Fréttablaðið - 21.12.2017, Side 16
2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r16 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð
Gerðu betri kaup hjá okkur! Hringdu í 511 2777
2017 Nissan Leaf Tekna+
2018 Kia Niro
2016 BMW 330e
Verð 3.450.000 kr.
Verð 4.100.000 kr.
Verð 3.565.000 kr.
Getur pantað allar gerðir af
Volvo bílum hjá okkur!
4-5 mánaða afhendingartími
2018 Forpöntun Volvo XC90
Ármúla 4-6, Reykjavík | Firðinum, Hafnarfirði
511 2777 | sala@betribilakaup.is
facebook.com/betribilakaup
Á staðnum
Verð 7.390.000 kr.
620.000 kr afsláttur út desember
NeyTeNdUr „Ég reikna með að byrja
að selja þau um leið og aðstæður
leyfa, kannski í apríl eða maí,“ segir
Þórarinn Ævarsson, framkvæmda-
stjóri IKEA. Verslunin ætlar í vor að
hefja sölu á rafhjólum á verði sem
ekki á sér hliðstæðu á Íslandi. Þór-
arinn stefnir á að hjólið muni kosta
minna en hundrað þúsund krónur.
Nýtt rafhjól í íslenskum versl-
unum kostar oftast á bilinu 350-400
þúsund krónur en einnig er hægt að
fá mun dýrari hjól. IKEA-hjólið mun
þannig kosta um það bil fjórðung af
verði dæmigerðs rafhjóls.
Hjólið, sem er fjallahjól, er búið
313 vattstunda rafhlöðu, 21 gírs
Shimano Revoshift gírskiptingu,
29 tommu dekkjum, dempurum að
framan, diskabremsum og vegur um
28 kíló með rafhlöðu. Þá er hjólið
samanbrjótanlegt, svo það passar
auðveldlega í farangursrými á venju-
legum fólksbíl.
Blaðamaður fékk að reynsluaka
hjólinu hjá IKEA en hann býr að
þeim samanburði að hjóla daglega
til og frá vinnu á nýlegu Cube-raf-
hjóli. Í samanburði er IKEA-hjólið
nokkuð gott.
Blaðamaður hjólaði frá IKEA, í
gegn um bílastæðin og upp brattan
malarstíg sunnan við Costco. Hann
hjólaði fram hjá Náttúrufræði-
stofnun og upp í hverfið fyrir ofan,
áður en hann hjólaði aftur að IKEA.
Dekkin eru nokkuð breið og henta
vel til hjólreiða á grófu undirlagi.
Dempararnir að framan vinna í
sömu átt hvað það varðar.
Mótorinn, sem heita má hljóð-
laus, byrjar að hjálpa um leið og
hjólreiðamaðurinn byrjar að hjóla.
Ef hjólreiðamaðurinn tekur pásu
gerir mótorinn það líka. Hægt er að
velja um sex mismunandi stillingar
en þær stjórna því hversu mikla
hjálp hjólreiðamaðurinn fær. Eins
og á öðrum rafhjólum slær mótor-
inn út þegar 25 kílómetra hraða á
klukkustund er náð. Mótorinn er
ekki alveg eins fljótur að svara og
á Cube-rafhjólinu. Á hinn bóginn
hjálpar hann svolitla stund, í eina
til tvær sekúndur, eftir að hjólreiða-
maðurinn hættir að hjóla.
Erfitt er að leggja mat á kraftinn í
hjólinu á þessum stutta hjólreiða-
túr en í stuttu máli má segja að
krafturinn sé heldur minni en á
Cube-hjólinu. Afköstin eru upp-
gefin 250 vött. Krafturinn kemur þó
væntanlega þeim hjólreiðamanni
sem prófar rafhjól í fyrsta sinn á
óvart. Hjólreiðamaður í engu formi
getur auðveldlega haldið 23 til 25
kílómetra hraða á sæmilega sléttu
undirlagi. Brekkur verða leikur
einn, ef miðlungs hár gír er valinn.
Blaðamaður, sem er í skrifstofu-
formi, fann ekkert fyrir því að hjóla
upp í hverfið fyrir aftan Costco,
þótt um nokkra hækkun sé að
ræða. Ef þyngra varð að hjóla var
auðvelt að skipta í léttari gír, til að
spara orku hjólreiðamannsins.
Í bæklingi sem fylgir hjólinu, þar
sem lesa má um fínni blæbrigði
eigin leika þess, kemur fram að á
jafnsléttu, með mikilli hjálp raf-
magns og litlu framlagi hjólreiða-
manns dregur hjólið um 33 kíló-
metra. Tvöfalda þá vegalengd kemst
hjólreiðamaður á einni hleðslu ef
hann stillir á miðlungsmikla hjálp
mótors og leggur mikið af mörkum
sjálfur. Fleiri breytur hafa áhrif á
drægið en þar má nefna brekkur í
landslagi, þyngd hjólreiðamanns
og færi. Blaðamaður eyddi örfáum
prósentustigum af hleðslunni í þær
tíu mínútur sem hann hjólaði.
Þórarinn segir að prófanir á hjól-
inu hafi komið vel út, en ýmist er
hægt að kaupa hjól fyrir karla eða
konur. „IKEA er búið að vera með
þessu hjól í prufusölu á ákveðnum
mörkuðum og hefur reynslan verið
afar góð. Það hafa ekki verið að
koma upp nein vandamál,“ segir
hann. Hann bindur vonir við að
„mokselja“ þessi hjól.
Á hjólinu er 313 vattstunda raf-
hlaða, sem taka má af með einu
handtaki. Um sex stundir tekur
að fullhlaða rafhlöðuna. Á flestum
nýjum rafhjólum sem til sölu eru
í dag er 400 eða 500 vattstunda
rafhlaða. Drægið er því sem því
nemur minna, en hleðslan ætti þó
auðveldlega að duga flestum til að
komast til og frá vinnu, til dæmis.
Rafvæðing í samgöngum er
Þórarni hugleikin en hvergi eru
fleiri hleðslustæði fyrir rafbíla
en við IKEA. Þau eru 60 talsins,
þar af tíu fyrir starfsmenn. Hann
hyggst bjóða starfsfólki sínu lán til
að kaupa rafhjól, jafnvel helming
kaupverðsins til nokkurra mánaða,
sem samgöngustyrkur verður síðan
nýttur til að greiða niður.
Þórarinn segist stefna á að
útsöluverðið verði á bilinu 85 til
100 þúsund krónur. Fyrsta pöntun
hafi hljóðað upp á 280 eintök.
baldurg@frettabladid.is
IKEA ætlar að selja
fjórfalt ódýrari rafhjól
Þórarinn Ævarsson í IKEA ætlar að koma með látum inn á íslenskan rafhjóla-
markað. Hann ætlar að „mokselja“ rafhjól á undir hundrað þúsund krónur í vor
og hefur lagt inn pöntun fyrir hátt í 300 eintök. Fréttablaðið prófaði hjólið.
Þórarinn Ævarsson segist ætla að mokselja rafhjól, ekki síst til starfsfólks IKEA. FréttAblAðIð/ErnIr
Svona lítur rafhjólið út samanbrotið. Það ætti að passa í flesta bíla.
Hjólreiðamaður í engu
formi getur auðveldlega
haldið 23 til 25 kílómetra
hraða á sæmilega sléttu
undirlagi.
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
3
-5
7
3
4
1
E
9
3
-5
5
F
8
1
E
9
3
-5
4
B
C
1
E
9
3
-5
3
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K