Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Qupperneq 19
26.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
dæmigert fyrir forseta á sínu fyrsta ári.“
Jervis játar að árásir af þessum toga séu ekk-
ert nýtt. Obama hafi látið gera fjölda árása í
valdatíð sinni, þótt hann hafi ekki látið til skarar
skríða í Jemen.
„Ég ligg honum ekki á hálsi fyrir að halda að
þetta sé vel smurð vél,“ segir hann. „En góður
forseti mun tileinka sér að spyrja erfiðra spurn-
inga.“
Annað dæmi um misheppnaða hernaðar-
aðgerð í upphafi valdatíðar nýs forseta er inn-
rásin á Svínaflóa, þegar John F. Kennedy gerði
tilraun til að steypa Fidel Castro, leiðtoga
Kúbu, þremur mánuðum eftir að sá fyrrnefndi
tók embætti 1961.
„Kennedy lærði af reynslunni. Fyrir það
fyrsta tók hann fulla ábyrgð, sem Trump hefur
ekki gert. Síðan breytti hann samráðsferlinu og
rak þá starfsmenn CIA sem lugu að honum, án
þess þó að skella skuldinni á þá opinberlega.
Þeir fengu að setjast í helgan stein með reisn.
Allir forsetar gera mistök fyrsta árið, þeir góðu
læra. Ég hef áhyggjur af að Trump geti ekki
lært þegar sá lærdómur krefst þess að hann við-
urkenni eigin sök.“
Dýrkeypt óbeit á að tapa
Jervis talar í bók sinni um ýmislegt sem hafi
áhrif á leiðtoga. Þar á meðal eru ótti, óbeitin á
að bera skarðan hlut frá borði og hversu erfitt
það getur verið að láta staðar numið þegar stað-
an er vonlaus.
„Ég er ekki með allsherjarkenningu um
skilning og ákvarðanatöku,“ segir hann. „Heim-
urinn er flókinn og þeir fræðimenn sem ég leita
fanga hjá hafa ekki sett fram slíka kenningu.
Kannski er til efniviður í hana en hún er enn
ófundin. Óbeitin á að tapa er athyglisvert fyr-
irbæri. Ég hef nýtt mér sálfræðirannsóknir
Amosar Tversky og Daniels Kahneman. Rökin
eru sterk og má yfirfæra á flest svið lífsins.
Flest okkar – ekki öll – hafa tilhneigingu til að
forðast áhættu fyrir ávinning. Fólk er ekki
tilbúið að leggja undir og vill helst að meira en
helmingslíkur séu á að það hafi betur áður en
það tekur áhættu til að bæta hag sinn. Þetta er
ekki í samræmi við þá hegðun sem búast mætti
við samkvæmt kenningum um „huglægar vænt-
ar nytjar“. Sá sem stendur hins vegar frammi
fyrir því að þurfa að ná aftur tapi eða mun
örugglega tapa nema hann taki áhættu er mun
frekar tilbúinn að láta skeika sköpuðu. Fólk
hegðar sér mun glannalegar og leggur frekar
undir þegar því finnst að annars muni það þurfa
að sætta sig við tap. Ástæðan fyrir því að Daniel
fékk nóbelsverðlaunin í hagfræði - Amos var
látinn - er að þessi hegðun gengur þvert á
grunnhugmyndir um skynsemi.“
Jervis segir að þegar þessi sálfræði sé yfir-
færð á alþjóðastjórnmál vakni ýmsar spurn-
ingar. Samkvæmt þessari greiningu séu leiðtog-
ar líklegir til að taka mikla áhættu þegar hinn
kosturinn er að sætta sig við tap eða missi.
