Fréttablaðið - 21.12.2017, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 21.12.2017, Blaðsíða 40
Fótbolti Bryndís Lára Hrafnkels- dóttir, markvörður Íslandsmeistara Þórs/KA, greindi frá því á Twitter í vikunni að takkaskórnir væru komnir ofan í skúffu og hún hefði ákveðið að snúa sér að frjálsum íþróttum. Hér var ekki á ferðinni snemmbúið aprílgabb eða einhvers konar vinnustaðahrekkur eins og blaðamaður Fréttablaðið komst að raun um þegar hann hafði samband við Bryndísi Láru. „Það er ekkert jólasprell í þessu,“ sagði Bryndís Lára hlæjandi. En af hverju tók hún þessa ákvörðun, að skipta um íþrótt? Réttur tímapunktur „Satt að segja hef ég pælt í þessu í smá tíma og fannst tímapunktur- inn núna réttur til að taka mér smá pásu. Fótboltaskórnir eru komnir í skúffuna en ekki á hilluna. Þetta er tímabundið. Ég ætla að taka mér smá pásu og kíkja aftur á frjálsar íþróttir.“ Bryndís Lára æfði frjálsar íþróttir á sínum yngri árum og grunnurinn er því til staðar. Hennar sterkasta grein var spjótkast og hún ætlar að einbeita sér að því á nýjan leik. „Ég var í spjótkasti og ætla að láta reyna á það aftur. Þetta er búið að blunda í mér í tvö ár. Ég var líka í kúluvarpi og stangarstökki en aðal- lega í spjótkasti,“ sagði Bryndís Lára sem æfði með Dímon á Hvolsvelli og keppti fyrir HSK. Hún ætlar að finna sér lið til að æfa með í janúar og taka spjótkastið föstum tökum. „Ég myndi ekki nenna að dúlla mér í þessu. Ég ætla að keyra á fullu á þetta.“ Donni ekkert kátur Bryndís Lára segir að Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Þórs/KA, hafi ekki verið hoppandi glaður þegar hún tilkynnti honum ákvörðun sína. „Donni var ekkert kátur með mig en fannst þetta besta lausnin, að ég myndi taka pásu í staðinn fyrir að fara frá þeim. Það skilja þetta allir. Aldurinn er ekkert að vinna með manni, þannig að það var núna eða aldrei,“ segir hin 26 ára gamla Bryn- dís Lára. Óhætt er að segja að Bryndís Lára hætti, þótt það sé bara tímabundið, á toppnum. Hún gekk í raðir Þórs/ KA frá ÍBV fyrir síðasta tímabil og átti glimrandi gott sumar í marki Akureyrarliðsins. Bryndís Lára lék alla 18 leiki Þórs/KA í Pepsi-deild- inni, fékk aðeins 15 mörk á sig, hélt hreinu í helmingi leikjanna og átti stóran þátt í að liðið varð Íslands- meistari í annað sinn. Bryndís Lára er á því að síðasta tímabil hafi verið hennar besta á ferlinum. Færri mistök en áður „Ég var mjög ánægð með frammi- stöðuna. Ég gerði færri mistök en ég hef gert og var mjög sátt við það,“ sagði Bryndís Lára sem tók svo sannarlega rétta ákvörðun þegar hún færði sig um set frá ÍBV til Þórs/ KA. „Ég er alltaf tilbúin að prófa eitthvað nýtt og sé alls ekki eftir því að hafa farið norður og kynnst umhverfinu þar.“ Það afrek Þórs/KA að verða Íslandsmeistari var mikið, sérstak- lega í ljósi þess að um veturinn var tvísýnt hvort samstarfi Þórs og KA yrði haldið áfram. „Það var mjög gott að ná að sýna samfélaginu fyrir norðan að það var vitleysa að slíta þessu. Miðað við fjöldann sem mætti á leiki hjá okkur held ég að flestir hafi verið sammála um það,“ segir hún. Bryndís Lára hlaut ekki náð fyrir augum Freys Alexanderssonar þegar hann valdi íslenska lands- liðshópinn sem fór á EM í Hol- landi. Hún var ekki sátt og sagði að valið hefði með eitthvað allt annað en frammistöðu hennar að gera. Aðspurð vill Bryndís Lára lítið tjá sig um landsliðsvalið. Óþarfi að gera mál úr þessu „Það hefur ekkert upp á sig. Ég lét óánægju mína í ljós og það er eðli- legt fyrir einhvern sem er með mikið keppnisskap. Ég held að það sé óþarfi að gera eitthvað mál úr þessu. Ég er að horfa í aðrar áttir núna,“ segir Bryndís Lára og bætir við að landsliðsvalið hafi ekki haft nein áhrif á ákvörðun hennar um að setja takkaskóna ofan í skúffu. Hún neitar því þó ekki að það hefði toppað frábært sumar að vera valin í landsliðið. „Auðvitað hefði ég verið mjög kát með það. En svo var ekki. Núna eru það bara frjálsar og sjáum hvernig það fer,“ segir Bryndís Lára að lokum. ingvithor@365.is Úr marki meistaranna yfir í spjótkastið Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir hefur sett takkaskóna ofan í skúffu og ætlar að snúa sér að spjótkasti sem hún æfði á yngri árum. Íslandsmeistarinn segir að tímapunkturinn sé réttur og ákvörðunin hafi ekkert með landsliðsvalið að gera. Markvörðurinn Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir hefur Íslandsmeistarabikarinn hátt á loft. FRéttaBLaðið/ÞÓRiR tRyggvason Ég var í spjótkasti og ætla að láta reyna á það aftur. Þetta er búið að blunda í mér í tvö ár. Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Amadeus borðstofuhúsgögn Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Komið og skoðið úrvalið Finndu okkur á facebook Flísabúðin kynnir hágæða Ítalska HELIOSA rafmagnshitara HELIOSA hitarar henta bæði innan- og utandyra. Hitna strax, vindur hefur ekki áhrif, vatnsheldir og menga ekki. Margar gerðir til á lager. Flísabúðin Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is Allur borðbúnaður fyrir veitingahús gsimport.is 892 6975 FYRIR FLESTAR GERÐIR BÍLA... GORMAR HÖGGDEYFAR VANRÆKTU EKKI VIÐHALDIÐ! STÁL OG STANSAR | SÍMI: 517-5000 | VAGNHÖFÐI 7 | STALOGSTANSAR.IS 2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F i m m t U d A G U r40 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð 2 1 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 9 6 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 9 3 -A 6 3 4 1 E 9 3 -A 4 F 8 1 E 9 3 -A 3 B C 1 E 9 3 -A 2 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.