Morgunblaðið - 28.04.2017, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017
✆ 897 2225
info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is
Við smíðum fyrir þig eldhúsbekki, borðstofuborð,
innréttingar, veggklæðningar, skápahurðir,
rennihurðir eða bara hvað sem þér
dettur í hug, eftir teikningu arkitekta
eða bara eftir hugmyndum þínum.
Ákveðið hefur verið að ganga til samninga við fyrirtækið Bergrisa
ehf. um gjaldtöku við Seljalandsfoss á Suðurlandi í samræmi við
ákvörðun fundar sem haldinn var með landeigendum og fulltrúum
sveitarstjórnar. Samningurinn gildir til eins árs, en lengi hefur
staðið til að taka upp gjaldtöku á nýjum bílastæðum við fossinn.
„Við erum ekki búin að skrifa undir, en það stendur hins vegar
til að gera samning við Bergrisa,“ segir Ísólfur Gylfi Pálmason,
sveitarstjóri Rangárþings eystra, en félagið hefur m.a. gert samn-
ing um uppsetningu stöðumæla á Þingvöllum í tengslum við gjald-
töku þar.
Aðspurður segir Ísólfur Gylfi ekki enn búið að taka ákvörðun
um fyrirhugað gjald við Seljalandsfoss. „Það er ekki alveg búið að
ákveða það, en hugmyndin er á bilinu 500 til 700 krónur,“ segir
hann og bætir við að tekjurnar fari í uppbyggingu á göngustígum,
bílastæðum, klósettaðstöðu og síðar þjónustuhúsi sem kann að
verða reist við bílastæðin. Stefnt er að því að hefja gjaldtöku um og
eftir miðjan næsta mánuð.
Ferðamenn þurfa þá að reiða af hendi 500 til 700 krónur
Morgunblaðið/Eggert
Íslandsferð Ferðamenn við Seljalandsfoss.
Búið að ákveða gjald-
töku við Seljalandsfoss
Alls um 70 manns tóku þátt í fyrsta
móti sumarsins í fjallahjólreiðum í
gær. Tekinn var Morgunblaðshring-
urinn, það er um nágrenni Rauða-
vatns í Reykjavík og Hádegismóa
þar sem höfuðstöðvar Morgunblaðs-
ins eru. Keppendur voru ræstir um
kl. 18 og á áttunda tímanum fóru
þeir að skila sér í hús og var þá boðið
upp á hressingu.
„Keppnisbrautin er alls sjö kíló-
metrar og liggur um fjölbreytt og
mishæðótt landslag við Rauðavatn.
Aðstæður eru krefjandi; farið er um
moldarflög, yfir trjárætur og undir-
lag sem er bæði grýtt og laust. Hér
er allt sem þarf að vera á góðu fjalla-
hjólasvæði,“ segir Bjarni Már Gylfa-
son formaður Hjólreiðafélags
Reykjavíkur, en það stóð að keppn-
inni í samstarfi við Morgunblaðið.
Fjallahjólreiðar njóta mikilla vin-
sælda og það er margt á döfinni. Í
Öskjuhlíðinni verður bikarmót í
þessari grein haldið á næstunni og
mörg mót verða í sumar. Þá fer flest
af besta fjallahjólafólki landsins á
Smáþjóðaleikana sem haldnir verða
í borgríkinu San Marínó eftir um
mánuð héðan í frá. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sprettur Morgunblaðshringurinn er fyrsta fjallahjólamótið í ár og keppendur iðuðu því í skinninu þegar þeir tóku á rás til að reyna sig í þrautunum.
Hjóluðu um hæðir í Hádegismóum
Fjallahjólafólk
tók Morgunblaðs-
hringinn í gær
Torfæra Brautin í Hádegismóum liggur um þýfða móa, malarslóða, skóglendi, beygjur og allskonar brekkur.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Aldrei hafa fleiri konur farið í fóstur-
eyðingu hér á landi en í fyrra. Þá var
gerð 1.021 fóstureyðing, sem eru
tæplega 100 fleiri aðgerðir en voru
gerðar árið á undan, og í fyrsta skipti
sem árlegur heildarfjöldi fóstureyð-
inga fer yfir þúsund. Þetta kemur
fram í nýjasta tölublaði Talnabrunns
Embættis landlæknis.
Á árinu 2016 voru framkvæmdar
13 fóstureyðingar miðað við hverjar
þúsund konur á frjósemisaldri, sem
telst vera frá 15 til 49 ára, en með-
altal áranna á undan er 12,4. Til sam-
anburðar voru framkvæmdar 13,3
fóstureyðingar á hverjar 1.000 konur
á frjósemisaldri á Norðurlöndunum
árið 2015.
Sé litið til fjölda fóstureyðinga
miðað við 1.000 lifandi fædd börn hér
á landi í fyrra varð líka fjölgun. Þá
voru framkvæmdar 253,1 fóstureyð-
ingar á hverja 1.000 lifandi fædda á
Íslandi sem er hærri tala en sést hef-
ur frá upphafi.
Í fyrsta skipti hjá flestum
Flestar þær konur sem fóru í fóst-
ureyðingu í fyrra voru búsettar á
Suðurnesjum og á höfuðborgar-
svæðinu, en fæstar á Vesturlandi og
Austurlandi. Sé litið til aldurshóp-
anna voru flestar fóstureyðingar
framkvæmdar hjá konum á aldrinum
20 til 24 ára en þær hafa lengst af
verið flestar meðal kvenna í þeim
aldurshópi. Fóstureyðingum í
yngsta aldurshópnum, 15 til 19 ára,
hefur fækkað allmikið undanfarna
tvo áratugi.
Meginhluti þeirra kvenna sem
gekkst undir fóstureyðingu árið 2016
hafði ekki gengist undir slíka aðgerð
áður eða tæplega 63%. Ríflega 25%
kvennanna áttu hins vegar að baki
eina fyrri fóstureyðingu og um 12%
tvær eða fleiri. Þá hafði meira en
helmingur kvennana áður fætt barn
eða börn, segir í Talnabrunni land-
læknis.
625 ófrjósemisaðgerðir
Í fyrra voru framkvæmdar 625
ófrjósemisaðgerðir hér á landi sem
er svipaður fjöldi og undanfarin tvö
ár. 508 þeirra voru gerðar á körlum
og 117 á konum. Ófrjósemisaðgerðir
hafa lengi verið algengastar hjá fólki
á aldrinum 35-44 ára. Á það bæði við
um karla og konur
Þúsund
í fóstur-
eyðingu
Aldrei fleiri fóstr-
um eytt en árið 2016