Fréttablaðið - 21.12.2017, Side 42

Fréttablaðið - 21.12.2017, Side 42
Sængurfatnaður er hlýleg jóla-gjöf og undurgott að sofna á jólanótt með nýja sæng. Maður finnur svo góðan mun og sanna sælu,“ segir Hafdís Hrönn Reynisdóttir, verslunarstjóri í Betra baki, þar sem stemningin er einkar jólaleg nú síðustu dagana fyrir jól, enda verið að velja notalegan varn- ing í jólapakkana fyrir náðugustu stundir heimilislífsins. „Sumir halda ekki einu sinni jól nema með nýju laki frá okkur,“ segir Hafdís og handfjatlar silki- mjúkt bómullarteygjulak frá Bella Donna sem faðmar dýnuna að sér og er blandað með aloe vera-geli sem gerir lakið einstaklega mjúkt viðkomu. „Lökin eru algjört undur og hreinasti lúxus. Við steinhættum að bjóða upp á önnur lök því að viðskiptavinirnir vildu ekkert nema Bella Donna. Búið er að forþvo lökin sem er mikill kostur fyrir jólin, að geta sett þau beint á rúmin. Þá lofa rúmfötin okkar dásamlegri slökun og nætursvefni, auk þess að vera mikið augnayndi og straufrí úr silki og egypskri bómull frá Boss, Calvin Klein, Kenzo og Elegante,“ segir Hafdís og náttslopparnir frá Boss og Calvin Klein hitta líka alla í hjartastað. Þriðjungur ævinnar í rúminu Betra bak er rómuð verslun fyrir undursamleg rúm en margir verða hissa þegar þeir finna þar breiða línu húsgagna og hvers kyns hús- búnað fyrir heimilið. „Við erum með gullfalleg teppi, ómótstæðileg jólailmkerti frá Ralph Lauren, æðislega hægindastóla og yndislega mjúk og falleg rúmteppi í bland við undurfagra rúmgafla, náttborð og sófasett,“ segir Hafdís og rétt tæpir á úrvalinu. „Við erum með dýrindis gorma- dýnur og Tempur-dýnur í öllum verðflokkum, stillanleg og venjuleg rúm, og úrval rúmgafla sem hægt er að velja í stíl við heimilið. Allt sendum við svo heim og gerum til- búið,“ segir Hafdís sem í Betra baki er með allt fyrir svefnherbergið. „Æ fleiri átta sig á því að þeir verja einum þriðja ævi sinnar í rúminu og að gott rúm skilar sér ávallt í bættri heilsu og betri svefni. Að velja sér nýtt rúm er þó ekki daglegt brauð og við leggjum áherslu á að fólk njóti ánægjulegrar upplifunar við val á rúmi,“ segir Haf- dís sem leiðbeinir viðskiptavinum við að finna dýnur sem henta líkama þeirra best þegar kemur að styrkleika og mýkt. „Fyrir jólin er vinsælt hjá pörum að velja sér veglegri hluti í sameigin- lega og rómantíska jóla- gjöf, og mörg hjón hafa komið og keypt sér nýtt rúm til að sofa vel í og hafa það yndislegt saman um jólin,“ segir Hafdís. Fullkomin gjöf Heilsuinniskórnir Undri slógu í gegn hjá Betra baki um síðustu jól og seldust upp fyrir hátíð- arnar. Voru gefin út hundruð korta fram að jólum á meðan beðið var eftir nýrri sendingu sem barst á milli jóla og nýárs, en Hafdís pantaði þrefalt magn af Undra fyrir komandi jól. „Undri er hin fullkomna jóla- gjöf,“ segir Hafdís. „Skórnir draga úr spennu, örva blóðflæði og veita örvun frá mjöðmum upp í höfuð með fimm svæða innleggi sem þrýstir undir ilina og líkir eftir kínversku nuddi í gegnum fimm taugapunkta á ilinni,“ útskýrir Hafdís um Undra sem er íslensk hönnun með nuddinnleggi frá virtum, þýskum framleiðanda. „Við völdum nafnið á skóna, útlitið og efnið, sem er merinóull, og unnum skóna í samstarfi við stoðtækja- fræðing svo að vellíðan og slökun yrði alger.“ Sívinsæl jólagjöf úr Betra baki er Tempur-koddi sem lagar sig að hita og þyngd þess sem á honum hvílir. „Tempur aðlagast öxlum og hálsi og heldur hryggsúlunni í beinni línu með óskertu blóðflæði. Þeir sem einu sinni eignast Tempur- kodda vilja ekki annað enda fæst ekki jafn góður stuðningur í neinum öðrum koddum,“ segir Hafdís. Sængurnar í Betra baki rjúka líka út í jólapakkana. Vinsælustu sængurnar eru hitajöfnunarsængin Temprakon og sæng úr 100 prósent gæsadún. „Temprakon nýtur verðskuld- aðra vinsælda enda heldur hún alltaf réttu hitastigi og er aldrei of heit né of köld en þó úr 90 prósent dún ef verða skyldi mjög kalt. Gæsa dúnsængin er dásam- lega lauflétt, umvefjandi og hlý, og maður upplifir einstaka vellíðan og þægindi með nýrri og vandaðri sæng á þreyttum kroppnum,“ segir Hafdís. Betra bak er opið til klukkan 20 í kvöld og annað kvöld, og til klukkan 22 á Þorláksmessu. Þar er þjónustan fyrsta flokks og tekið hlýlega á móti viðskiptavinum í jólalegri versluninni. Betra bak er í Faxafeni 5 í Reykjavík og á Akureyri og Ísafirði. Sími 5 888 477. Sjá nánar á betrabak.is Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 Starfsfólk Betra baks er þrautreynt í því að liðsinna viðskiptavinum við kaup á réttri dýnu. Frá vinstri: Elvar Freyr, Hafdís Hrönn, Herdís og Teitur. Sængurföt og jólailmur frá Ralph Lauren eru vel þegnar jólagjafir. Dýrindis gormadýnur og Tempur-dýnur fást í öllum verðflokkum.Sófasett og hvers kyns húsbúnaður fæst í Betra baki. Heilsuinniskórnir Undri lofa slökun og vellíðan með fimm svæða innleggi. Náttsloppar frá Boss og Calvin Klein eru ljúfar og vinsælar jólagjafir. Framhald af forsíðu ➛ Undri er hin full- komna jólagjöf. Inniskórnir draga úr spennu, örva blóðflæði og veita örvun frá mjöðmum upp í höfuð með fimm svæða nudd- innleggi. Hafdís Hrönn Reynisdóttir 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . D E S E m B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 2 1 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 9 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 9 3 -B 5 0 4 1 E 9 3 -B 3 C 8 1 E 9 3 -B 2 8 C 1 E 9 3 -B 1 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.