Fréttablaðið - 21.12.2017, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 21.12.2017, Blaðsíða 30
Hann fékk bók en hún fékk nál og tvinna segir í texta lagsins „Hátíð í bæ“ eftir Ólaf Gauk í samræmi við tíðarandann þegar textinn var saminn. Í dag myndum við alveg eins syngja „hún fékk bók en hann fékk nál og tvinna“ enda stelpur og konur ekki minna áhuga­ samar um bóklestur en drengir, nema síður sé, og piltarnir margir hverjir lagtækir með nál og tvinna. Lestur er undirstaða allrar mennt­ unar og það fer vel á því, í miðju jólabókaflóðinu, að minna foreldra og forráðamenn og ömmur og afa á að gleyma ekki að lesa fyrir og með börnunum um jólin. Lesturinn þarf ekki að vera á sama formi og á skólatíma, það er tilvalið að skiptast á að lesa upphátt úr skemmtilegum bókum, jafnvel með leikrænum tilburðum. Muna bara að velja bækur sem hæfa aldri og áhugasviði þess sem les. Ungl­ ingarnir geta til dæmis lesið fyrir ömmu og afa og öfugt, litlu börnin fyrir eldri systkini og mamma og pabbi hvort fyrir annað því við full­ orðna fólkið erum jú fyrirmyndir barnanna þegar kemur að lestri. Það má stofna fjölskyldubóka­ klúbb og láta alla segja stuttlega frá einni bók eða allir lesa sömu bókina og ræða hana svo sín á milli. Lestrar­ keppni fjölskyldunnar getur líka verið góð hugmynd eða að brydda upp á einhverju öðru skemmtilegu sem tengir kynslóðir saman í lestri. Hvernig væri svo að lesa upp­ skriftir að uppáhalds jólasmákök­ unum áður en þeim er stungið í ofn­ inn og textana í öllum skemmtilegu jólalögunum áður en farið er á jóla­ ball. Svo má lesa á götuskilti þegar verið er að keyra út kort og pakka, æfa sig að skrifa bréf til Sveinka og auðvitað lesa á jólapakkana. Það er um að gera að nota hug­ myndaflugið til að finna skemmti­ legar leiðir til að örva börn á öllum aldri til lesturs. Á vef Heimilis og skóla, www. heimiliogskoli.is, má finna jóla­ lestrarbingó sem er skemmtilegt fyrir allan aldur, þar má einnig finna Læsissáttmála Heimilis og skóla og góð ráð til foreldra varðandi stuðning við lestur. Á vef Mennta­ málastofnunar, www.mms.is, má finna áhugaverðan leik, Jólasveina­ lestur, sem er samvinnuverkefni með Félagi fagfólks á skólasöfnum og KrakkaRÚV. Eigum saman notaleg lestrarjól með fjölskyldunni. Lestrarhestar stórir og smáir Bryndís Jónsdóttir verkefnastjóri hjá Heimili og skóla Íslendingar elska gjaldmiðil þjóð­arinnar, íslenska krónu. Og sú mikla ást, sem meir og meir ber með sér einkenni þráhyggju, veldur efnahag okkar allra sem í landinu okkar búa miklu tjóni. Gott dæmi um það eru vextir á Íslandi sem eru miklu hærri en bjóðast í löndunum í kringum okkur. Margir stjórn­ málamenn vilja ríghalda í íslenskan gjaldmiðil. Þeir vita sem er að mis­ tök þeirra við fjármálastjórn ríkisins má alltaf leiðrétta með því að lofa gengi krónunnar að rúlla. Nú er Salek nýtt töfraorð yfir samningakerfi sem á að leiða til stöðugleika í landinu með hóflegum launahækkunum. Hingað til hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að þetta fyrirkomulag muni lukkast eins og menn vonast til. Til þess að Salek gangi upp þarf að ríkja traust á milli aðila og einnig þurfa menn að bera talsvert traust til þess gjaldmiðils sem notaður er við samningagerðina. Eftir margra áratuga bitra reynslu treysta fáir, þrátt fyrir háleitar hugástir, íslensku krónunni og því fer sem fer. Aðal­ atriðið er því