Fréttablaðið - 21.12.2017, Side 40
Fótbolti Bryndís Lára Hrafnkels-
dóttir, markvörður Íslandsmeistara
Þórs/KA, greindi frá því á Twitter
í vikunni að takkaskórnir væru
komnir ofan í skúffu og hún hefði
ákveðið að snúa sér að frjálsum
íþróttum. Hér var ekki á ferðinni
snemmbúið aprílgabb eða einhvers
konar vinnustaðahrekkur eins og
blaðamaður Fréttablaðið komst að
raun um þegar hann hafði samband
við Bryndísi Láru.
„Það er ekkert jólasprell í þessu,“
sagði Bryndís Lára hlæjandi. En af
hverju tók hún þessa ákvörðun, að
skipta um íþrótt?
Réttur tímapunktur
„Satt að segja hef ég pælt í þessu í
smá tíma og fannst tímapunktur-
inn núna réttur til að taka mér smá
pásu. Fótboltaskórnir eru komnir í
skúffuna en ekki á hilluna. Þetta er
tímabundið. Ég ætla að taka mér
smá pásu og kíkja aftur á frjálsar
íþróttir.“
Bryndís Lára æfði frjálsar íþróttir
á sínum yngri árum og grunnurinn
er því til staðar. Hennar sterkasta
grein var spjótkast og hún ætlar að
einbeita sér að því á nýjan leik.
„Ég var í spjótkasti og ætla að láta
reyna á það aftur. Þetta er búið að
blunda í mér í tvö ár. Ég var líka í
kúluvarpi og stangarstökki en aðal-
lega í spjótkasti,“ sagði Bryndís Lára
sem æfði með Dímon á Hvolsvelli
og keppti fyrir HSK. Hún ætlar að
finna sér lið til að æfa með í janúar
og taka spjótkastið föstum tökum.
„Ég myndi ekki nenna að dúlla mér
í þessu. Ég ætla að keyra á fullu á
þetta.“
Donni ekkert kátur
Bryndís Lára segir að Halldór Jón
Sigurðsson, þjálfari Þórs/KA, hafi
ekki verið hoppandi glaður þegar
hún tilkynnti honum ákvörðun
sína.
„Donni var ekkert kátur með mig
en fannst þetta besta lausnin, að ég
myndi taka pásu í staðinn fyrir að
fara frá þeim. Það skilja þetta allir.
Aldurinn er ekkert að vinna með
manni, þannig að það var núna eða
aldrei,“ segir hin 26 ára gamla Bryn-
dís Lára.
Óhætt er að segja að Bryndís Lára
hætti, þótt það sé bara tímabundið,
á toppnum. Hún gekk í raðir Þórs/
KA frá ÍBV fyrir síðasta tímabil og
átti glimrandi gott sumar í marki
Akureyrarliðsins. Bryndís Lára lék
alla 18 leiki Þórs/KA í Pepsi-deild-
inni, fékk aðeins 15 mörk á sig, hélt
hreinu í helmingi leikjanna og átti
stóran þátt í að liðið varð Íslands-
meistari í annað sinn. Bryndís Lára
er á því að síðasta tímabil hafi verið
hennar besta á ferlinum.
Færri mistök en áður
„Ég var mjög ánægð með frammi-
stöðuna. Ég gerði færri mistök en ég
hef gert og var mjög sátt við það,“
sagði Bryndís Lára sem tók svo
sannarlega rétta ákvörðun þegar
hún færði sig um set frá ÍBV til Þórs/
KA. „Ég er alltaf tilbúin að prófa
eitthvað nýtt og sé alls ekki eftir
því að hafa farið norður og kynnst
umhverfinu þar.“
Það afrek Þórs/KA að verða
Íslandsmeistari var mikið, sérstak-
lega í ljósi þess að um veturinn var
tvísýnt hvort samstarfi Þórs og KA
yrði haldið áfram.
„Það var mjög gott að ná að sýna
samfélaginu fyrir norðan að það
var vitleysa að slíta þessu. Miðað
við fjöldann sem mætti á leiki hjá
okkur held ég að flestir hafi verið
sammála um það,“ segir hún.
Bryndís Lára hlaut ekki náð fyrir
augum Freys Alexanderssonar
þegar hann valdi íslenska lands-
liðshópinn sem fór á EM í Hol-
landi. Hún var ekki sátt og sagði að
valið hefði með eitthvað allt annað
en frammistöðu hennar að gera.
Aðspurð vill Bryndís Lára lítið tjá
sig um landsliðsvalið.
Óþarfi að gera mál úr þessu
„Það hefur ekkert upp á sig. Ég lét
óánægju mína í ljós og það er eðli-
legt fyrir einhvern sem er með
mikið keppnisskap. Ég held að það
sé óþarfi að gera eitthvað mál úr
þessu. Ég er að horfa í aðrar áttir
núna,“ segir Bryndís Lára og bætir
við að landsliðsvalið hafi ekki haft
nein áhrif á ákvörðun hennar um
að setja takkaskóna ofan í skúffu.
Hún neitar því þó ekki að það hefði
toppað frábært sumar að vera valin
í landsliðið.
„Auðvitað hefði ég verið mjög
kát með það. En svo var ekki.
Núna eru það bara frjálsar og
sjáum hvernig það fer,“ segir
Bryndís Lára að lokum.
ingvithor@365.is
Úr marki meistaranna
yfir í spjótkastið
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir hefur sett takkaskóna ofan í skúffu og ætlar að
snúa sér að spjótkasti sem hún æfði á yngri árum. Íslandsmeistarinn segir að
tímapunkturinn sé réttur og ákvörðunin hafi ekkert með landsliðsvalið að gera.
Markvörðurinn Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir hefur Íslandsmeistarabikarinn hátt á loft. FRéttaBLaðið/ÞÓRiR tRyggvason
Ég var í spjótkasti og
ætla að láta reyna á
það aftur. Þetta er búið að
blunda í mér í tvö ár.
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Amadeus borðstofuhúsgögn
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Komið og skoðið úrvalið
Finndu okkur
á facebook
Flísabúðin kynnir hágæða
Ítalska HELIOSA rafmagnshitara
HELIOSA hitarar henta
bæði innan- og utandyra.
Hitna strax, vindur hefur
ekki áhrif, vatnsheldir og
menga ekki.
Margar gerðir til á lager.
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Allur borðbúnaður
fyrir veitingahús
gsimport.is
892 6975
FYRIR FLESTAR
GERÐIR BÍLA...
GORMAR
HÖGGDEYFAR
VANRÆKTU EKKI VIÐHALDIÐ!
STÁL OG STANSAR | SÍMI: 517-5000 | VAGNHÖFÐI 7 | STALOGSTANSAR.IS
2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F i m m t U d A G U r40 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
3
-A
6
3
4
1
E
9
3
-A
4
F
8
1
E
9
3
-A
3
B
C
1
E
9
3
-A
2
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K