Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Page 30
HEILSA Skíðaganga er góð fyrir hugann ekki síður en líkamann. Á göngu eru vöðvar um allanlíkama virkjaðir og hún því meinholl. Fjallaloftið bætir líka miklu við og gerir það að
verkum að skíðagöngufólk bætir eigið geð meðfram því að byggja upp vöðva og þol.
Gengið fyrir geðið
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.3. 2017
Streita, kvíði og vanlíðan hjá
börnum getur undið uppá sig og
fylgt þeim fram á fullorðinsár og
því getur skipt miklu að gripið sé
inní snemma. Á undanförnum ár-
um hefur íþróttahreyfingin hér á
landi lagt sífellt meiri áherslu á
að fræða um andlega hlið
íþróttanna ekki síður en lík-
amlega uppbyggingu.
Sem dæmi um þetta má nefna
verkefnið Sýnum karakter sem
fræðast má um á vefnum
www.synumkarakter.is.
Hugmyndafræði verkefnisins
byggist á að hægt sé að þjálfa og
styrkja sálræna og félagslega
færni iðkenda íþrótta rétt eins
og líkamlega færni, að því er
segir á vefsvæðinu. Þar má finna
gagnlegar upplýsingar sem helst
eru hugsaðar fyrir þjálfara og þá
sem leiðbeina börnum í íþrótt-
um en nýtast einnig foreldrum
og öðrum sem koma að íþrótta-
starfi með einhverjum hætti.
SÝNUM KARAKTER
Sálrænir þættir ekki síður
mikilvægir í íþróttum
Það að börnum líði vel á
æfingum skiptir miklu máli.
Getty Images/Thinkstock
Það er vel þekkt að hvatninggóðs þjálfara hefur mikið aðsegja, ekki síst þegar iðk-
endur eru börn og unglingar.
En hversu miklu máli skiptir
þetta í raun? Rannsakendum við
íþróttafræðideild Kansas-háskóla í
Bandaríkjunum lék forvitni á að vita
það og settu því upp rannsókn þar
sem tveir hópar krakka á aldrinum
10-14 ára voru látnir mæta á bolta-
æfingu en þjálfarar sköpuðu ólíkt
umhverfi fyrir hópana tvo í því skyni
að bera saman áhrif af því umhverfi
sem þjálfarar skapa.
Hjá öðrum hópnum fengu þjálf-
arar ströng fyrirmæli um að hvetja
hvern einstakling innan hópsins
jafnt, tala við alla og hvetja hvern og
einn iðkanda til að miða árangur
sinn á æfingunni við sjálfan sig en
ekki aðra.
Þjálfarar hins hópsins fengu hins
vegar fyrirmæli um að hvetja til
samkeppni innan hópsins, veita þeim
börnum sem þóttu leiknari með bolt-
ann meiri athygli en hinum og al-
mennt hvetja til samanburðar frekar
en samvinnu.
Meðan á æfingunum stóð hjá
hvorum hópi fyrir sig var magn
streituhormónsins kortísól í munn-
vatni mælt og það var einnig mælt
fyrir og eftir æfingu, fjórar mæl-
ingar alls hjá hverjum þátttak-
anda.
Niðurstöður rannsóknarinnar
sýndu að streita var mun meiri hjá
hópnum sem æfði í umhverfi sam-
keppni og samanburðar heldur en
hjá hópnum sem hafði hvetjandi
þjálfara sem studdi alla jafnt.
Framleiðsla á hormóninu jókst
verulega meðan á æfingunni stóð
hjá hópnum þar sem hvatt var til
samkeppni milli iðkenda. Hjá hinum
hópnum lækkuðu gildi streituhorm-
ónsins hins vegar meðan á æfingu
stóð.
Lögðu sig meira fram í
hvetjandi umhverfi
Annað sem rannsakendur skoðuðu
var líðan þátttakenda fyrir og eftir
æfinguna. Niðurstöður sýndu enn-
fremur að í umhverfi samkeppni
fundu þátttakendur frekar fyrir
skömm, voru kvíðnari og óöruggari
með sig. Á æfingunni þar sem þjálf-
arar voru hvetjandi var meiri gleði,
iðkendur fundu síður fyrir kvíða og
óöryggi og það sem meira er þá voru
þeir tilbúnir að leggja sig meira
fram.
Rannsakendurnir, Candace M.
Hogure, Mary D. Fry og Andrew C.
Fray, sem starfa við deild heilsu- og
þjálfunarvísinda við Kansas-
háskóla, telja niðurstöðurnar í takt
við aðrar rannsóknir sem gerðar
hafa verið á þessu sviði. „Nið-
urstöður benda til þess að leiðbein-
endur og þjálfarar sem skapa hvetj-
andi og verkefnamiðað umhverfi,
þar sem ungmenni horfa á eigin
framfarir og eiga í uppbyggjandi
samskiptum við jafnaldra sína, eru
mikilvægir fyrir þroska þeirra.
Þátttakendur í þessari rannsókn
sem upplifðu jákvætt umhverfi
reyndust fá meira út úr æfingunni,
þeim leið betur og upplifðu síður
streitu. Þeir sem voru í hópnum þar
sem áhersla var lögð á að gera betur
en næsti maður sýndu mun meiri
streituviðbrögð og upplifðu nei-
kvæðar tilfinningar.
Þessar niðurstöður gefa sterkar
vísbendingar um að hvetjandi um-
hverfi í íþróttum leikur lykilhlutverk
í að stuðla að vellíðan og draga úr
streitu hjá börnum og unglingum,“
segja þau í niðurlagi rannsókn-
arinnar.
Niðurstöður rannsóknar sem birt var í tímaritinu Psychology of Sport and Exercise benda til þess að þjálfarar sem
skapa hvetjandi umhverfi á æfingum barna og unglinga geti hjálpað til við að draga úr streitu.
Getty Images/Thinkstock
Samkeppni
eykur streitu
Umhverfi sem er hvetjandi og miðar að framför
einstaklings er líklegra til að stuðla að velgengni í
íþróttum en umhverfi þar sem samkeppni og
samanburður ríkir. Ný rannsókn sýnir að sam-
keppnisumhverfi ýtir undir framleiðslu á streitu-
hormóni hjá börnum á meðan hvetjandi æfinga-
umhverfi er líklegt til að minnka hana.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Sundkrogsgade 30
2150 Nordhavn, Kbh.
Tel +45 8818 1111
Søren Frichs Vej 34 D
8230 Åbyhøj, Aarhus
Tel +45 8818 1100 Sj
á
ná
na
r
á
br
uu
n-
ra
sm
us
se
n.
dk
Hittið sérfræðinga Bruun Rasmussen
Verið velkomin á Grand Hótel, Gullteig B, Sigtúni 38, Reykjavík
miðvikudaginn 29. mars kl. 15-19
Þar munu reynslumiklir sérfræðingar okkar gefa góð ráð og verðmeta
frímerki, gömul umslög og póstkort svo og mynt, minnispeninga
og gamla peningaseðla.
Matið er án endurgjalds og án skuldbindinga – með hugsanlega sölu
á uppboði í huga.
Dagana 28. – 30. mars er boðið uppá heimsóknir í heimahús,
eftir því sem tími leyfir.
Nánari upplýsingar veita Össur Kristinsson, 5554991 og 6984991
og Torben Ringtved 45 40324711 / e-mail tr@bruun-rasmussen.dk
Fáið mat á
verðmætin ykkar