Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2005, Síða 11

Freyr - 01.11.2005, Síða 11
Er framtíð í framleiðslu lífrænnar dísilolíu eða etanóls á (slandi? Ýmsir hafa velt því fyrir sér hvort það sé raunhæfur kostur að framleiða líf- ræna dísilolíu eða etanól á Islandi. Orðsnjallir menn hafa nefnt það „græna gullið" þegar átt hefur verið við orkugjafa sem eiga uppruna sinn að rekja til landbúnaðarins og hægt er að nota til að knýja vélknúin öku- tæki. Einkum hefur verið horft til framleiðslu etanóls, sem unnið er með gerjun á plöntuleifum, og svo til dísilolíu, sem unnin hefur verið úr jurtaolíu eða dýrafeiti. Aðferðin, sem bandaríski bóndinn í viðtalinu hér að framan notar, er að pressa olíu úr sojabaunum en til þess nýtir hann ákveðna tækni sem þróuð hefur verið. Hérlendis hafa menn einkum velt fyrir sér þeim kosti að framleiða svokallaðan lífdísil úr dýra- og jurta- fitu, sem fengin er úr úrgangi, t.d. sláturúrgangi. í Evrópu hefur úr- gangsjurtafita, t.d. eins og notuð er til steikingar á skyndibitastöðum, verið notuð til framleiðslu á lífdísil og hentað vel. Gerðar hafa verið tilraun- ir á vegum Iðntæknistofnunar í sam- vinnu við nokkur íslensk fyrirtæki og m.a. hafa nokkrir dísilbílar gengið fyrir lífdísilnum um nokkurn tíma, m.a. sendibíll hjá MS á Selfossi. LÍFMASSI NOTAÐUR VIÐ FRAMLEIÐSLU ETANÓLS Framleiðsla á etanóli hefur verið reynd hér- lendis úr svokölluðum lífmassa. Aðferðin byggir á því að nota gufu sem orkugjafa og hráefnið er úrgangspappír, lúpína, gras, kartöflugrös og jafnvel mysa. Framleiðslu- varan nýtist síðan sem 5-10% íblöndunar- efni í bensín og kemur í stað hættulegs efnis sem nefnist ETBE sem hefur verið bannað m.a. í Kaliforníu. Á vegum íslenska lífmassafélagsins hf. hefur verið unnið að stofnun tilraunaverk- smiðju um nokkurt skeið og hafa Flúðir ver- ið nefndar í því sambandi. Talið er að hægt sé að útvega lífmassa m.a. úr úrgangi sem til fellur í garðyrkju, úr kornræktinni og með ræktun lúpínu í stórum stíl. Til þess að framleiða 7 milljón lítra af etanóli þarf um 20 þúsund tonn af þurrum lífmassa en ís- lenskir vísindamenn telja að verksmiðja af þeirri stærðargráðu sé heppileg til þess að byrja með. Lesendum til glöggvunar hefur verið bent á að mögulegt sé að framleiða 50 þúsund tonn ár ári af lífmassa með ræktun lúpínu á Mýrdalssandi og söndun- um við Markarfljót. Áætlað söluverð á etan- óli er sambærilegt við bensín. Raunhæft er að selja lítrann á 45 kr. sem þýðir að 7 millj- ón lítra framleiðsla gefur tekjur upp á um 315 milljónir króna. Islenski markaðurinn er talinn þurfa þrisvar sinnum meira magn. Nokkrir (slenskir fjárfestar standa að (s- lenska lífmassafélaginu, m.a. Straumur og Nýsköpunarsjóður. HVAÐA PLÖNTUR HENTA HÉRLENDIS? Sú planta sem einkum hefur verið horft til hérlendis sem hráefnis, ef reynt væri að nýta jurtafitu til framleiðslu á lífdísel, er sumarrepja. Ekki hafa verið gerðar tilraunir með repjuna en leitt hefur verið að því lík- um að hún nái ekki viðunandi þroskastigi hér á landi og e.t.v. sé hún ekki eins olíurík og margar aðrar tegundir, t.d. maís eða soja. Með hækkandi hitastigi eru þó meiri líkur á að hægt sé að auka fjölbreytni í ræktunarflórunni sem e.t.v. gæfi möguleika á víðtækri framleiðslu. KOSTIR OG GALLAR VIÐ LÍFDÍSIL Helsti ávinningur þess að nota lífdísil er að um sjálfbært eldsneyti er að ræða, það eykur ekki losun gróðurhúsalofttegunda, það brotnar niður í náttúrunni og dregur úr útblástursmengun. Þá hefur verið bent á að lífdísillinn hefur betri smurningseiginleika en hefðbundin dísilolía. En Iffræn dísilolía er ekki gallalaus og á það hefur verið bent að hún hefur hærra seigjustig, getur myndað kristalla og stíflað síur í vélum, getur mynd- að hlaup við ákveðið hitastig og hætta er á svokölluðum koxútfellingum í vélum. Notkunareiginleikar Iffdísils eru miklir en vísindamenn fullyrða að óhætt sé að nota eldsneytið á dísilvélar án þess að gera á þeim breytingar eða endurstilla að nokkru leyti, hvort heldur sem olían er notuð hrein eða til blöndunar. Svo gæti farið að eftir- spurn aukist eftir etanóli sem íblöndunar- efnis í bensín og þá er aldrei að vita nema hagkvæmt reynist að framleiða það úr líf- massa. Það er því greinilegt að um spenn- andi viðfangsefni er að ræða og aldrei að vita nema framleiðsla lífrænnar dísilolíu eða etanóls á íslandi gæti haft jákvæð áhrif á umhverfið og pyngju bænda! /TB FREYR 11 2005 11

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.