„Japan er gott dæmi,“ segir hann. „Japanar
tóku ótrúlega áhættu í desember 1941 þegar
þeir réðust á Pearl Harbor. Það voru ekki mikl-
ar líkur á að þeir myndu geta komið að óvörum,
þótt það tækist, en líkurnar á að þeir sigruðu
Bandaríkin voru varla fyrir hendi og þeir vissu
það. Hinn kosturinn var að sætta sig við óhjá-
kvæmilegt tap, missi áhrifa sinna í Kína. Skyn-
semin hefði átt að segja þeim að það væri betra
að tapa Kína en fósturjörðinni, en þeir voru til-
búnir að taka þá áhættu. Við Bandaríkjamenn
skildum það ekki. Við áttum von á að þeir
myndu ráðast á Filippseyjar eða Hollensku
Austur-Indíur, en ekki Pearl Harbor og hefja
allsherjarstríð. Við skildum ekki að þeir voru í
stöðu sem líklegt var að leiddi til að menn tækju
óvenju mikla áhættu.“
Jervis segir að það sama megi segja um
Kúbudeiluna 1962.
„Níkíta Krústsjov Sovétleiðtogi setti kjarn-
orkuflaugar á Kúbu, sem var mjög hættulegt,“
segir hann. „Hann vanmat hættuna, en hvers
vegna? Hann hafði rétt komist að því að fyrsta
kynslóð langdrægra kjarnorkuflauga væri mis-
heppnuð og ekki yrði hægt að koma þeim fyrir
að neinu marki. Hann hafði einnig lagt pólitíska
framtíð sína heima fyrir undir með fyrirheiti um
að skera heraflann niður. Það krafðist mikils
fjölda kjarnorkuflauga sem drifu til Bandaríkj-
anna. Hann var því mjög aðþrengdur. Banda-
ríkjamenn skildu það ekki. Sennilega höfðum
við nægar upplýsingar til að átta okkur, en jafn-
vel þótt við hefðum áttað okkur á heildarmynd-
inni er ég ekki viss um að við hefðum skynjað
hvað það þýddi að Krústsjov hefði á tilfinning-
unni að hann væri að missa tökin og yrði að
grípa til örþrifaráða. Tilhneigingin til að taka
áhættu við svona kringumstæður og sú stað-
reynd að aðrir eru ekki líklegir til að átta sig á
því geta verið mikilvægir þættir þegar leitað er
orsaka stríða.“
Jervis segir að þótt ekki sé grunnkenning séu
tveir lykilþættir sem móti skilning á umhverf-
inu.
Sjáum það sem við eigum von á
„Annar er þær kenningar og væntingar sem
einstaklingurinn hefur,“ segir hann. „Við sjáum
það sem við eigum von á að sjá. Ef ég á von á að
þú hegðir þér eins og viðkunnanlegur maður og
við eigum hlutlaus samskipti mun mér finnast
þú viðkunnanlegur. Ef mér finnst þú vera skít-
hæll getum við átt nákvæmlega eins samskipti
og ég mun líta svo á að framkoma þín staðfesti
þá skoðun mína að þú sért skíthæll.“
Hinn þátturinn er þegar gildismat eða
sjónarmið stangast á. „Ef sjónarmiðin helgast
af djúpri sannfæringu getur það verið erfitt,“
segir Jervis. „Oft horfa menn framhjá því, líta
jafnvel svo á að sjónarmiðin fari saman, þótt það
sé óskhyggja. Ég hef notað innrás Bandaríkja-
manna í Írak sem dæmi.
Við trúðum því að Sadd-
am Hussein væri ógnvald-
ur, byggi yfir gereyðing-
arvopnum og væri í
tygjum við hryðjuverka-
samtökin al-Qaeda. Við
trúðum því einnig að ekki
aðeins myndu átökin
reynast auðveld, sem var
reyndin, heldur að her-
námið og uppbyggingin
yrðu það líka. Ég hef ekk-
ert séð sem bendir til annars en að innst inni
hafi þeir trúað því sem þeir sögðu opinberlega,
en ég ætla ekki að útiloka að þetta hafi verið
sagt til að tryggja pólitískan stuðning. En það
kemur annað til. Menn þurfa að lifa með sjálfum
sér. Það er hræðileg sálræn byrði að fyrirskipa
innrás ef maður trúir að það þýði tíu ára her-
nám. Ég held að fólk forðist slíka byrði ef það
mögulega getur.“
- Hvað þarf leiðtogi að hafa til brunns að bera
eigi honum að farnast vel í ólgusjó alþjóða-
stjórnmála?
