Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.11.2005, Qupperneq 26

Freyr - 01.11.2005, Qupperneq 26
GARÐYRKJA Vaxtarstýring tómatplantna IEftir Magnús Ágústsson, Bændasamtökum íslands Til að hámarka arðsemi í tómatráekt- un er nauðsynlegt að halda frjósemi (generative) og grænvexti (vegetati- ve) í jafnvægi. Ef planta verður of frjósöm eða of gróskumikil munu aldinstærð og uppskera minnka. Það þarf þekkingu og reynslu til að stjórna plöntunni þannig að hvorug- ur þátturinn verði ráðandi. Þær að- gerðir sem beitt er til stýringar snú- ast að miklu leyti um að minnka eða auka rótarþrýsting og að auka eða minnka eftirspurn einstakra plöntu- hluta eftir sykrum með því að stjórna hitastigi þeirra. Þannig veld- ur hratt hitafall því að blöðin og topparnir kólna hratt en aldinin sem eru massameiri kólna hægar og þannig draga þau að sér sykrur á kostnað blaða og toppa. í byrjun ræktunar er lítil sem engin eftir- spurn frá aldinum og því hætt við að plönturnar verði gróskumiklar og því þarf að efla frjósemi þeirra af kappi. VAXTARSTJÓRNUN Sykrurnar sem myndast við Ijóstillífun eru hráefni í framleiðslu alls Kfræns efnis í plöntunni (aldin, rót, ný blöð o.s.frv.). í ræktun í gróðurhúsum er birtan sá þáttur sem oftast takmarkar sykrumyndunina. Sykrurnar sem myndast í blöðunum dreifast til aldina, róta og topps. Þegar plönturnar eru mjög hlaðnar (mörg aldin í örum vexti) krefjast þau mikils hluta sykranna og þar sem þau eru í forgangi verður lítið eftir fyrir rót og topp. Þegar sykrumyndun er lítil miðað við hleðslu eða hleðslan er mikil er hætt við stöðvun í vexti róta og topps (sykruskortur). Stýring vaxtar plöntunnar er fólgin í þvi að koma sem mestu af sykrun- um til þeirra plöntuhluta sem eiga að seljast án þess að það bitni á framtíðaruppskeru. Of lítið af sykrum til topps og róta getur leitt FREYR 11 2005 til þess að setningin bregðist og rótarkerfið verði lélegt, meðan að mikið af sykrum til topps og róta leiðir til framleiðslu óseljan- legra plöntuhluta. Hvort tveggja gefur minni uppskeru. ORKUSKORTUR Þegar of lítið framboð er af sykrum, bitnar það fyrst og fremst á rótarvexti, síðan þynn- ist toppurinn og við mikinn skort bregst setningin (aldinmyndun). Þegar rótarvöxtur- inn stöðvast verður upptaka næringarefn- anna kalsíum, magnesíum, járns og bórs erfiðari. Ræturnar verða viðkvæmari fyrir ofvökvun og breytingum á hita og leiðni. Afleiðingarnar geta orðið drukknaðar ræt- ur, sjúkdómar, stílrot og blaðskemmdir. Plantan er viðkvæmust frá blómgun á 5.-6. klasa að blómgun á 10. klasa. Þunnirtopp- ar leiða til þess að plantan endist skemur sem þýðir lélegri vöxt, minni uppskeru og minni gæði síðar á ræktunartímanum. Orkuskortur leiðir Itka til lausari blaðvaxtar sem getur leitt til blaðskemmda og sjúk- dóma. Þegar blöðin sviðna f toppinn minnkar það blaðflatarmálið sem aftur minnkar útgufun og kælingu og getur leitt til þess að setning bregðist. Orku- (sykru)skortur getur orðið það mikill að heilu klasarnir missa blómin. Samkeppni er um sykrurnar sem myndast við Ijóstillífun plantnanna; ef mest af þeim berst til græn- vaxtarins, s.s. blaða, topps og róta, verður plantan gróskumikil (vegetative) en þegar mikið berst til aldina og blóma verður hún frjósöm (generative). Plönturnar hafa innbyggða forgangsröð- un á það hvert sykrurnar fara: Aldinin fyrst, síðan toppurinn og síðast rótin. Þessu get- um við að vissu marki stýrt með stjórnun loftslags og öðrum aðgerðum. Ef við viljum efla frjósemi plantnanna þá getum við auk- ið eftirspurn aldina eftir sykrum eða með því að stuðla að aukinni útgufun eða minnkuðum rótarþrýstingi. HITASTIG Hitastigið er ráðandi hvað varðar vöxt og þroska plöntunnar. Því hærra innan vissra marka, því hraðar þroskast hún. Almennt má segja að góð birta og mikið C02 geri kröfur um hærra hitastig en léleg birta og lítið C02 . Algengast er að skipta sólar- hringnum í 5 tímabil: D1 sem er fyrsti hluti dagsins, D2 sem tekur við af D1, D3 ersíð- an síðasta tímabil dagsins, FN er fyrsti hluti næturinnar og SN, eða síðnótt, tekur við og nær til D1. Ef hitastigið á D1 er 0,5-1 °C lægra en hitastigið yfir SN styrkir það klasa- stilkana og gefur styttri blöð. Hitastigið yfir

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.