Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Side 25
Ingibjörg Hanna sýnir nokkrar nýjar vörur frá IH-ANNA HOME á sýninguinni. Sumar er nýkomnar ámarkað en aðrar rétt ókomnar og eru því frumgerð-
irnar til sýnis núna. Home bags eða heimiliskörfur er ný
vörulína sem samanstendur af 3 stærðum af fjölnota körf-
um í mismunandi útfærslum úr 100% endurunnu plasti og
með leðurhandföngum. Home bag er m.a. gagnlegt fyrir
leikföng, prjónadót, plöntur, tau, eldivið, handlkæði og
margt, margt fleira.
BUBBLES mynstrið er nýtt og nýjar vörur sem falla
undir það eru viskustykki og servíettur sem verður fáan-
legt hvort í sínu lagi en einnig sem gjafasett. Barnarúmföt
er nýjung frá IHANNA HOME og verða fáanleg í 3 út-
færslum: Dots mynstrinu í hvítum með svörtum doppum
og Mountains mynstrinu í bleikri og blárri útfærslu.
Barnarúmfötin eru í sætum „leikfimipokum“. Stærðin er
100x140 cm ásamt koddaveri 45x40 cm. Sængurverunum
er lokað með rennilás. SENTIMENT værðarvoð er viðbót
við værðarvoðalínuna sem er nú þegar fáanleg frá IH-
ANNA HOME. Værðarvoðin er 130 cm x 180 cm að stærð
og framleidd úr 88% ull og 12% bómll sem gerir hana hlýja
og mjúka í senn. „Homebags vörulínan er samstarfsverk-
efni IHANNA HOME og finnska fyrirtækisins Vilikkala,“
útskýrir Ingibjörg og bætir við að eigendur fyrirtækjanna
hafi verið vinir síðan á unglingsárum og hafi lengi dreymt
um að vinna að sameiginlegu verkefni.
Þá segir Ingibjörg innblásturinn að Bubbles mynstrinu
vera frá sápukúlumynstri sem myndast við uppvask.
„Barnarúmfötin urðu til vegna óska frá viðskiptavinum.
Við höfum verið með afskaplega falleg og vönduð rúmföt
fyrir fullorðna og erum við að sinna eftirspurn.“
Ingibjörg segir hugmyndina að munstrinu Sentiment
sprottna úr því tilfinningasambandi sem fólk myndar við
suma hluti sem fylgja því í gegnum lífið.
Aðspurð hvað sé framundan svarar Ingibjörg að hjá IH-
ANNA HOME hanni hún vörur og setji í framleiðslu allt
árið um kring ásamt Iðunni Brynju Sveinsdóttur. „Það er
pínu tilviljun hvað er sýnt á HönnunarMars. Það fer eftir
því hversu langt í ferlinu hver og ein vara er komin – hvort
hún nær inn á HönnunarMars, hvort við erum komnar
með frumgerðir, hvort hún sé jafnvel nýkomin í búðir,“ út-
skýrir Ingibjörg sem vinnur nú að því að hanna fleiri vörur
sem koma á markað í haust. „Svo munum við sýna á hönn-
unarsýningunni FORMEX í Stokkhólmi í haust. Við erum
komnar með flotta umboðsmenn í Svíþjóð og erum því á
fullu ásamt umboðsmönnunum okkar að markaðssetja IH-
ANNA HOME þar í landi. Við erum allavega fullar af
spennu og gleði enda margt framundan.“
Barnarúmfötin frá IHANNA HOME urðu til vegna óska
frá viðskiptavinum.
Spennandi tímar
Heimiliskörfur eru fjölnota körfur í mismunandi útfærslum
úr 100% endurunnu plasti og með leðurhandföngum.
