Fréttablaðið - 21.12.2017, Síða 31

Fréttablaðið - 21.12.2017, Síða 31
Nokkur orð alþingismönnum til umþenkingar.Athuganir stjórnmála­ fræðinga hafa sýnt að 70% borgar­ anna í lýðræðisríkjum hafa svo til engin áhrif á ákvarðanatöku stjórn­ valda, ákvarðanir sem þó skipta meginmáli fyrir allan almenning. Auðvitað er hér um að ræða hina tekjulægri. Vera má að þetta eigi ekki með öllu við á Íslandi eftir hrun, þar sem almenningur hefur lært að láta vel til sín heyra – milli kosninga. Óumdeilt er að hærri tekjur og eignir leiða til meiri áhrifa, jafnvel yfirráða, meira er tekið tillit til skoð­ ana hinna efnameiri og þeir í efsta 0,1 prósentinu ráða nokkurn veginn því sem þeir vilja ráða, þar með talið hve miklu þeir sjálfir skila til sam­ félagsins af auði sínum. Fyrir næstsíðustu kosningar áttu sér stað stórfelldustu atkvæðakaup í Íslandssögunni. Millistéttinni, eigna­ mönnum sem vissulega höfðu orðið fyrir búsifjum í hruninu, var heitið bótum af almannafé. Niðurstaðan varð yfir 70 milljarða fjárframlög til stéttarinnar. Þótt Íslendingar eigi að heita stéttlaus þjóð er það samt staðreynd að eignafólki var bættur skaði sem það hafði orðið fyrir – og bar öðrum fremur ábyrgð á – þegar hinum snauðari sem gjarna skulduðu yfirdráttarskuldir í bönk­ unum, var á engan hátt umbunað. Almannafé ætti nú samt að vera það – almannafé. En greinilega er ekki sama hver úthlutar. Sjötíu milljarða aðgerðin rauf að mínu viti þá samfélagssátt sem þessari þjóð er nauðsynleg – eins og öllum þjóðum hvar sem er í ver­ öldinni. Aðgerðin sýndi með afgerandi hætti að þeim sem valist hafa til valda með þjóðinni er skítsama þótt almenningur upplifi að í raun séu tvær þjóðir í landinu, annars vegar þeir sem eiga og mega, og hins vegar þeir sem mega og eiga að eta það sem úti frýs. Samfélagssáttmáli er mikilvægari en svo að stjórnvöld megi komast upp með að vinna vísvitandi að niðurrifi hans. Sérgæskulýður Það nýjasta af þeim toga eru ákvarð­ anir um laun alþingismanna, ráð­ herra og ýmissa embættismanna þar sem laun voru hækkuð um allt að 45% með einu pennastriki kjara­ ráðs. Ekki var talin nein þörf á að birta rökstuðning fyrir ákvörðun­ inni og þingmönnum jafnvel sagt að þeim komi ekkert við hvaða launum þeim sé úthlutað. Við sauðsvartir kjósendur héldum hins vegar að við hefðum kosið þingmenn sem síðan stýrðu fjárveitingavaldinu í okkar umboði. Elíta (elite á ensku) er hugtak yfir úrvalshóp, heldra fólk í samfélög­ um, sem gjarna er betur launað og nýtur virðingar og valda. Mér er nær að þýða orðið með sérgæskulýður, og byggi það á hvernig elítan starfar oftar en ekki. Með órökstuddri 45% launa­ hækkun þingmanna – á kjördegi af öllum dögum – var öllum þing­ mönnum, nýgræðingum jafnt sem rótgrónum, skyndilega lyft upp í elítu nýfrjálshyggjunnar sem mesta ábyrgð ber á fjármálahruninu. Þeir voru allir klipptir og skornir, ekki niður við trog, nei, öðru nær, heldur sviptir sínum hugsjónum, hafi þær annars verið að vefjast eitthvað fyrir þeim. Þeir eiga svo bara eftir að kvitta fyrir með