„Leiðtogi þarf að vera tilbúinn að færa fórnir
þegar gildismat eða sjónarmið hans fara ekki
saman,“ segir hann. „Menn eiga ekki að blekkja
sjálfa sig heldur hafa hugrekki til að sofa illa á
nóttunni vegna vissunnar um að ákvarðanirnar
sem þeir þurfa að taka eru erfiðar, ekki auð-
veldar. Allar endurminningabækur leiðtoga
fjalla um erfiðar ákvarðanir en þeir hegða sér
ekki þannig. Það væri óbærilegt. Þá ættu þeir
erfitt með að lifa með sjálfum sér. En sá sem
áttar sig á hverju er fórnað fyrir hvað á auðveld-
ara með að takast á við það. Svo að við tökum
Írak aftur sem dæmi hefði verið hægt að senda
fleiri hermenn og vera betur undirbúinn. Það
hefði verið hægt að átta sig á að það yrði ágrein-
ingur milli sjía og súnnía og lagt á ráðin hvernig
mætti í það minnsta slá á vandann. Það er hins
vegar aðeins hægt með því að horfast í augu við
vandann og það getur kallað á hugrekki.“
Jervis segir að einnig geti verið mikilvægt að
átta sig einfaldlega á því hvernig maður hugsar,
skilja eigin þankagang.
„Þetta á sérstaklega við um tilhneiginguna
sem við höfum öll til þess að sjá það sem við bú-
umst við að sjá, að laga þær upplýsingar sem við
fáum að þeim skoðunum sem fyrir eru,“ segir
hann. „Ef maður gerir það hangir maður á trú
sem ekki stenst fram yfir þá stund sem skyn-
samur maður myndi snúa við blaðinu. Það þýðir
ekki að menn eigi að fara í hringi eins og Trump
virðist hafa gert í pyntingamálinu. Þetta snýst
um að vera vakandi, hvort sem það er persónu-
lega eða með því að virkja samstarfsmenn,
gagnvart misvísandi upplýsingum, spyrja sjálf-
an sig hvað hafi komið fram í heiminum sem gefi
til kynna að maður hafi haft rangt fyrir sér.
Einnig að forðast þá gildru að líta á allt sem
staðfestingu þess sem maður trúir. Það gæti
stuðlað að réttari skilningi á heiminum og auð-
veldað mönnum að koma auga á breytingar.“
Í lok bókar segir Jervis að við lok kalda
stríðsins hafi leiðtogar heims haft „vissu og vilja
til að reyna að lifa í sameiginlegum heimi“. Það
er við hæfi að spyrja hvort hann telji að sá tími
sé liðinn; að nú megi frekar segja að við lifum í
heimi misvísandi skilaboða, tortryggni og fjand-
skapar.
„Það er nokkuð til í því en þó má ekki gleyma
að heimurinn er mun öruggari en hann var í
kalda stríðinu,“ segir hann. „Þeir sem segja að
heimurinn sé hræðilegur hafa annaðhvort
gleymt eða eru of ungir til að muna hvernig
kalda stríðið var. Ég hafði ágætlega upp úr því í
20 ár eða lengur að rannsaka kjarnorkuvopn. Á
hverjum degi hafði ég áhyggjur. Ég var ekki
með þetta á heilanum en sú hugsun að við
myndum deyja, ekki þann daginn, en í framtíð-
inni, var alltaf til staðar.“
Jervis telur að þótt fæstir hafi áttað sighefði
átt að vera erfitt að láta merkin um endalok
kalda stríðsins fram hjá sér fara, sérstaklega
vegna þess að breytingarnar, sem Míkhaíl Gor-
batsjov stóð fyrir, hafi verið svo umfangsmiklar.
