Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2005, Blaðsíða 18

Freyr - 01.11.2005, Blaðsíða 18
NAUTGRIPIR Kynbótamat nautanna haustið 2005 IEftir Jón Viðar Jónmundsson, Baldur Helga Benjamínsson, Ágúst Sigurðsson og Þorvald Kristjánsson. Hér verður gerð grein fyrir kynbóta- mati nautanna samkvæmt þeim nið- urstöðum sem liggja fyrir eftir vinnslu þess haustið 2005. Þá voru af- urðaupplýsingar kúnna úr skýrslu- haldinu til loka septembermánaðar komnar í þessa vinnslu. Vegna ófyrir- séðra atvika reyndist ekki mögulegt að þessu sinni að vinna nýtt mat fyr- irfrumutölu þannig að kynbótamatið fyrir þann eiginleika er það sama og birtist á liðnu vori. Ræktunarhópur í nautgriparækt ákvað í fyrravetur að færa aðalvinnslu kynbótamatsins frá því í febrúarlok yfir í októberlok. Það er skýring þess að í ár eru aðal- vinnslur þess tvær. í vetur verður að- eins unnin uppfærsla á afurðahluta þess líkt og áður var gert í október- lok. Bent skal á að ný gögn gagnvart úrvinnslu fyrir suma þætti koma að- eins einu sinni á ári (útlitsmatið, mjaltaathugun). Að þessu sinni gera tvær breytingar á þessari úrvinnslu það að verkum að niður- stöðurnar í heild sinni breytast verulega. Því er eðlilegt að fjalla nokkuð um þessar tvær breytingar fyrst. Annars vegar er um að ræða breytt ræktunarmarkmið en hins veg- ar breytingu á viðmiðunargrunni einkunna. BREYTT RÆKTUNARMARKMIÐ Fagráð ( nautgriparækt samþykkti breytt ræktunarmarkmið í nautgriparækt í vor í samræmi við tillögu þar um frá ræktunar- hópnum. Með þeirri breytingu er fram hald- ið þeirri þróun, sem verið hefur ( þessum efnum á undanförnum árum, að draga frem- ur úr vægi afurðahlutans. Þannig var ákveð- ið að lækka hlut afurðamatsins úr 55% í 44%. Afurðamatið er byggt upp á sama hátt og áður. Markmiðið þar er að auka magn mjólkurpróteins með þeirri viðbótarkröfu að próteinhlutfall mjólkur haldist óbreytt. Þetta Þrasi 98052 er með 109 í kynbótaeinkunn. á að fást með því að gefa próteinmagninu 85% vægi en gefa siðan próteinhlutfallinu að auki 15% vægi. Gagnvart öðrum eigin- leikum sem eru með í ræktunarmarkmiðinu er gerð ákveðin einföldun með því að þessir sjö eiginleikar fá hver um sig 8% vægi. Þetta þýðir að dregið er úr vægi mjalta um eina prósenteiningu (til einföldunar), vægi frjó- semi, spena og skaps hækkar um helming en hinir eiginleikarnir, þ.e. júgur, frumutala og ending, halda óbreyttu vægi. Framangreindar breytingar koma þeim nautum, sem eru sterk gagnvart þessum eiginleikum, til tekna en draga að sjálfsögðu hin niður. Heildarmynd breytinganna er að gripir sem búa yfir alhliða kostum styrkja stöðu sfna en þeir, sem hafa verulega veik- leika f einhverjum eiginleikum, fá sfna refs- ingu í heildareinkunninni. Glanni 98026 er það naut sem mest styrkir hlut sinn frá fyrra mati. Afurðamat hans haekkar og dætur hans eru útmetnir kosta- gripir með tilliti til fjölmargra eiginleika. Breytt ræktunarmarkmið styrkir mynd hans en kynbótaeinkunn hans er 109. BREYTTUR VIÐMIÐUNARGRUNNUR Allar einkunnir eru birtar sem hlutfallstölur þar sem meðalgripurinn á að fá 100 í ein- kunn. Þeir sem lakari eru fá lægri einkunn en þeir sem hafa kosti til að bera í viðkom- andi eiginleika fá einkunn yfir 100. Skil- greiningin á meðalgripnum í BLUP- ein- kunnunum hefur verið sú að meðalgripur í einhverjum ákveðnum árgangi fyrir hvern eiginleika er skilgreindur sem þessi meðal- talsgripur sem fær 100 fyrir viðkomandi eiginleika. Þessum viðmiðunargrunni hefur 18 FREYR 11 2005

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.