stuðningi við óbreytt ástand sem elítunni er að skapi – stöðugleika hinna ríku. Þessi dýra hjörð (fyrir virðingar sakir ritað hér í tveimur orðum!) er svo kjarninn í stjórn landsins sem við verðum að treysta á, líka sá þriðjungur þjóðarinnar sem er eignalaus, já, líka ef við skoðum 70 prósentin sem eru áhrifalaus á botn­ inum. Þetta er veruleikinn sem m. a. aldraðir og öryrkjar flestir búa við. En það kemur elítunni ekkert við, hún er jú skipuð eintómum ofur­ mennum! Um sama leyti og þingmanna­ hjörðin hækkaði um sín litlu 45% voru ellilaun undirritaðs hækkuð um heilar 13 þúsund krónur, úr 185 í 198 þúsundir, hækkun um 7%. Við svo rausnarlega hækkun fer maður hjá sér og hryggist yfir að vera slíkur baggi á þjóðinni. En að öllu gamni slepptu: Virðing Alþingis mun aldrei hjarna við ef 45 prósentunum verður ekki hrundið og þingmenn deila nokk­ urn veginn kjörum með – allri – þjóðinni. Elíta skal það vera! Sigurjón Þorbergsson ellilífeyrisþegi og fyrrverandi formaður Leigjenda­ samtakanna Veislumatur FRIÐRIK V Framleiðandi Norðlenska Húsavík, s 460-8800 ISA031EFTA3199 kr.kg Lambalæri með sveppa- og púrtvíns fyllingu eða camembert- og döðlu fyllingu Aðeins í Krónunni! Jól2017 Jólabæklingur Smith & Norland er kominn út. Glæsilegar vörur á sérstöku jólaverði. Sjá nánar á sminor.is. Afgreiðslutímar fyrir jólin: Fimmtud. 21. des.: kl. 8.30 - 18. Föstud. 22. des.: kl. 8.30 - 18. Laugard. 23. des.: kl. 11 - 16. Sunnud. 24. des.: Lokað. BOSCH Gufustraujárn TDA 30EASY Öflugt, 2400 W. Góður sóli. Gufuskot: 180 g/mín. Slekkur sjálfkrafa á sér þegar handfangi er sleppt. Fullt verð: 15.900 kr. Jólaverð: 11.900 kr. Stadler Form Rakatæki Eva Öflugt, hljóðlátt og stílhreint. Utanáliggjandi rakaskynjari sem virkar líka sem fjarstýring. Vatnstankur tekur 6,3 lítra. Hægt að velja kalda eða heita gufu. Fullt verð: 23.900 kr. Jólaverð: 18.900 kr. SIEMENS Uppþvottavélar SN 457W01IS, iQ500 SN 457S01IS, iQ500 13 manna. Sjö kerfi. Þrjú sérkerfi, þar á meðal tímastytting. Hljóð: 44 dB. „aquaStop“-flæðivörn. Fullt verð: 119.900 kr. Jólaverð: 89.900 kr. Orkuflokkur BOSCH Þvottavél WAN 2828SSN, Serie 4 Vindur upp í 1400 sn./mín. Kolalaus, hljóðlátur og sparneytinn mótor með 10 ára ábyrgð. Mjög stutt kerfi (15 mín.). Fullt verð: 109.900 kr. Jólaverð: 87.900 kr. A kg 8 SIEMENS Espressó-kaffivél TE 607203RW Glæsileg vél sem bruggar og útbýr ýmsa kaffidrykki. Þrýstingur: 19 bör. Kaffikvörn úr keramík. Flóar mjólk sjálfvirkt. Fullt verð: 169.900 kr. Jólaverð: 127.900 kr. BOSCH Ryksuga, Free'e BSGL 5400 Orkuflokkur A. Útblástur A. Parkett og flísar, flokkur A. Teppi, flokkur B. Hljóð: 74 dB. ULPA-sía. Vinnuradíus: 15 metrar. Fullt verð: 44.900 kr. Jólaverð: 33.900 kr. S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 31F i M M T u D A G u R 2 1 . D e S e M B e R 2 0 1 7 2 1 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 9 6 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 9 3 -6 6 0 4 1 E 9 3 -6 4 C 8 1 E 9 3 -6 3 8 C 1 E 9 3 -6 2 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.