Freyr - 01.11.2005, Blaðsíða 8
Lífrænn olíubóndi
í Kentucky sannar
að stærðin skiptir
ekki öllu máli
Andy Sprague bóndi í Kentucky í Bandaríkjunum og aðaleigandi Union County Biodiesel.
(Ljósm. Ann Hinch).
Höfuðstöðvar Union County Biodiesel samanstanda af nokkrum geymslutönkum og
vinnsluskála, þar sem hitarinn og vinnslugeymarnir eru geymdir. Starfsemin er til húsa fyrir
aftan íbúðarhús Andys Sprague skammt fyrir utan smábæinn Sturgis í Kentucky.
(Ljósm. Ann Hinch).
Víða um heim velta bændur fyrir sér
þeim möguleikum sem felast í fram-
leiðslu á lífrænni dísilolíu eða „líf-
dísel". Eftirfarandi viðtal við
bandarískan bónda í Kentucky birt-
ist í októberhefti búnaðarblaðsins
Marketplace. Texta og myndir gerði
blaðamaðurinn Ann Hinch en Hilmar
Ramos þýddi.
Höfuðstöðvar Union County Biodiesel Co.
eru við sveitaveg nálægt ríkjamörkum Indi-
ana og lllinois en nafn þess gæti gefið
ranga mynd af umfangi starfseminnar.
Það er enginn stjórnarsalur, ekkert mal-
bikað bílastæðaflæmi eða stór tölvuver. I
raun er fátt annað hérna er miðlungsstór
vinnsluskáli og þrír tæplega 40 þúsund
Iftra tankar sem geyma mismikið af afurð-
inni hverju sinni. Eigandinn, Andy
Sprague, kæmi auðveldlega sjálfum sér og
nær öllum starfsmönnum sínum í Volks-
wagen-reynslubifreiðina sem stendur utan
við vinnsluskálann.
Nei, Union County Biodiesel - sem stað-
sett er á milli íbúðarhúss Sprague og soja-
baunaakurs hans, sem er rúmlega 1.600
hektarar - er heimilisiðnaður þar sem soja-
baunaolíu er breytt í lifræna dísilolíu. Allt
frá stofnun fyrirtækisins síðla árs 2004
hefur Sprague ætlað sér að sýna að þetta
væri besta leiðin fyrir bændur til að ná sem
mestri framleiðni og arði út úr búskap sín-
um.
„Við reynum að sýna þeim, sem hafa
áhuga á þessari tækni, að hægt er að beita
henni hvar sem er," segir hann til skýring-
ar. „Ef við getum gert þetta hér er hægt að
gera það hvar sem er."
Áhugasamir viðskiptavinir vona það.
Sprague segist að meðaltali fá eitt símtal á
dag þar sem hann er spurður um þetta litla
fyrirtæki sitt, sem afkastar rúmlega 50
þúsund lítrum á dag og um 350 þúsund
lítrum á viku. Viðvera á staðnum er allan
sólarhringinn alla vikuna en fyrir skömmu
var aðeins vakt sex daga vikunnar.
SAGAN
Árið 2003 var Sprague einn 184 bænda
sem landbúnaðarráðuneytið veitti vöruþró-
unarstyrk. Styrkinn hlaut hann til að gera
hagkvæmnikönnun á hugsanlegri starfsemi
á þessu sviði. Hann hóf framleiðslu í janúar
og þegar hann var farinn að afkasta rúmum
7.500 lítrum á dag áður en leið á löngu
segist hann hafa verið hæstánægður.
Um vorið skipti hann úr rafmagnshitara í
própanhitara og það reyndist bæði hag-
kvæmara og skilvirkara. Á einni nóttu
jukust afköstin úr tæpum 23 þúsund lítrum
á dag í rúma 45 þúsund lítra og voru kom-
in yfir 52 þúsund lítra á dag í júlí, þegar fyr-
irtækið dældi milljónasta galloninu af
hreinni, lífrænni dísilolíu, sem kölluð er B-
100 í bransanum.
Sprague selur megnið af B-100 olíunni til
nokkurra tuga bænda, endursöluaðila og
dreifingarfyrirtækja í 160 kílómetra radíus
FREYR 11 2005