26.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Anna Þórunn sýnir þrjár nýjarvörur á sýningunni. Stólinn By 2vann hún í samvinnu við manninn
sinn, Gian Franco Pitzalis. „Mig er búið
að dreyma um að hanna stól sl. 10 ár en á
námsárum mínum Í Listaháskóla Íslands
gerði ég nokkra stóla. Að hanna stól og
koma honum áfram er heljarinnar verk “
Anna segist þar af leiðandi hafa haldið
sig við smáhlutina. Anna ákvað síðan á
tíu ára útskriftarafmæli sínu úr Listahá-
skóla Íslands að láta drauminn. Hún kaus
að nota pappagarn í stólinn en Gian
hafði, ásamt föður sínum, í æsku ofið set-
ur í stóla með sefgrasi eins og tíðkast
hefur í margar aldir á Sardiníu. „Ég vildi
hafa stólinn rúmgóðan, þar sem ég hef
mikla þörf á að skipta um stellingar þeg-
ar ég sit, og lágan til að halda jarðteng-
ingu.“
Anna sýnir einnig pólýhúðaða stálvas-
ann PROSPER. „Hugmyndin að vasa þar
sem blómin væru að koma upp úr mold-
inni læddist að mér eins og fræi væri sáð
og svo kemur blómið upp. Lok er ofan á
vasanum með misstórum götum en frá
hverju gati fyrir sig liggur rör niður í
vasann, þannig nær blómið að halda styrk
sínum eitt og sér. Með því að hafa rörin
fest við lokið er hreinsun á vasanum auð-
veldari heldur en ef rörin hefðu verið föst
við botninn.“ Þá sýnir Anna einnig borð-
spegil og skartgripahirslu sem ber heitið
Insight, og er einskonar pýramídi úr
ítölskum grænum marmara.
Næst á dagskrá tekur við þróunarvinna
með nýjustu hugfóstrin þrjú.
Stólinn By 2 vann Anna
í samvinnu við manninn
sinn, Gian Franco Pit-
zalis, en hana hefur
lengi dreymt um að
hanna stól.
Blómapotturinn Prosper
er úr pólýhúðuðu stáli.
Borðspegillinn og skart-
gripahirslan Insight.
MorgunblaðiðKristinn Magnússon
Draumur að rætast
Nýir litir og aðferðir
Þær Brynhildur Pálsdóttir, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir og Þur-íður Rós Sigurþórsdóttir hjá Vík Prjónsdóttur sýna treflanaVerndarhendur. „Við erum að fagna því að Epal er að taka Vík
Prjónsdóttur í einskonar fóstur með því að taka yfir reksturinn án
þess að kaupa fyrirtækið,“ útskýrir Guðfinna en á sýningunni kynnir
hönnunarfyrirtækið fimm nýja liti af treflunum. Við erum að tilkynna
samstarfið formlega og fagna því með að kynna nýja liti. „Við erum
mjög spenntar og getum nú einbeitt okkur alfarið að því að hanna.“
Á hverju ári kynnir Vík Prjónsdóttir fimm nýja liti Verndarhanda
og detta þá hinir gömlu út. „Við ákváðum að blanda saman tveimur
litum að þessu sinni svo treflarnir eru yrjóttir öðrum megin sem er al-
veg nýtt og úr verður falleg litasamsetning og myndast skemmtileg
lagskipting þegar treflunum er vafið utan um hálsinn."
Vík er einnig með verk á frímerkjasýningunni í Epal.
Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með
fyrirvara um prentvillur. Yfirstrikað verð sýnir fullt verð vöru.
MORRISON borðstofuborðið er 100 cm breitt, 200 cm langt og hæðin er 73 cm. Það er
stækkanlegt í 358 cm með þremur stækkunum sem fylgja. Hægt er að kaupa viðbótar-
stækkanir sem gera það mögulegt að stækka borðið í 512 cm. Hvíttuð eða olíuborin eik.
AFSLÁTTUR
30%
279.993 kr. 399.990 kr.
MORRISON
Borðstofuborð úr hvíttaðri
olíuborinni eða olíuborinni
gegnheilli eik.