Fréttablaðið - 21.12.2017, Qupperneq 42
Sængurfatnaður er hlýleg jóla-gjöf og undurgott að sofna á jólanótt með nýja sæng.
Maður finnur svo góðan mun og
sanna sælu,“ segir Hafdís Hrönn
Reynisdóttir, verslunarstjóri í Betra
baki, þar sem stemningin er einkar
jólaleg nú síðustu dagana fyrir jól,
enda verið að velja notalegan varn-
ing í jólapakkana fyrir náðugustu
stundir heimilislífsins.
„Sumir halda ekki einu sinni jól
nema með nýju laki frá okkur,“
segir Hafdís og handfjatlar silki-
mjúkt bómullarteygjulak frá Bella
Donna sem faðmar dýnuna að sér
og er blandað með aloe vera-geli
sem gerir lakið einstaklega mjúkt
viðkomu.
„Lökin eru algjört undur og
hreinasti lúxus. Við steinhættum
að bjóða upp á önnur lök því að
viðskiptavinirnir vildu ekkert
nema Bella Donna. Búið er að
forþvo lökin sem er mikill kostur
fyrir jólin, að geta sett þau beint
á rúmin. Þá lofa rúmfötin okkar
dásamlegri slökun og nætursvefni,
auk þess að vera mikið augnayndi
og straufrí úr silki og egypskri
bómull frá Boss, Calvin Klein,
Kenzo og Elegante,“ segir Hafdís og
náttslopparnir frá Boss og Calvin
Klein hitta líka alla í hjartastað.
Þriðjungur ævinnar í rúminu
Betra bak er rómuð verslun fyrir
undursamleg rúm en margir verða
hissa þegar þeir finna þar breiða
línu húsgagna og hvers kyns hús-
búnað fyrir heimilið.
„Við erum með gullfalleg teppi,
ómótstæðileg jólailmkerti frá Ralph
Lauren, æðislega hægindastóla og
yndislega mjúk og falleg rúmteppi
í bland við undurfagra rúmgafla,
náttborð og sófasett,“ segir Hafdís
og rétt tæpir á úrvalinu.
„Við erum með dýrindis gorma-
dýnur og Tempur-dýnur í öllum
verðflokkum, stillanleg og venjuleg
rúm, og úrval rúmgafla sem hægt
er að velja í stíl við heimilið. Allt
sendum við svo heim og gerum til-
búið,“ segir Hafdís sem í Betra baki
er með allt fyrir svefnherbergið.
„Æ fleiri átta sig á því að þeir
verja einum þriðja ævi sinnar
í rúminu og að gott rúm
skilar sér ávallt í bættri
heilsu og betri svefni.
Að velja sér nýtt rúm
er þó ekki daglegt
brauð og við leggjum
áherslu á að fólk
njóti ánægjulegrar
upplifunar við val
á rúmi,“ segir Haf-
dís sem leiðbeinir
viðskiptavinum
við að finna dýnur
sem henta líkama
þeirra best þegar
kemur að styrkleika
og mýkt.
„Fyrir jólin er vinsælt
hjá pörum að velja sér
veglegri hluti í sameigin-
lega og rómantíska jóla-
gjöf, og mörg hjón hafa
komið og keypt sér nýtt
rúm til að sofa vel í og
hafa það yndislegt saman
um jólin,“ segir Hafdís.
Fullkomin gjöf
Heilsuinniskórnir
Undri slógu í gegn
hjá Betra baki um
síðustu jól og seldust
upp fyrir hátíð-
arnar. Voru gefin út
hundruð korta fram
að jólum á meðan beðið
var eftir nýrri sendingu
sem barst á milli jóla og
nýárs, en Hafdís pantaði
þrefalt magn af Undra
fyrir komandi jól.
„Undri er hin fullkomna jóla-
gjöf,“ segir Hafdís. „Skórnir draga
úr spennu, örva blóðflæði og veita
örvun frá mjöðmum upp í höfuð
með fimm svæða innleggi sem
þrýstir undir ilina og líkir eftir
kínversku nuddi í gegnum fimm
taugapunkta á ilinni,“ útskýrir
Hafdís um Undra sem er íslensk
hönnun með nuddinnleggi frá
virtum, þýskum framleiðanda. „Við
völdum nafnið á skóna, útlitið og
efnið, sem er merinóull, og unnum
skóna í samstarfi við stoðtækja-
fræðing svo að vellíðan og slökun
yrði alger.“
Sívinsæl jólagjöf úr Betra baki er
Tempur-koddi sem lagar sig að hita
og þyngd þess sem á honum hvílir.
„Tempur aðlagast öxlum og hálsi
og heldur hryggsúlunni í beinni
línu með óskertu blóðflæði. Þeir
sem einu sinni eignast Tempur-
kodda vilja ekki annað enda
fæst ekki jafn góður stuðningur
í neinum öðrum koddum,“ segir
Hafdís.
Sængurnar í Betra baki rjúka
líka út í jólapakkana. Vinsælustu
sængurnar eru hitajöfnunarsængin
Temprakon og sæng úr 100 prósent
gæsadún.
„Temprakon nýtur verðskuld-
aðra vinsælda enda heldur hún
alltaf réttu hitastigi og er aldrei
of heit né of köld en þó úr 90
prósent dún ef verða skyldi mjög
kalt. Gæsa dúnsængin er dásam-
lega lauflétt, umvefjandi og hlý, og
maður upplifir einstaka vellíðan
og þægindi með nýrri og vandaðri
sæng á þreyttum kroppnum,“ segir
Hafdís.
Betra bak er opið til klukkan
20 í kvöld og annað kvöld, og til
klukkan 22 á Þorláksmessu. Þar er
þjónustan fyrsta flokks og tekið
hlýlega á móti viðskiptavinum í
jólalegri versluninni.
Betra bak er í Faxafeni 5 í Reykjavík
og á Akureyri og Ísafirði. Sími 5 888
477. Sjá nánar á betrabak.is
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is,
s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage,
johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is,
s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Starfsfólk Betra baks er þrautreynt í því að liðsinna viðskiptavinum við kaup á réttri dýnu. Frá vinstri: Elvar Freyr, Hafdís Hrönn, Herdís og Teitur.
Sængurföt og jólailmur frá Ralph Lauren eru vel þegnar jólagjafir.
Dýrindis gormadýnur og Tempur-dýnur fást í öllum verðflokkum.Sófasett og hvers kyns húsbúnaður fæst í Betra baki.
Heilsuinniskórnir Undri lofa slökun og vellíðan með fimm svæða innleggi.
Náttsloppar frá Boss og
Calvin Klein eru ljúfar og
vinsælar jólagjafir.
Framhald af forsíðu ➛
Undri er hin full-
komna jólagjöf.
Inniskórnir draga úr
spennu, örva blóðflæði
og veita örvun frá
mjöðmum upp í höfuð
með fimm svæða nudd-
innleggi.
Hafdís Hrönn Reynisdóttir
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . D E S E m B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
3
-B
5
0
4
1
E
9
3
-B
3
C
8
1
E
9
3
-B
2
8
C
1
E
9
3
-B
1
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K