að vera alltaf á undan öllum hinum í höfrungahlaupi kjarasamninga. Þannig gengur þetta koll af kolli og almenningi blæðir þegar gengi krónunnar að lokum fellur. Nú er nýtt höfrungahlaup að hefj­ ast og eru flugvirkjar fyrstir að taka sér stöðu í rásmarkinu. Aðrir undir­ búa þátttöku sína. Bráðum mun hátt láta í Hruna. Ástkæra ylhýra króna. Eitrað ástarsamband Ingimundur Gíslason augnlæknir Hvor sagan er trúverðugri, sú sanna eða ósanna?Bjössi í World Class réðst í dýrar endurbætur á líkamsræktar­ stöð sinni í Laugum en sendi svo reikninginn á alla Reykvíkinga hvort sem þeir voru kúnnar eða ekki. Bjössi hafði búið svo um hnút­ ana að enginn hægðarleikur var að komast hjá greiðslum. Borgar­ búar mótmæltu hástöfum. Bjössi reyndi að róa mannskapinn með innblásinni ræðu um að líkams­ rækt hefði mikið forvarnargildi og létti þannig á heilbrigðiskerfinu til hagsbóta fyrir samfélagið. Bjössi vitnaði meira að segja í rannsóknir lýðheilsufræðinga sem sýndu að stundi menn líkamsrækt, bæti það heilsuna svo um munar og lífslíkur aukast. En borgarbúar létu ekki segjast og þar kom að Bjössi aftur­ kallaði rukkunina. Þrátt fyrir háleit sjónarmið Bjössa um samfélagsleg gildi dugði það ekki til. Fólk á ekki að þurfa að borga fyrir líkamsrækt sem það stundar ekki sjálft. Dagur Eggerts réðst í dýrar endur­ bætur á Sundhöllinni en sendi svo reikninginn á alla borgarbúa hvort sem þeir voru kúnnar eða ekki. Engin leið var að komast hjá greiðslum. Lítið fór fyrir mótbárum enda flestir með djúpan skilning á hinu mikla forvarnargildi sem sund hefur. Lýðheilsufræðingarnir hafa jú margsinnis ályktað um heilsu­ samlegt gildi sundiðkunar. Því var endurbótum á Sundhöllinni rækilega fagnað um alla borg með tilheyrandi lofsöng fjölmiðla. Og dirfðist einhver að mótmæla fékk sá hinn sami að heyra að enginn neyddi hann til að fara í sund; hann gæti bara farið í World Class! Þess ber svo að geta að Bjössi og Dagur reka fleiri líkamsræktar­ og sundstaði en World Class í Laugum og Sundhöll Reykjavíkur. Í raun reka þeir álíka marga staði þvers og kruss um borgina. Þó er einn munur á. Bjössi rukkar bara þá sem sjálfviljugir kaupa aðgang; Dagur Eggerts rukkar hins vegar alla óháð vilja eða áhuga. Já, það er ólíkt við­ skiptasiðferðið hjá þeim félögum, Bjössa og Degi. Er sund hollara en líkamsrækt? Guðmundur Edgarsson kennari Það má stofna fjölskyldu- bókaklúbb og láta alla segja stuttlega frá einni bók eða allir lesa sömu bókina og ræða hana svo sín á milli. Eftir margra áratuga bitra reynslu treysta fáir, þrátt fyrir háleitar hugástir, íslensku krónunni og því fer sem fer. Vatnsheldir gæðaskór Skornirthinir.iS Verð 16.995 Stærðir 36-47 Frá Lytos með innbyggðum broddum í sóla. Vitamix TNC er stórkostlegur. Mylur alla ávexti, grænmeti, klaka og nánast hvað sem er. Býr til heita súpu og ís. Til í þremur litum, svörtum, hvítum og rauðum KKælitækni ehf. Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is Besti vinurinn í eldhúsinu Jólatilboðsverð kr. 79.527,- Þjónustumiðstöð tónlistarfólks 2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r30 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð 2 1 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 9 6 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 9 3 -7 4 D 4 1 E 9 3 -7 3 9 8 1 E 9 3 -7 2 5 C 1 E 9 3 -7 1 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.