„Ronald Reagan verður að njóta sannmælis,
þótt ég hafi ekki stutt hann og telji að hæfileikar
hans hafi verið ofmetnir,“ segir hann.
„Eins og stjórnmálafræðingurinn Keith
Shimko kom auga á, hafði Reagan öfugt við
nánustu samstarfsmenn sína trú á að breyt-
ingar gætu átt sér stað í
Sovétríkjunum. Af ein-
hverjum ástæðum var
hann opinn fyrir þeim
möguleika að Sovétríkin
gætu breyst. Caspar
Weinberger varn-
armálaráðherra og hinir
voru það ekki. George
Shultz utanríkisráðherra
leit held ég frekar svo á að
Sovétmenn væru tilbúnir
til málamiðlana, en skiln-
ingur Reagans virðist hafa verið dýpri. Það er
frægt þegar Reagan stóð á Rauða torginu í
Moskvu 1988 og var minntur á ummæli sín um
heimsveldi hins illa og spurður hvort hann liti
enn svo á. Hann svaraði að þá hefði verið aðrir
tímar. Þessi hæfileiki til að skynja þetta svig-
rúm til grundvallarbreytinga skipti máli og
gerði að verkum að leiðtogarnir höfðu kannski
ekki sömu sýn á stöðuna, en svipaða.“
Hver í sínum heimi
Jervis segir að ýmsar líkingar hafi verið notaðar
til að lýsa alþjóðastjórnmálum og þær séu mis-
góðar.
„Algerir viðvaningar líkja þeim oftast við
skák,“ segir hann. „Það er fráleitt vegna allrar
leyndarinnar og blekkinganna. Fólk sem er bet-
ur að sér notar póker. Það gengur ekki heldur,
því að við skiljum póker. Hjartadrottningin hef-
ur sama vægi í þínum augum og mínum. Besta
samlíkingin er japanska kvikmyndin og smá-
sagan Rashomon. Þar er grundvallarmunur á
því hvernig persónur og leikendur sjá heiminn.
Ástæðan er ekki bara árekstur hagsmuna, þeir
eru hver í sínum heimi þegar kemur að skiln-
ingi. Það er mjög algengt. Við höfum haldið
upprifjunarráðstefnur eftir kalda stríðið þar
sem háttsettir þátttakendur hafa sest niður með
gögnin. Oftar en ekki er viðkvæðið: hélduð þið
þetta virkilega um það sem við vorum að gera?
Hvernig gátuð þið verið svona vitlausir? Þeir
eru gáttaðir hver á öðrum. Alþjóðastjórnmál
eru oft eins og Rashomon og það er mjög erfitt
við að eiga. Ég vona að bókin mín geti orðið til
þess að draga úr þessum vanda, ekki leysa
hann, vegna þess að hann verður aldrei leystur,
en draga úr honum.“
Orrustuskipinu USS Arizona sökkt í árásinni á Pearl Harbor 1941. Ekki hvarflaði að bandarískum
stjórnvöldum að árásin yrði gerð því að það myndi kosta stríð, sem Japanar gætu ekki unnið.
AP
Ronald Reagan og Míkhaíl Gorbatsjov á leiðtogafundinum í Reykjavík 1986. Reagan hafði dýpri
skilning á þeim breytingum, sem áttu sér stað í Sovétríkjunum, en helstu samstarfsmenn hans.
Morgunblaðið/RAX
’Það er nokkuð til í þvíen þó má ekki gleyma aðheimurinn er mun öruggarien hann var í kalda stríð-
inu. Þeir sem segja að heim-
urinn sé hræðilegur hafa
annaðhvort gleymt eða eru
of ungir til að muna hvernig
kalda stríðið var.