersen
saa@althingi.is
Morgunblaðið/Golli
Tónlistarmað-
urinn Stefán
Hilmarsson
skrifaði á Fa-
cebook í vikunni:
„Í gær og aftur
áðan heyrði ég í útvarpinu lagið
góða sem Daði flutti í Söngva-
keppninni, en á ensku. Lagið er
til á íslensku, sló þannig í gegn á
dögunum og það er mér óskilj-
anlegt að útvarpsstöðvarnar spili
ekki þá útgáfu. Hvaða heimótti
er þetta? Lagið er flott á ís-
lensku, við erum íslensk, íslenska
er móðurmál langflestra sem á
hlýða og leiðin að hjartanu er
greiðari og styttri á móðurmál-
inu. Upp með sokkana!“
Brynjar
Níelsson þing-
maður hefur
gantast með út-
litsumræðu um
sjálfan sig á Fa-
cebook og skrifaði: „Þegar ég
gekk inn í þingsalinn áðan sagði
myndatökumaður RUV við mig
að brosa nú einu sinni. Þetta er
mikil vanvirðing við okkur fýlda
fólkið? Ætlar hann kannski að
segja mér að borða þegar lík-
amsræktarátaki mínu lýkur?“
Þá hafði hann stuttu áður sagt
að honum fyndist með ólíkindum
að hann kæmist ekki á lista
stjórnmálamanna með fallegasta
hárið á Smartlandi. „Ætla þau á
Smartlandi næst að halda mér
fyrir utan lista yfir kynþokka-
fyllstu stjórnmálamennina? Þá
verða þau fullkomlega ómark-
tæk.“
Uppistandarinn
með meiru,
Bylgja Bab-
ýlons, tísti um
launakröfur: „Var
að senda póst
vegna launa-umsemjunar. Setti 3
broskalla svo enginn haldi að ég
sé reið. Godforbid að fólk haldi
að ég sé frek.“ Hún benti líka á
það á Twitter að sér fyndist
„móðgandi þegar fólk móðgast
yfir því hvað ég er móðguð og
þá verð ég móðguðust.“
Og Sóley
Tómasdóttir,
fyrrverandi borg-
arfulltrúi, tísti í
gær: „Hvað er
málið með aflit-
aða hárið á forsprökkum ras-
istaflokka? Halda þau að kjós-
endur trúi því að þetta sé þeirra
náttúrulegi lit-
ur?“ Þórunn
Ólafsdóttir,
formaður Akker-
is, samtaka
áhugafólks um
starf í þágu flóttamanna tók und-
ir og skrifaði: „ Hugsaði þetta
þegar hann þarna hollenski nas-
istinn með pissugula hárið birtist
á skjánum um daginn. Langar líka
að vita.“
AF NETINU
Active Liver stuðlar að
eðlilegum efnaskiptum
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
Nánari upplýsingar á www.icecare.is
Heilbrigð melting
Inniheldur:
• Kólín sem stuðlar að:
- eðlilegum fituefnaskiptum
- viðhaldi eðlilegrar starfsemi lifrarinnar
• Mjólkurþistil og ætiþistil sem talin eru
stuðla að eðlilegri starfsemi lifrar og galls
• Túrmerik og svartan pipar
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU
AÐ LÁTA
GERA VIÐ?