Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2005, Blaðsíða 9

Freyr - 01.11.2005, Blaðsíða 9
Lífdísil er hægt að nota á velflestar dísilvélar án verulegra breytinga. Orkan sem fæst úr lífdísilnum er sambærileg við hefðbundna dísiloliu en einnig er hægt að nota afurðina sem íblöndunarefni í bensín. Fyrirtæki Sprague framleiðir um 350 þúsund lítra á viku en kaupendurnir eru m.a. nokkrir tugir bænda, endursöluaðilar og dreifingarfyrirtæki. (Ljósm. National Biodiesel Board). út frá höfuðstöðvunum. Hann selur Kar- bowski Oil í Bay City í Michigan og Tri Citi- es Petroleum í Weber City í Virginíu eitt hlass á mánuði (olíudreifingarfyrirtækin senda sjálf bíla eftir olíunni). Dreifingarfyrirtækin fá einn dal í skatta- afslátt fyrir hvert gallon (3,78 lítrar) þegar þeir blanda B-100 við venjulega dísilolíu, oftast í hlutfallinu 20/80 (B-20), en þetta skattahagræði var nýlega framlengt á þing- inu til ársloka 2008. Sjálfur þynnir Sprague eigin framleiðslu með um fimm hundraðshlutum af jarðolíu, sem er algjört lágmark. Úr þvi verður svo- kölluð B-99 blanda sem Sprague selur áfram og fær aukinn skattaafslátt fyrir þessa tilteknu blöndu. Afganginn reynir hann að selja undir markaðsverði hefðbundinnar dísilolíu. Þannig geta kaupendur blandað og verð- lagt vöruna svo hún verði samkeppnishæf eftir að hafa fengið skattaafsláttinn. Svona heldur hann fyrirtækinu gangandi. GILDI Hugtakið tífræn dísilolía hefur síast nógu vel inn í þjóðarsál Bandaríkjanna til þess að margir landsmenn skilja að hún er hreinni en dísilolía sem eingöngu er unnin úr hráolíu. Áhrif þessa eldsneytis á vélar og útblástur eru í stöðugri rannsókn og skoðun en í skýrslu bandarísku umhverfisverndarstofn- unarinnar frá því í október 2002 kemur fram að lífræna dísilolían gefur frá sér færri mengandi efni - einkum kolvatnsefni, kol- mónoxíð og aðrar efnisagnir. Þessi þriggja ára gamla skýrsla er svo sem ekki mjög lofandi fyrir þá sem vilja draga úr losun nituroxíðs (NOx) eða auka sparneytni lífrænu dísilolíunnar en þó nokkurt vatn hefur runnið til sjávar síðan skýrslan var sam- in og nituroxiðslosunin hefur eitthvað dreg- ist saman og sparneytnin aukist síðan 2002. Allir bændur kunna að meta sparneytni á eldsneyti enda þurfa þeir að reka fjölmörg ökutæki og vinnuvélar í búskapnum. Tómatræktun og kryddframleiðsla eru ágætar aukabúgreinar en lífræna dísilolían gæti þó verið ábatasamari en hinar fjöl- mörgu tegundir heimatilbúinnar sósu sem framleiddar eru á ýmsum búum, að mati Sprague. Eins og Sprague hefur sagt snerta elds- neytismál alla - einkum núna þegar verð á hefðbundinni dísilolíu hefur aldrei verið hærra. „Þessa tækni er hægt að nýta á litlum búum í heimahéraði," segir hann til nánari skýringar. Sprague áætlar að minnst 95% rekstrar- kostnaðarins fari I að kaupa sojaolíuna (um 250 þúsund dalir á viku, sem jafngilda tæp- lega 16 milljónum íslenskra króna), og því verslar hann í heimabyggð, við Owensboro Grain í Kentucky. Þangað sendir hann tvo til þrjá bíla á hverjum degi, en fyrirtækið er í um 65 kílómetra fjarlægð frá olíuvinnslunni. Fjármálastjóri Owensboro Grain, Jeff Erb, segir að hvað fjarlægðina varði hefði Sprague allt eins getað stofnað til viðskipta við CBG I Mt. Vernon í Indiana. „Einhverra hluta vegna náðum við strax vel saman og við höfum útvegað honum olíu allar götur síðan," segir Erb. í samanburði við Union County Biodiesel er Owensboro Grain tröllaukið fyrirtæki, með 150 starfsmenn, stóra myllu, hreinsun- arstöð og fjórar kornlyftur. Erb segir fyrir- tækið framleiða um 700 þúsund lítra af sojaolíu á dag og Sprague kaupir minna en átta prósent dagsframleiðslunnar. Afgang- urinn er aðallega seldur sem matvæli. „Þetta er lítill hluti af framleiðslu okk- ar," segir hann um hlutinn sem Union Co- unty Biodiesel kaupir. „Samt eru þessi við- skipti okkur mikils virði. Sprague hagnast á þessu og borgar okkur fljótt og vel." Sprague ekur um á Volkswagen TDI sem gengur fyrir lífrænni dísilolíu. Sumir svipað- ir bílar geta gengið fyrir hreinni, lífrænni dísilolíu - B-100 - en flestir eru þó knúnir blöndu af lífrænum dísil og hefðbundnum dísil unnum úr hráolíu. (Ljósm. Ann Hinch). Freyr 11 2005

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.